Bændablaðið - 07.02.2013, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Orkumál
Garðyrkjubændur hafa þráfald-
lega gagnrýnt að fá ekki ívilnun
sem stór kaupendur við raforku-
kaup til samræmis við aðra stór-
notendur á landinu. Bændur og
almenningur á landsbyggðinni
hafa líka gagnrýnt orkusölu-
fyrirtækin fyrir hátt raforkuverð,
sér í lagi þar sem nota þarf raforku
til húshitunar. Nú síðast hækkaði
RARIK gjaldskrá sína í dreifbýli
um 8% en engin hækkun varð í
þéttbýli.
Eftir að skilið var á milli
raforkuframleiðslu og dreifingar
sýna tölur að dreifing raforkunnar
hefur hækkað stórlega, einkum
í dreifbýli. Þetta er þvert á fögur
fyrirheit um að aðskilnaðurinn ætti
að leiða til aukinnar samkeppni á
markaði þó að allir vissu að engar
forsendur væru hér á landi fyrir slíkri
samkeppni. Landsnet og RARIK eru
í dag í algjörri einokunaraðstöðu
sem dreifingarfyrirtæki og örfá
fyrirtæki eru síðan að selja orku
inn á þau dreifikerfi og þau eru að
langstærstum hluta opinber fyrirtæki.
Samkvæmt úttekt sem
verkfræðistofan Efla hefur tekið
saman, um þróun raforkunotkunar
gróðurhúsa og raforkuverðs, má rekja
hækkun á raforku frá árinu 2005
að langmestu leyti til stórhækkaðs
dreifingarkostnaðar. Er sú hækkun
langt umfram neysluverðsvísitölu.
Sala á raforku frá framleiðendum
hefur aftur á móti ekki haldið í
við vísitölu neysluverðs. Helstu
niðurstöður frá 2005 eru að vísitala
neysluverðs hækkar um 68%, orkan
hækkar um 38%, dreifing í þéttbýli
hækkar um 87% og dreifing í
dreifbýli hækkar um 123%. Því er um
raunlækkun á sjálfri orkunni að ræða.
Ljóst er að RARIK sækir sér
auknar tekjur með verulegri hækkun á
dreifingu bæði í þéttbýli sem dreifbýli
en þó sker hækkun í dreifbýli sig
algjörlega úr og er næstum tvöföld
hækkun vísitölunnar. Á það skal
minnt að lítilsháttar samkeppni ríkir í
orkuframleiðslu en það er varla hægt
að segja um dreifinguna.
Í nokkru jafnvægi við vísitölu
fram að hruni
Fram að hruni hafði verðskrá RARIK
næstum fylgt þróun vísitölu, en með
frávikum þó. Athygli vekur að í
miðju hrunástandinu verða mark-
vissar hækkanir sem hefjast með
15% hækkun 1. janúar 2009. Frá
þeim tíma hefur heldur betur gliðnað
á milli vísitölu og gjaldskrár.
RARIK á sér óneitanlega
nokkra málsvörn í þessu máli, sem
fyrirtækið notar reyndar sem rök
fyrir þessum miklu hækkunum. Það
er að raungildi niðurgreiðslna sem
lofað var í framhaldi af breytingum
á raforkulögum 2003 hefur lækkað.
Orkunotkun garðyrkjunnar hefur
aldrei verið meiri en 2011
Áhrif efnahagshrunsins á
raforkukaup garðyrkjunnar koma
glöggt fram í úttekt Eflu. Athyglisvert
er að á árinu 2009, þegar RARIK
hækkar verð um 15%, var 4,8%
samdráttur í raforkunotkun við
garðyrkju. Það var í fyrsta skipið í
sögu ylræktar hér á landi sem notkun
minnkaði. Síðan kom til lækkunar á
niðurgreiðslum á dreifingarkostnaði
sem kom til framkvæmda mánuði
síðar, eða 1. febrúar. Á árinu 2010 fór
raforkunotkun garðyrkjunnar aftur
að aukast, eða um 3%, og hefur hún
aldrei verið jafn mikil og árið 2011,
eða 73.422 MWst, samanborið við
68.710 MWst árið 2007 og 70.476
MWst árið 2008.
Ef miðað er við orkukaup og
verð í upphafi árs 2005 hefur upp-
hæð orkukaupa hækkað um 113%
samkvæmt úttekt Eflu. Á sama tíma
hefur orkunotkunin í greininni aukist
um 42%.
Niðurgreiðslur halda ekki í
við verðlag
Niðurgreiðslur ríkisins vegna auk-
innar notkunar hafa ekki haldist í
hendur við verðlag. Ef áætluðu fram-
lagi hefði verið breytt í raunvirði við
upphaf árs 2005 hefðu niðurgreiðslur
vegna aukinnar notkunar þurft að
hækka um heilar 37 milljónir króna
fram til 2011. Vegna gjaldskrárhækk-
ana RARIK hefði síðan þurft að auka
niðurgreiðslur um 116 milljónir
króna til loka árs 2011.
Samkvæmt úttektinni var hlutfall
niðurgreiðslna ríkisins vegna 73.424
MWst raforkukaupa í garðyrkju og
ylrækt á árinu 2011 samtals 35,5%
en kostnaðarhlutdeild garðyrkjunnar
var 64,5%.
Ekki hefur verið ljáð máls á
því að garðyrkja og ylrækt nytu
stórkaupendaafsláttar við orkukaup
í samræmi við álverin. Borið hefur
verið við að þar skipti meðaltalsnýting
og söluöryggi raforkunnar öllu máli.
Meðaltalsnýting stóriðjunnar er um
8.700 stundir á ári en garðyrkjunnar
um 6.000 stundir og hefur farið
vaxandi. Munurinn liggur fyrst og
fremst í minni notkun garðyrkjunnar
á raforku til lýsingar á sumrin. Eigi
að síður virðist augljóst að um
stórnotendur sé að ræða.
Garðyrkjubændur hafa nú
miklar áhyggjur af áformum
Landsvirkjunar, sem sækir það fast
að fá að leggja sæstreng til Evrópu.
Ef þau áform verða að veruleika
hefur Samband garðyrkjubænda bent
á að raforkuverð muni stórhækka,
sem yrði dauðadómur yfir garðyrkju
og ylrækt á Íslandi. Skýrsla Eflu
virðist staðfesta að sá ótti sé ekki
ástæðulaus miðað við þróunina frá
2005. /HKr.
EFLA verkfræðistofa með úttekt á þróun raforkuverðs til garðyrkju og ylræktar:
Dreifing á raforku hefur hækkað langt
umfram neysluverðsvísitölu
Orkusetur – Orkueinkunn húsnæðis:
Hvaða einkunn fær húsnæði þitt?
Er húsnæði þitt að nota of mikla
orku til hitunar? Þetta er spurning
sem nauðsynlegt er að spyrja
áður en hafist er handa við að
reyta hár sitt yfir síhækkandi
orkureikningum.
Eins og áður hefur verið bent
á eru tvær leiðir til að lækka
orkureikninginn. A) Að berjast gegn
hverri tilraun orkufyrirtækja til að
hækka verð á kWst. B) Reyna að
draga úr orkunotkun og þar með
orkukostnaði. Ólíklegt verður
að teljast að einstaklingar geti
haft umtalsverð áhrif á verðskrár
orkufyrirtækjanna en hins vegar er
ýmislegt hægt að gera til að draga
úr orkunotkun án þess að skerða
lífsgæðin nokkuð.
Kröfur íbúa varðandi húshitun eru
frekar einfaldar, þ.e. að innihitastig
sé í kringum 20 gráður allan ársins
hring. Með öðrum orðum eru sömu
kröfur gerðar til hvaða húsnæðis
sem er en einhverra hluta vegna er
orkuþörfin, og þar með kostnaðurinn,
oft mismunandi milli húsa. Að
sjálfsögðu þarf stórt húsnæði
meiri orku til hitunar en lítið og
þess vegna er mikilvægt að bera
saman orkuþörf á hvern upphitaðan
fermetra. Fjöldi kWst/m2 er lítið
notað og í byggingarfræðunum er
jafnan talað um upphitunarþörf á
rúmmetra. Gallinn við rúmmetra er
að almenningur notast sjaldan við þá
stærð á meðan allir vita hversu stórt
húsnæði er í fermetrum. Orkusetur
hefur sett upp reikniverk þar sem
hægt er að finna orkunotkun á m2 og
hvaða einkunn húsnæði þitt fær með
tilliti til orkunotkunar til upphitunar.
Kerfið er einkum hugsað fyrir íbúðir
með rafhitun, enda er orkukostnaður
hjá þeim hópi mun meiri en annarra.
Einkunnakerfið er sett upp í tengslum
við evrópska Promise-verkefnið sem
Orkusetur fer fyrir hér á landi.
Kerfið er einfalt og það eina sem
húseigandi þarf að gera er að setja
inn fermetrafjöldann og velja hvort
húsnæði er einbýli, fjölbýli eða
raðhús. Því næst setur hann inn árlega
orkunotkun samkvæmt orkureikningi
(ef djúpt er á orkureikningnum er
um að gera að hafa samband við
orkusalann). Niðurstaðan kemur
upp sem orkunotkun á fermetra og
einkunn á bilinu A-G þar sem A þýðir
afar góð orkunýtni en G slæm. Notast
er við orkumerkingastaðla frá Noregi,
sem falla ágætlega að íslenskum
aðstæðum. Einkunnin gefur sterkar
vísbendingar um stöðu orkunotkunar
og ef íbúðin fær lága einkunn er
líklegt að svigrúm til orkusparandi
aðgerða sé umtalsvert. Með ýmsum
aðgerðum má bæta þessa einkunn, allt
frá ókeypis ráðum til umfangsmeiri
fjárfestinga. Um það verður nánar
fjallað síðar.
Orkueinkunnina má finna á
vef orkuseturs, www.orkusetur.
is nánar tiltekið, orkusetur.is/page/
husnaedisorkueinkunn
Ylræktin á Íslandi notar mikla raforku við sína framleiðslu. Hér er Hafberg Þórisson í Lambhaga, sem nýverið er
búinn að taka í notkun enn eina stækkunina á sínum húsakynnum. Mynd / HKr.
Vísitala neysluverðs hækkar um
Orkan hækkar um
Dreifing í þéttbýli hækkar um
Dreifing í dreifbýli hækkar um
Heimild: EFLA
Raforkunotkun við garðyrkju
notkunarflokkur 0116
Ár Notkun Auking
Heimild: EFLA
Áætlað framlag ríkisins til lækkunar kostnaðar
við lýsingu í gróðurhúsum. Miðað við að breytingar
hefðu orðið samkvæmt raunvirði frá 2005
Þáttur Kostn. Mkr.
Framlag ríkisins við upphaf árs 2005 99,5
Aukning til 2011 vegna aukins markaðar 37,1
Aukning til loka 2011 vegna verðhækkana 116,1
Alls 252,7
Heimild: EFLA
Ástralska orkufyrirtækið Linc
Energy staðfesti fimmtudaginn
24. janúar að starfsmenn
fyrirtækisins hefðu
fundið risavaxið
olíusvæði í eyðimörk í
suðurhluta Ástralíu,
í Arckaringa-
sigdældinni. Þarna
er um að ræða
olíu sem bundin
er í olíuleirstein (e.
oil shale) og áætlar
fyrirtækið að þar leynist
sem svarar 103 til 233
milljarða tunna af olíu. Áætlað
er að hægt verði að hefja vinnslu
á svæðinu undir lok ársins 2014.
Í frétt um málið í Dagbladet í
Noregi segir að verðmæti þessarar
olíu gæti því orðið á við 30-falda
stærð norskra olíusjóðsins. Þessi
olíufundur staðfestir að mun meira
sé um olíu í jörðu en áður var
talið. Bandaríkjamenn telja sig
þegar hafa fundið sem svarar 2-3
billjónum tunna af olíu í Nevada-
ríki. Bandaríkjamenn hafa það
þó fram yfir Ástrala við vinnslu á
olíuleirsteini að þar er hægar
um vik hvað alla innviði
við slíka vinnslu varðar.
Talið er að það kosti
Ástrala um 50% meira
að bora eftir olíunni
í óbyggðum hjá sér
en Bandaríkjamenn
í Nevada.
Þessi olíufundur
e r s é r s t ak lega
athyglisverður í ljósi
þess að ekki er lengra síðan
en 2008 að vísindamenn lýstu því
yfir að olíubirgðir í jörðu í Ástralíu
myndu ekki endast nema í áratug
í viðbót miðað við núverandi
framleiðslustig. Martin Ferguson,
orkumálaráðherra Ástralíu, sagði
þá mjög mikilvægt að tryggja
olíubirgðir og auka rannsóknir til
að koma í veg fyrir 2.000 milljarða
dollara orkuvöruskiptahalla innan tíu
ára. Virðast Ástralar nú geta varpað
öndinni léttar. /HKr.
Gríðarleg olía finnst í Ástralíu
– voru á góðri leið með að tæma þekktar olíulindir
Frá borsvæði Linc Energy á Arckaringa-svæðinu í sunnanverðri Ástralíu.