Bændablaðið - 07.02.2013, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013 7
„Undirtektir voru alveg svakalega
góðar, leikhúsgestir voru ýmist
skellihlæjandi eða tár sáust blika
á hvarmi,“ segir Steingrímur
Magnússon, kynningarstjóri
Freyvangsleikhússins, en það
frumsýndi síðasta föstudag breska
gamanleikinni Dagatalsdömurnar,
sem valið var besta gamanleikritið
í London árið 2010. „Þetta reynir
á allan tilfinningaskalann og leik-
húsgestir höfðu á orði að leikritið
skildi mikið eftir sig.“
Verkið er byggt á sannsögulegum
atburðum sem gerðust í London árið
1999. Í því segir frá nokkrum kven-
félagskonum sem taka sig saman og
ákveða að gera dagatal með fallegum
myndum af sjálfum sér, fáklæddum.
Dagatalið ætla þær síðan að selja til
að safna fyrir sófa á krabbameins-
deildina á sjúkrahúsinu í heimabæ
sínum, en eiginmaður einnar þeirra
hefurgreinst með krabba og þær vilja
leggja sitt af mörkum til að gera
biðstofuna á sjúkrahúsinu vistlegri.
Átök blossa upp í hópnum um gerð
dagatalsins og ekki minnka þau í
kjölfar frægðarinnar sem konurnar
öðlast eftir útkomu dagatalsins.
Kemur beint og óbeint við alla
Steingrímur segir að ástæða þess
að verkið varð fyrir valinu sé sú
að Freyvangsleikhúsið vilji vekja
athygli á baráttunni gegn krabba-
meini. „Þessi sjúkdómur kemur
beint eða óbeint við alla og hefur
Freyvangsleikhúsið fengið að kynn-
ast því,“ segir hann.
Öll laun fyrir höfunda- og
sýningarrétt renna óskert til rann-
sókna á sjúkdómnum, en einnig
hefur Freyvangsleikhúsið ákveð-
ið að gera enn betur og ánafna
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis hluta af innkomunni.
Dagatal með dömunum mun að
sjálfsögðu einnig koma út og fær
Krabbameinsfélagið ágóða af því.
Þetta er í fyrsta skipti sem
verkið er sett upp á Íslandi og fékk
leikfélagið Davíð Þór Jónsson
til að skella því yfir á íslensku.
Leikstjóri er reynsluboltinn Sigrún
Valbergsdóttir.
Verkið var sýnt tvívegis um liðna
helgi, frumsýning var sem fyrr segir
á föstudagskvöld og þá var sýning
á sunnudag fyrir boðsgesti, m.a.
starfsfólk Krabbameinsfélagsins og
lyflækningadeildar Sjúkrahússins
á Akureyri og þá sem með einum
eða öðrum hætti koma að meðferð
krabbameinssjúklinga.
Mikið um pantanir
Steingrímur segir að verkið verði
sýnt næstu helgar, bæði á föstudags-
og laugardagskvöldum, og þegar
sé búið að bóka miða langt fram í
tímann. „Þetta virðist ætla að verða
mjög vinsælt, það er mikið um hópa
af öllum tagi sem hafa pantað miða,
bæði karla- og kvennahópa,“ segir
hann. „Það kæmi mér ekki á óvart þótt
við yrðum að sýna langt fram í apríl.“
Freyvangsleikhúsið er gamlareynt
áhugaleikfélag í Eyjafirði, hefur
starfað í áratugi. Mikill metnaður
hefur einkennt starf þess og má til
dæmis nefna að sýningar þaðan voru
tilnefndar áhugaverðustu áhuga-
mannasýningarnar ársins árið 2009 og
2011 og hafði félagið þar áður hlotið
þessa nafnbót tvisvar. /MÞÞ
ið lok síðasta þáttar
birtist ein af forláta
vísum Höskuldar
Einarssonar. Vel fer á
því að greina frá fróðlegu samtali sem
ég átti við dóttur Höskuldar, Sigríði
húsfreyju á Kagaðarhóli, um fleygar
vísur föður hennar og annan kveðskap.
Sigríður fór með vísu þessa en þekkti
ekki höfund hennar. Vænt þætti mér
ef einhver lesenda vissi þar deili á:
Samleik eiga systurnar
sorg og gleði háðar.
Ef þú leitar annarrar
oftast finnur báðar.
Nýlátinn er einn af höfðingjum
Húnvetninga, Gísli Pálsson bóndi á
Hofi í Vatnsdal. Að honum gengnum
orti Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð:
Allra bíður efsta stund,
það óþarft telst að kynna,
og Gísli á Hofi gekk á fund
gömlu feðra sinna.
Í algleymi þorra er við hæfi að birta les-
endum vísu sem Benedikt Benediktsson
bóndi á Stóra-Vatnsskarði orti nýverið
á ferð til Austurríkis. Nokkur hita-
munur mun þó þar ytra og hér heima.
Sá blessaði miðill sem ort er um getur
nefnilega bæði veitt svölun í hita jafnt
og yl í aftökum:
Við skulum saman létta lund,
lífið fylla gríni.
Eiga saman unaðsstund
ögn að dreypa á víni.
Næstu tvær vísur eftir Ingólf Ómar
Ármannsson veita einnig yl, þótt með
öðrum hætti sé:
Andans gróður yljar mér,
örar blóðið streymir.
Mögnuð ljóðalistin er
ljúfan hróður geymir.
Vísan þjála vörum á
visku strjálað getur,
ljóðamálið lipurt þá
lífgar sálartetur.
Í framhaldi af frjórri umræðu síðustu
þátta um Bjarna Gíslason bónda á
Harrastöðum í Dölum kjótlaði sá fróði
maður Hjálmar Styrkársson frekara
efni til þáttarins. Í kompu sinni fann
Hjálmar eftirfarandi: „Fyrstu vísuna
orti Bjarni Gíslason um Kristján
Jónsson, f. 1856 d. 1938, þá bónda í
Snóksdal, Miðdölum“:
Elli Stjáni varðist vel,
varð fyrir láni stundum.
Hleypti Grána um grund og mel,
glennti upp skjána á fundum.
„Seinni vísan er um Ólaf Samúelsson,
f. 1878, d. 1935. Bjó á Fögru-Grund,
sem liggur að Haukadalsá, en stóð
gegnt Harrastöðum. Ólafur hafði lengi
verið í vistum á Harrastöðum“:
Nú er lítið gras á Grund,
grá og kalin rótin.
En Ólafur slær þó alla stund,
Ólafur sperrir fótinn.
Síðan segir Hjálmar: „Ég set hér eina
vísu til viðbótar en er ekki jafnviss
um höfundinn. Þó finnst mér að hún
sé einnig eftir Bjarna Gíslason. Vísan
er gerð í orðastað Stefáns Jónssonar á
Breiðabólsstað í Miðdölum, f. 1870, d.
1951. Hann réðst til vistar þar 1893.
Bóndi á Breiðabólsstað var Jón
Sumarliðason hreppstjóri og gegndi
hann fleiri störfum fyrir sveit sína og
hérað. Jón hafði tíðum að orðtæki, að
þetta eða hitt væri „ ekki vegi fjærri“.
Ég mun þreyja þar hjá fé,
þótt ég deyi nærri,
ef Jón segir að það sé
ekki vegi fjærri.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
V
Freyvangsleikhúsið Eyjafirði:
Fáklæddar dagatalsdömur slá í gegn í sveitinni
Kvenfélagskonur ákveða að gefa út dagatal af sjálfum sér fáklæddum og safna með því fé til að kaupa nýjan sófa á biðstofu krabbameinsdeildar sjúkra-
hússins. Átök blossa upp en áhugasamir geta brugðið sér fram í Freyvang og fylgst þar með framvindu mála. Myndir / Guðrún Hrönn
Ein léttklædd æfing fyrir jólin.
Sagt er að óvenjumikill áhugi sé hjá karlpeningnum í Eyjafirði að fá uppskriftir að þessum hnallþórum.