Bændablaðið - 07.02.2013, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Faglega unnar áburðaráætlanir
bæta afkomu bænda
Þessa dagana er áburðarframboð
áburðarsalanna að skýrast og tími
til kominn að huga að áburðar-
pöntun. Hjá mörgum bændum
er um að ræða stærsta árlega
kostnaðarliðinn í búrekstrinum
og því mikilvægt að vanda vel til
þess hvernig að honum er staðið.
Ráðunautar hafa um árabil veitt
mikilvæga ráðgjöf á þessu sviði og
án nokkurs vafa haft þau áhrif að
afkoma margra bænda er betri en
ella. Það eru þó enn of margir sem
fara á mis við þessa ráðgjöf, þó allar
forsendur mæli með henni.
Ef við horfum á einfalt dæmi til
að setja hlutina í samhengi:
Gefum okkur að keyptur sé
áburður fyrir 2 milljónir og það
taki ráðunaut um 2 tíma að vinna
áburðaráætlun, þá er kostnaðurinn
við faglegan undirbúning ráðunautar
að þessum stórinnkaupum u.þ.b.
0,5% af heildarkostnaðinum.
Faglega unnin áburðaráætlun
leiðir til þess að keyptar eru
áburðartegundir sem falla sem best
að aðstæðum á hverjum stað, sem
verður til þess að bætt afkoma búa
getur hlaupið á hundruðum þúsunda.
Vert er að vekja athygli á því að
ávinningurinn getur vissulega falist
í minni kostnaði við áburðarkaup,
en þó ekki síst í því að hámarka
magn og gæði uppskerunnar, sem
stuðlar að bættu heilbrigði og meiri
og betri afurðum. Með öðrum orðum
getur góð áburðaráætlun dregið
úr fóðurbætiskaupum og lækkað
dýralækniskostnað.
RML hefur marga ráðunauta sem
taka að sér að vinna áburðaráætlanir
eða aðstoða bændur við að gera það
sjálfir og geta bændur sett sig beint
í samband við þá. Ráðunautar vinna
nú á landsvísu.
Eftirtaldir eru til þjónustu reiðu-
búnir:
Anna Lóa Sveinsdóttir
(als@bondi.is), 471-1226
Anna Margrét Jónsdóttir
(amj@bondi.is), 451-2602
Eiríkur Loftsson
(el@bondi.is), 455-7100
Guðmundur Helgi
Guðmundsson (ghg@bugardur.
is), 460-4477
Kristján Bjarndal Jónsson
(kbj@bssl.is), 480-1800
Kristján Ó Eymundsson
(koe@bondi.is), 451-2602
María S. Jónsdóttir
(msj@bondi.is), 464-2491
Sigríður Ólafsdóttir
(so@bssl.is), 480-1800
Ingvar Björnsson (eftir 25. feb)
(ib@bugardur.is), 460-4477
Sigurður Jarlsson
(sj@bondi.is), 456-3773
Sigurður Þór Guðmundsson
(sthg@bondi.is), 895-0833
Til sölu jörðin
Brattavellir í
Dalvíkurbyggð
Á Brattavöllum er rekið myndarlegt kúabú með um 150 þúsund
lítra framleiðslurétti í mjólk og er jörðin í fullum rekstri. Nánari
upplýsingar í síma 550-3000 og á www.fasteignamidstodin.is
Mývatn Open – Hestar á ís
– og sagnaskemmtun á Sel-Hótel Mývatni
Hið feykivinsæla hestamót
Mývatn Open – Hestar á ís verður
haldið 22. og 23. febrúar. Þetta
mót er haldið í tíunda skipti
á Stakhólstjörn við Skútusaði
og er samvinnuverkefni milli
Hestamannafélagsins Þjálfa og
Sel-Hótel Mývatns.
Hestamannafélgið Þjálfi
býður í reiðtúr út á frosið Mývatn
á föstudeginum og er öllum
hjartanlega velkomið að taka þátt í
því að kostnaðarlausu.
Sel-Hótel Mývatn býður knöpum
upp á samlokur og heitt kakó út í
eyju. Síðan hefst mótshaldið á
laugardeginum sem endar með
hestamannahófi á Sel-Hótel Mývatni
um kvöldið.
Dagskrá
Föstudagur 22. febrúar
Hópreið um Mývatn kl. 16.30 -
18.30 (allir velkomnir)
Laugardagur 23. febrúar
Kl. 10.30 Tölt B
Kl. 13.00 Tölt A
Stóðhestakeppni
Skeið
Verðlaunaafhending yfir kaffihlað-
borði í Selinu
Kl. 19.30 Húsið opnar fyrir
stemningu kvöldsins,
Videosýning frá afrekum dagsins
á breiðtjaldi
Kl. 20.30 Hestamannahóf hefst –
ýmsar uppákomur – öllum opið.
Kl. 23.30 Kráarstemning og lifandi
tónlist fram á nótt
Á sunnudeginum stendur Sel-
Hótel Mývatn fyrir sagnagleði á
konudag, fyrsta dag góu, þann 24.
febrúar. Góðu heilli hefur sagnahefð
á undanförnum árum verið að
endurvinna sér sess í mannlífi sem
hún sannarlega á að skipa. Í öllum
því fargani miðlunarmöguleika sem í
boði eru í samtímanum, þrívíddarbíói,
sjónvarpi og bíó hefur vel sögð saga
eitthvert sérstakt ómetanlegt gildi.
Góður sagnamaður fangar áheyrendur
og heldur athyglinni allt til enda. Á
sagnagleðinni á konudaginn verða
því tveimur góðum hefðum haldið
á lofti. Annars vegar þeirri að halda
upp á fyrsta dag góu og hins vegar
sagnahefðinni.
Eiginmönnum, unnustum og
vinum gefst þar tækifæri til að bjóða
konum til skemmtunar og veislu. Það
er ekki eingöngu andleg næring sem
verður boðið upp á, heldur einnig
veglegur dögurður. Þetta er í annað
sinn sem Sel Hótel Mývatn stendur
fyrir hátíð af þessu tagi á konudag.
Hátíðin sem haldin var fyrir ári
mæltist afar vel fyrir, þar komu
saman fræknir sagnamenn bæði úr
héraði og lengra að komnir. Fullt
var út úr dyrum og sagnamennirnir
glöddu gesti með sögum af ýmsu tagi
í hátt á annan klukkutíma.
Meðal sagnamanna eru Jóhannes
Sigmundsson, fyrrverandi kennari
og ferðaþjónustubóndi, Syðra-
Langholti í Hreppum, og Arngrímur
Geirsson, fyrrverandi kennari og
bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit.
Við viljum hvetja konur sérstaklega
að mæta í upphlut í tilefni af
konudeginum. Allar konur fá gjöf.
Mætum og höfum gaman saman.
Athugið að sagnaskemmtunin er
í Félagsheimilinu Skjólbrekku og
hefst kl. 12.00.
Frekari upplýsingar er að finna á
www.myvatn.is eða í síma 464 4164.
Magnús Magnússon frá Íbishóli á
graðhestinum Vafa frá Ysta-Móum
Frá hópreiðinni á Mývatn Open 2012, en um 40-50 manns tóku þátt í þeirri
Bændablaðið
Með yfirburðalestur á landsbyggðinni (Samkvæmt lestrarkönnun Capacent)
Kemur næst út 21. febrúar
Smáauglýsingar 56-30-300