Bændablaðið - 07.02.2013, Page 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
„Það tók mig sjö ár að smíða hana.
Þetta er tvíþekja og er hönnun hennar
frá því um 1960 en hún heitir TF-BAY,
Baby Great Lakes. Ég er aðili í
félagi áhugamanna um heimasmíð,
Flugsmíð, sem er ábyrgur aðili
gagnvart Flugmálastjórn og er aðili
að alþjóðasamtökum heimasmiða.
Það eru margir tugir manna í þessu
félagi hérlendis og mikil gróska í
heimasmíði flugvéla og í viðgerðum,“
segir Albert.
Eins og að byggja einbýlishús
Vélarnar sem smíðaðar eru heima má
ekki nota í atvinnuskyni en leyfilegt
er að fljúga með farþega í þeim. Ef
51 prósent flugvélarinnar er smíðað
heima flokkast hún undir heimasmíði.
„Ég kaupi í rauninni teikningu
frá Bandaríkjunum og síðan ber ég
ábyrgð á því sjálfur hvað ég nota
í hráefni. Maður heldur sérstaka
smíðadagbók og síðan kemur
eftirlitsmaður frá félaginu Flugsmíð
sem tekur út hjá manni verkið. Ég má
til dæmis ekki loka hlutum fyrr en
hann kemur og yfirfer alla hluti. Við
reynum að sýna ábyrgð og vera ekki
með galgopahátt,“ útskýrir Albert og
segir jafnframt;
„Í heimasmíðinni þarf smiðurinn
í samvinnu við sinn eftirlitsmann að
votta að efnið sem í hana er notað sé
hæft. Bygging einnar flugvélar er
ekki minna verk en að byggja heilt
einbýlishús, það fara á bilinu tvö til
sjö þúsund vinnustundir í verkið, það
fer eftir því hversu flókin vélin er.
Það er mikil bylting með tilkomu
netsins að standa í þessu því ég
panta frá Kaliforníu hluti í flugvélina
sem eru komnir upp að dyrum hjá
mér fjórum dögum síðar. Hér áður
var eingöngu hægt að styðjast við
faxtæki og allt tók mun lengri tíma.
Það er mikið um að menn geri upp
gamlar vélar, það er mikil vakning
í því eins og menn gera upp gamlar
vélar og bíla.“
Maður verður að taka áhættu
Albert hefur flogið á tvíþekjunni
um allt land og nú er önnur vél í
smíðum, grindin klár og annar
vængurinn langt kominn en þó er
enn langt í land með að hann geti
hafið sig á loft á nýja gripnum, sem
er að hans sögn mun hraðskreiðari
en sú fyrri.
„Þessi vél er ansi ólík þeirri fyrri,
þessi er svokölluð tandem-vél, sem
þýðir að menn sitja ekki hlið við
hlið, heldur einn fyrir framan og
hinn fyrir aftan. Þetta er Beryl-týpa
með einum væng og er teiknuð af
Fransmanninum Claudé Piel. Það er
ekkert því til fyrirstöðu að hanna sína
eigin vél, það þarf bara að hafa eftir-
litsaðila sem fylgjast með ferlinu.
Þungamiðjan verður að vera í lagi,
það er aðalatriðið Það er allt öðru-
vísi að fljúga eigin vél þegar maður
er búinn að basla og nostra við þetta
í svona langan tíma. Maður þekkir
hverja skrúfu og maður fer náttúrlega
ekki á loft nema að maður treysti
tækinu og viti að það virkar. Vélin
leyfir manni ekki mistök en maður
verður að taka áhættu, annars er ekk-
ert gaman að því,“ segir Albert og
víkur talinu að þessum eldmóði sem
hann er haldinn;
„Þetta er baktería sem engin
lækning er við, það er eins og með
hestamennskuna. Ég vitna í orð
gamals manns sem spurður var út í
neftóbaksnotkun sína, sem mér finnst
eiga vel við í mínu tilfelli; „Þetta er
eins og einhver árátta og ég er viss
um að ef ég hætti þessu, þá byrja ég
á einhverju enn verra.“ /ehg
Aðalfundur
Aðalfundur landssamtaka landeigenda á
Íslandi verður haldinn 14. febrúar á Hótel Sögu
í salnum Kötlu á annarri hæð og hefst kl. 13:00.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 5. gr.
samþykktar félagsins
2. Málþing kl. 16:00
Stjórnarskráin og eignarrétturinn
Málþinginu stýrir Guðni Ágústsson.
Frummælendur
Karl Axelsson, hæstarréttarlögmaður
Ari Teitsson, varaformaður stjórnlagaráðs
Rúnar Pétursson, hæstaréttarlögmaður
Gert er ráð fyrir að málþingi ljúki kl. 18
Fundurinn er öllum áhugamönnum um málefnið opinn.
Hér má sjá grindina að nýju vélinni. Mynd / ehg
Albert við einn af spöðum vind-
myllunnar sem hann smíðaði fyrir
nærri 30 árum. Mynd / ehg
Sjálfvirkur spunarokkur úr smiðju föður Alberts, Sigurjóns Kristjánssonar,
sem hann smíðaði árið 1953. Mynd / ehg
Einn af fjölmörgum rokkum sem
Albert hefur smíðað.
Framleiðum
Vélboða mykjudreifara
í mörgum stærðum
Heimasíða: www.velbodi.is
Sunbeam-Oster fjárklippur
Sunbeam-Oster fjárklippur
Varahlutaþjónusta og sala á fjárklippum.
sími: 696-1050 netfang: oksparesimnet.is