Bændablaðið - 07.02.2013, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 20138
Fréttir
Stefnt er því að dreifnám hefjist
á Blönduósi næsta haust. Skipað
verður framkvæmdaráð til að
annast undirbúning þess.
Bjóða á öllum nemendum í
Austur-Húnavatnssýslu upp á
framhaldsskólanám í heimabyggð.
Miðað verður við að starfsstöð
dreifnáms verði á Blönduósi.
Dreifnámið verði unnið í samstarfi
og á forsendum Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra.
Á bæjarráðsfundi Blönduós-
bæjar í síðasta mánuði gerði
Ágúst Þór Bragason grein fyrir
stöðu dreifnámsverkefnisins, sem
gengur út á að bjóða nemendum
í Austur-Húnavatnssýslu upp
á framhaldsskóla nám í heima-
byggð. Miðað sé við að starfs stöð
dreifnáms verði á Blönduósi og
nemendum sem eigi heima annars
staðar í Austur-Húnavatnssýslu
bjóðist daglegur akstur eða
stuðningur við daglegar ferðir.
Tillaga að dreifnámshópi
Austur-Húnavatnssýslu var lögð
fram á fundinum og samþykkti
bæjarráð Blönduóss hana fyrir
sitt leyti.
Sunnlenskir kúabændur verðlaunaðir
fyrir frábæran rekstur og bústjórn
Á aðalfundi Félags kúabænda á
Suðurlandi á Hellu nýlega fengu
fimm kúabú viðurkenningu frá
Búnaðarsambandi Suðurlands og
Auðhumlu fyrir frábæran rekstur
og bústjórn á kúabúum sínum.
Miðað er við rekstrartölur
áranna 2010 og 2011 samkvæmt
bústjórnarverkefninu SUNNA,
sem rúmlega 60 sunnlensk kúabú
taka þátt í árlega og hefur verið
samvinnuverkefni Búnaðarsambands
Suðurlands og viðkomandi búa. Þess
má geta að þrjú þessara búa fengu
samskonar viðurkenningu árið á
undan, þ.e. búin í Gýgjarhólskoti,
Móeiðarhvoli og í Seli. Auk
verðlaunaskjals fengu búin veglega
ostakörfu frá MS.
/MHH
Starfshópur, undir formennsku
Jóns Loftssonar skógræktar-
stjóra, sem unnið hefur að gerð
stefnumótunar í skógrækt hefur
skilað tillögum sínum til Svandísar
Svavarsdóttur umhverfis- og
auðlindaráðherra. Nefndin, sem
var skipuð árið 2006, hefur unnið
greinargerð með stefnumarkandi
tillögum um áherslur í skóg-
ræktarstarfinu sem hún kynnti
ráðherra fyrir skömmu.
Í nefndinni sátu fulltrúar
Landshlutaverkefna í skógrækt,
Landssamtaka skógareigenda og
Skógræktarfélags Íslands. Jafnframt
voru drög að greinargerð nefndar-
innar send í almenna kynningu
árið 2010 og bárust þá fjölmargar
ábendingar og athugasemdir sem
voru til leiðsagnar við endanlega
gerð greinargerðarinnar.
Í greinargerðinni er fjallað
um ýmsa þætti skógræktar og
hvernig skógræktaraðilar hyggjast
móta og skipuleggja starf sitt.
Þar á meðal eru markmið um
uppbyggingu skógarauðlindar,
endurheimt náttúruskóga, hlutverk
við bætta lýðheilsu og útivist og
loftslagsmál, svo nokkur mikilvæg
atriði séu nefnd. Jafnframt eru
þar tillögur um gerð heildstæðrar
landsáætlunar í skógrækt, sem
framtíðar stjórntækis til að vinna
að framgangi stefnumörkunarinnar.
Stefnumörkun um skóga og
skógrækt á Íslandi er að finna á
ýmsum stöðum; í lögum og reglu-
gerðum, áætlunum og alþjóða-
samningum, en hana er ekki hægt
að finna með heildstæðum hætti á
aðgengilegu formi. Með greinar-
gerðinni er ætlunin að bæta úr með
þvi að draga saman og leggja fram
heildarstefnu í skógræktarmálum.
Stefnumörkun um skógrækt
afhent ráðherra
Dreifnám hefjist á Blönduósi
á komandi hausti
Austur-Húnavatnssýsla:
Vilja sameina öll
sveitar félög í sýslunni
Bæjarráð Blönduósbæjar hefur
tekið undir sjónarmið sveitar-
stjórnar Húnavatnshrepps um
að raunhæfara sé að stefna
að sameiningu allra sveitar-
félaga í Austur-Húnavatnssýslu
heldur en Blönduósbæjar og
Húnavatnshrepps eingöngu.
Bæjarráð ætlar að leita eftir stuðn-
ingi og aðkomu annarra sveitar-
félaga í sýslunni um viðræður.
Bæjarstjórn Blönduósbæjar sendi
sveitarstjórn Húnavatnshrepps bréf
í síðasta mánuði þar sem óskað var
eftir samstarfi um að unnin yrði úttekt
á kostum og göllum þess að sameina
sveitarfélögin, en Blönduósbær og
Húnavatnshreppur hafa nú þegar
samstarf um mörg verkefni og hafa
þau starfað náið saman í mörg ár.
Bréfið var tekið til umfjöllunar á
sveitarstjórnarfundi Húnavatnshrepps
fyrr í þessum mánuði og telur
hreppsnefnd það raunhæfari kost
að skoða stærri sameiningu, svo
sem sameiningu allra sveitar félaga
í Austur-Húnavatnssýslu.
Á bæjarráðsfundi Blönduósbæjar
á dögunum var tekið fyrir svar-
bréf Húnavatnshrepps um ósk
Blönduósbæjar um samstarf
við skoðun á kostum og göllum
sameiningar sveitarfélaganna.
Bæjarráð tók undir sjónarmið
Húnavatnshrepps og samþykkti
að leita eftir stuðningi og aðkomu
annarra sveitarfélaga í Austur-
Húnavatnssýslu um viðræður um
sameiningu Austur-Húnavatnssýslu
í eitt sveitarfélag.
Frá vinstri: Guðmundur Geir Gunnarsson mjólkurbússtjóri og verðlaunahafarnir, Inga Birna Baldursdóttir og Karel G. Sverrisson,
Seli Rangárþingi eystra, Gunnlaugur Magnússon og Áslaug Bjarnadóttir, Miðfelli 1 Hrunamannahreppi, Birkir A. Tómasson
og Bóel Anna Þórisdóttir, Móeiðarhvoli Rangárþingi eystra, Samúel U. Eyjólfsson, Bryðjuholti Hrunamannahreppi, Eiríkur
Jónsson, Gýgjarhólskoti Bláskógabyggð og Runólfur Sigursveinsson ráðunautur. Myndir / MHH
Kúabændur fjölmenntu á fundinn, sem var haldinn í Árhúsum á Hellu.
PharmArctica á Grenivík:
Reisir 350 fermetra viðbyggingu
vegna aukinnar starfsemi
Hafist verður handa í vor við að
reisa um 350 fermetra viðbyggingu
við húsnæði lyfjafyrirtækisins
PharmArctica á Grenivík.
Fyrirtækið hefur verið starfandi
í bænum í áratug og er í um 200
fermetra húsnæði sem fyrirtækið
er búið að sprengja utan af sér,
skortur á rými er farinn að hamla
starfseminni enda hefur umfangið
aukist með árunum.
Viðsnúningur í rekstri
S i g u r b j ö r n J a k o b s s o n ,
framkvæmdastjóri PharmArctica,
segir að rekstur fyrirtækisins hafi
gengið vel að undanförnu. Það var
formlega stofnað árið 2002 en tók
til starfa á árinu 2003. Hann segir
að fyrirtækið hafi verið rekið með
tapi öll árin nema hvað viðsnúningur
hafi orðið í rekstri á liðnu ári og
hafi þá PharmArctica skilað hagnaði
í fyrsta sinn frá því að fyrirtækið
var stofnað. „Við höfum bæði
hagrætt í okkar rekstri og eins
hefur verkefnum fjölgað,“ segir
Sigurbjörn.
Hjá fyrirtækinu starfa alls
níu starfsmenn, þar af er einn
lyfjafræðingur, einn líffræðingur og
einn líftæknir, en starfsemi þess er
mikil lyftistöng fyrir byggðarlagið
og atvinnulífið í Höfðahverfi
fjölbreyttara að sögn Sigurbjörns.
Lyf, snyrtivörur og fæðubótaefni
PharmArctica framleiðir lyf,
snyrtivörur og fæðubótarefni en
hefur einnig í verktakavinnu tekið
að sér að framleiða, fylla á og pakka
vörur fyrir önnur fyrirtæki.
Félagið hefur lyfjaframleiðsluleyfi
til að framleiða forskriftarlyf en það
sérhæfir sig einnig í framleiðslu
á blautvörum, m.a. kremum,
mixtúrum, smyrslum og áburðum.
Árið 2010 hóf fyrirtækið framleiðslu
á vítamínum með DC-slætti.
PharmArctica er í eigu Sæness,
Sparisjóðs Höfðhverfinga og
Jónínu Freydísar Jóhannesdóttur
lyfjafræðings. /MÞÞ