Bændablaðið - 07.02.2013, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 20136
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.900 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.450.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
Frumvarp til náttúruverndarlaga boðar stofnanaræði,
leyfisumsóknir og aukið eftirlit
LEIÐARINN
Stjórnmálaflokar ryðjast nú fram
á völlinn hver af öðrum og lofa
gulli og grænum skógum. Bara
ef fólk vilji vera svo elskulegt að
kjósa frambjóðendur þeirra í
vinnu á Alþingi í þágu almennings
næstu fjögur árin. Oftar en ekki
hafa flokkarnir samt komist upp
með að svíkja jafnharðan gefin
loforð um leið og talið hefur verið
upp úr kjörkössum. Er ekki mál
til komið að breyting verði á þeim
ósóma?
Fjölmargir bændur hafa frá því
fyrir hrun íslenska fjármálakerfisins
barist í bökkum vegna mikils
fjármagnskostnaðar í sínum rekstri.
Þekkt eru mörg dæmi um ágengni
fjármálastofnana við að hvetja
bændur til fjárfestinga við stækkun
og tækjavæðingu búa sinna. Allt
var það í nafni hagræðingar
og væntinga sem sérfræðingar
bankanna gáfu um aukna arðsemi.
Oftar en ekki varð þessi mynd að
hryllingsmynd þegar bankarnir
hrundu. Í sumum tilfellum var
um gengistryggð lán að ræða sem
tóku stökkbreytingum við hrunið.
Í öðrum tilvikum voru lánin
tryggð í hinu einstæða íslenska
verðtryggingarkerfi. Erfitt er að
greina hvor leiðin hafi verið verri.
Eitt er víst að í hörmungum
lántakenda hefur margsinnis verið
sýnt fram á keðjuverkunaráhrif
verðtryggingarvitfirringarinnar
með slæmum afleiðingum fyrir
heimili, fyrirtæki og þar með talinn
landbúnaðarrekstur. Allt frá því
verðtryggingin var „tímbundið“ sett
á með Ólafslögum árið 1979 hafa
raddir verið háværar um nauðsyn
þess að afnema hana sem fyrst.
Þrátt fyrir fögur loforð og fyrirheit
hafa pólitíkusar svikið þau loforð
jafnharðan. Nærtækast er þar að
benda á núverandi forsætisráðherra,
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í vor fær þjóðin enn á ný
tækifæri til að ráða fólk í vinnu á
Alþingi til að gæta sinna hagsmuna.
Því hlýtur það að vera ein af helstu
kröfum almennings að fá skýr svör
frá forystumönnum flokkanna fyrir
kosningar hvernig þeir ætli að haga
sinni vinnu að kosningum loknum.
Hvernig þeir ætli t.d. að taka á lána-
málum almennings og fyrirtækja.
Hvaða áætlanir flokkarnir hafi um
að flýta leiðréttingu á innistæðu-
lausri vaxtaútreikningsskekkju
heimila og fyrirtækja, bæði vegna
gengistryggðra- og verðtryggðar
lána. Eða ætla menn bara að bíða
eftir enn einni rassskellingunni í
dómssölum?
/HKr.
Taka verður frumvarp til náttúruverndarlaga
til gagngerrar endurskoðunar. Bændasamtökin
gerðu umsögn þegar það var í kynningardrögum
en lítið hefur efni frumvarpsins batnað. Af lestri
þess að dæma kemur fram það sem kalla mætti
skilningsleysi á lífi í landinu.
Efni frumvarpsins og markmið þeirra sem
það flytja og stefna að lögfestingu þess ætla ég
ekki annað en einlæga umhyggju fyrir umhverfi
og náttúru. En því miður er ekki viðurkennt að
til að nýta landið þarf oftar en ekki að ganga um
það og í mörgum tilvikum að breyta ásýnd þess.
Efni frumvarpsins er andi þeirra sjónarmiða að
náttúran og landið verði best varðveitt með friðun
eða með því að gefa út leyfi, taka upp kerfi og
eftirlit. Einhvers konar þjóðgarðavæðing.
Að sjálfsögðu er ekki með því verið að
taka undir að leyfa eigi óþarfa röskun, óheftan
utanvegaakstur eða annað háttarlag sem getur
skaðað okkar viðkvæmu náttúru. En sem dæmi
skal nefnt hér að skilningur á þörfum búskapar er
takmarkaður, t.d. á umferð um lönd bænda, ræktun
og annarri nýtingu. Um landbúnaðarland verður að
tryggja skilning á athöfnum bænda.
Fleiri atriði eins og leyfafargan og eftirlit vegna
ræktunar má nefna. Dæmi er ræktun á mýrlendi.
Hvar eiga t.d. skilin að liggja um notkun á
innfluttum „lífverum“? Má þar nefna að mest af
því fræi sem bændur nota til ræktunar er framræktað
og framleitt á erlendri grund. Öðruvísi geta ekki
orðið þær framfarir eða sá eftirsótti árangur sem
fæst af nýtingu á nýjum plöntum í jarðrækt.
15 ára tún eru óræktað land samkvæmt
skilgreiningu frumvarpsins
Þá skal ekki sleppt að nefna hér furðulega
skilgreiningu á ræktuðu landi: „Ræktað land:
Land sem nýtt er til framleiðslu plöntuafurða
og sem breytt hefur verið með íhlutun til að
auka eða bæta slíka framleiðslu með reglulegri
áburðargjöf og/eða jarðvinnslu og sáningu. Hafi
landið ekki verið ræktað í 15 ár telst það óræktað
land.“ Með þessari skilgreiningu er langstærsti
hluti núverandi túnræktar bænda gerður að órækt
samkvæmt skilgreiningu náttúruverndarlaga.
Það er síðan annað mál að tún ættu almennt ekki
að verða gömul, án þess að vera endurræktuð,
með skiptirækt eða með öðrum hætti. Fátt bætir
hagkvæmni fóðurframleiðslu og beitar meira en
markvisst endurræktunarstarf.
Það sem er verra er að andi frumvarpsins er á
margan hátt lýsandi um að ekki eigi að þróa okkar
landbúnað neitt frekar, að hann þurfi til dæmis ekki
að stækka eða áherslur að breytast. Ræktunarland
í heiminum er af skornum skammti, mannkyninu
fjölgar og þéttbýli eykst.
Við virðumst ekki geta áttað okkur á hvert
hlutverk okkar er og hver tækifæri okkar eru;
með ræktunarlönd okkar sem eru enn ónýtt og þá
auðlind sem er vatn. Frumvarpið má ekki loka á slík
tækifæri og alls ekki læsa okkur inni í stofnanaræði,
leyfisumsóknum og eftirliti með okkur sem erum að
nýta landið. Með þessu er alls ekki verið að hafna
sjónarmiðum náttúruverndar en þar er hlutverk
bænda mikið og ríkt. Enda hafa þeir með verkum
sínum sýnt að þeir eru almennt liðtækir í landbótum
og náttúruvernd.
Eignarhald fasteigna
Í lögfræðiáliti sem innanríkisráðuneytið hefur
látið vinna eru færð rök fyrir því að heimilt sé að
setja reglur um eignarhald á fasteignum á Íslandi.
Kannski öfugt við það sem oftast hefur verið
túlkað um heimildir okkar til að hafa áhrif á þróun
eignarhalds á fasteignum.
Umræða um heimild útlendinga til að eiga
fasteignir hér á landi er gömul. Um það var sett
löggjöf árið 1919 þar sem fram komu, í ræðu Jóns
Magnússonar forsætisráðherra, sjónarmið um að
aðgreina eignarhald á húsum og bújörðum.
Umræða undanfarin ár hefur ekki síður hverfst
um þetta atriði hvort skynsamlegt sé að hafa slíkar
takmarkanir. Varðandi landeignir er það sérstaklega
viðkvæmt, ekki síst með vísun til umræðu hér að
framan um horfur í fæðuframleiðslu heimsins. Ekki
síður vegna nýtingar auðlinda, veiðiréttar og fleiri
þátta sem snúa beint að þróun búsetu og byggðar.
Í svari við fyrirspurn á Alþingi um þróun
eignarhalds á bújörðum kemur skýrt fram að ekki
sé um neinn bráðavanda að ræða. Það hafa ekki
margar bújarðir farið í eign manna sem búa utan
landsteinanna. Einmitt þess vegna er tækifæri að
meta frumvarp eða hugmyndir innanríkisráðherra
og ræða framtíðarhorfur og ekki síst hagsmuni af
slíkum ákvæðum.
Fyrir fram er ekki hægt að hafna sjónarmiðum
innanríkisráðherrans. Heldur er hvatt til að bændur
og samtök þeirra taki þau til umfjöllunar og hafi
á þeim yfirvegaða skoðun og láti sig umræðuna
varða. Hugmyndir ráðherra um að hafa áhrif á þróun
byggðar og nýtingar á fasteignum, húsum eða landi
eru gott innlegg í umræðu um hvernig við viljum t.d.
sjá sveitir og byggð þróast. Að ræða og setja reglur
um eignarhald, fjárfestingar – hver sem á í hlut –
er verðugt verkefni. Það er ekki eftirsóknarvert
að jarðir séu í eignarhaldi þeirra sem vilja ekki
samsvara sig hagsmunum byggðanna. /HB
Skýr svör óskast
Eldhestar að Völlum í Ölfusi
er sveitahótel og hestaleiga
staðsett í friðsælu umhverfi
stutt frá Hveragerði. Samkvæmt
viðskiptavinum og starfsfólki
Ferðaþjónustu bænda er aðstaðan
og þjónustan hjá Eldhestum til
fyrirmyndar. Starfsfólkið leggur
mikinn metnað í að taka hlýlega
á móti gestum og kynna íslenska
hestinn sem best fyrir þeim. Þá er
einnig vel hugað að umhverfis- og
gæðamálum hjá fyrirtækinu.
Hróðmar Bjarnason, einn eigenda
Eldhesta, segir frá hugmyndinni á bak
við fyrirtækið og hvernig reksturinn
hefur þróast: „Hugmyndin kviknaði
þegar stofnendur fyrirtækisins
lágu í heita læknum í Reykjadal í
ágústmánuði árið 1986. Markmiðið
var að gefa erlendum jafnt sem
innlendum ferðamönnum tækifæri á
að upplifa landið og margbreytileika
íslenska hestsins eins og Íslendingar
hafa sjálfir gert í rúmlega þúsund
ár. Í upphafi buðum við styttri
hestaferðir inn á Hengilssvæðið og
í nágrenni Hveragerðis. Á síðustu
26 árum hefur margt breyst. Í dag
bjóðum við stærsta úrval hestaferða á
landinu, eða 35 ferðir með reyndum
leiðsögumönnum, vítt og breitt
um landið, allt árið um kring fyrir
allan aldur og öll getustig, frá einni
klukkustund upp í vikulangar ferðir.“
Dagsferðin inn í Reykjadal, þar
sem hugmyndin að stofnun Eldhesta
kviknaði, er einmitt vinsælasta ferð
fyrirtækisins frá upphafi. Hróðmar
bætir við: „Það er skemmtilegt að
segja frá því að í einni slíkri ferð
fór hópur danskra og sænskra gesta
í lækinn á meðan fararstjórinn þurfti
að halda í alla tíu hestana um 150
m frá baðstaðnum til að hlífa við-
kvæmum gróðri. Fararstjóranum
láðist að segja gestunum frá því að
þau gætu legið í ca. 30 mínútur í
læknum. Þegar ein klukkustund var
liðin fór fararstjórinn að ókyrrast en
hann náði ekki sambandi við gestina
og mátti sig hvergi hræra. Svo fór
að gestirnir lágu í
læknum í tvær og
hálfa klukkustund,
svo mikið nutu þeir
þess. Sjaldan hefur
fararstjóri upplifað
ánægðari gesti en
einmitt í þessari
ferð!“
Eldhestar er með
virka umhverfis-
stefnu og hótelið var
fyrsti gististaðurinn
á Íslandi til að fá viðurkenningu
norræna umhverfismerkisins
Svansins. Eldhestar fengu einnig
umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
árið 2011 og hestaleigan Eldhestar
hlaut gæðavottun Vakans árið
2012. Hróðmar útskýrir mikilvægi
þessara áherslna: „Þar sem starfsemi
okkar snýst um það að sýna fólki
einstæðar óbyggðir landsins skiptir
miklu máli fyrir framtíðina að
halda landinu hreinu. Að mínu mati
er það skylda fyrirtækja í þessari
grein að leggja sitt af mörkum til
að viðhalda náttúrunni hreinni og
óspilltri. Umhverfisstefna okkar
byggist á því að halda neikvæðum
umhverfisáhrifum í lágmarki,
m.a. með því að fylgja merktum
reiðleiðum, hafa nægjanlega fjölda
fararstjóra með í ferðum sem og að
taka upp umhverfisvæna starfshætti
í allri starfsemi Eldhesta.“
Umhverfisáherslur voru einmitt
í forgrunni í byggingu hótelsins á
sínum tíma, en öll aðstaða þar er
til fyrirmyndar.
Herbergin eru
26 að tölu,
rúmgóð og vel
búin, gestir hafa
einnig aðgang að
heitum pottum
og verönd með
fallegu útsýni
og skemmtilegt
h e s t a þ e m a
er áberandi í
skreytingum.
Fjölbreyttar veitingar eru í boði
í björtum matsal sem rúmar allt
að 80 manns, hægt er að slaka á í
koníaksstofu með arni og góð aðstaða
er til ráðstefnuhalds á staðnum.
Nánari upplýsingar um Eldhesta
veita María Reynisdóttir, kynningar-
stjóri hjá Ferðaþjónustu bænda, s.
570 2700, netfang: mariar@farmho-
lidays.is og Fríða Rut Stefánsdóttir,
Hótel Eldhestum, s. 480 4800, net-
fang: eldhestar@eldhestar.is.
Eldhestar að Völlum í Ölfusi
BÆR MÁNAÐARINS – FEBRÚAR 2013
Mynd HKr.