Bændablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
„Bændur eiga að sinna sínum
eigin smitvörnum. Það verða ekki
aðrir til þess fyrir þá. Við höfum sem
betur fer ekki lent í stórvægilegum
faröldrum undanfarna áratugi fyrir
utan faraldra í hrossum, við búum
við fáa bráðsmitandi sjúkdóma.
Veiruskita í nautgripum er þó einn
slíkur sem veldur vandræðum en
mér finnst bændur of áhyggjulausir
almennt varðandi þetta. Við búum
reyndar við þannig aðstæður í búskap
að þetta getur verið mjög erfitt, alla
vega í sauðfjárbúskapnum. Sauðfé
fer út um allt og blandast hundruðum
annarra hjarða. Svo er öllu þjappað
saman í réttum svo að hættan er á
að fjöldi fjár smitist ef eitthvert smit
er á ferðinni. Þessu verður auðvitað
ekki breytt svo einfaldlega. Ég spyr
hins vegar, ef maður væri með mjög
verðmætan stofn, myndi maður þá
hætta á þetta? Til dæmis með dýr
hross í stóði?
Við höfum mest þurft að berjast
við sjúkdóma hér á landi sem hafa
langan meðgöngutíma, eins og
garnaveiki og riðuveiki. Við verðum
að berjast gegn þeim sjúkdómum
áfram. Það þarf að halda áfram að
bólusetja gegn garnaveiki, í það
minnsta þar sem ástæða er til.
Varðandi riðuveikina ættum við
að halda áfram á sömu leið og verið
hefur. Það hefur náðst verulegur
árangur með riðuna og ég sé því ekki
ástæðu til að breyta út af því, nema
til komi ný þekking.“
Sigurborg segist ekki eiga von á
stórfelldum breytingum á starfsemi
embættis yfirdýralæknis þó að hún
sem ný í embætti muni væntanlega
setja sitt mark á starfið. „Það sem
ég sé fyrir mér er að efla vitund
fólks fyrir bættri meðferð á dýrum
og einnig varðandi sjúkdómavarnir.
Það snýr auðvitað fyrst og fremst
að bændum, að verja sinn bústofn,
en einnig að almenningur og allir
sem umgangist dýr séu á vaktinni.
Heilbrigðisstarfsfólk dýra,
frjótæknar, klaufskurðarmenn og
aðrir sem vinna með dýr hefur mér
þótt of passívir. Það þarf að virkja
þetta fólk til að miðla upplýsingum
og fræða það svo það skipti sér af
málum, sjái fólk að eitthvað sé ekki
eins og það á að vera.“
Fólk á að vera óhrætt að láta vita
Sigurborg kallar eftir þátttöku allra
varðandi bætta dýravelferð. Raddir
þeirra sem ekki séu sáttir við þá
þjónustu sem er veitt verði að
heyrast, eigi að verða breytingar á.
Spurð hvort þetta eigi við um óánægju
með breytingar á dýralæknakerfinu
sem urðu árið 2011 og voru mikið
gagnrýndar svarar hún því að það sé
meðal þess sem verði að fá upplýsingar
um frá notendum þjónustunnar.
„Í upphafi höfðu menn áhyggjur
af því að svæði þjónustudýralækna
væru of stór og of tímafrek yfirferðar.
Það voru hnökrar á því kerfi fyrst
en mér finnst að kvörtunum vegna
slakrar þjónustu hafi fækkað. Það
koma ekki margar kvartanir vegna
þessa núna en það er ekki þar með
sagt að þessi stærð þjónustusvæðanna
sé ekki vandamál. Ef svo er verða
dýraeigendur að tilkynna um hnökra
á þjónustunni til stofnunarinnar svo
hægt sé að bregðast við.
Til að hægt sé að meta stöðuna þarf
að fara yfir staðreyndir. Ef það reynist
þannig að dýravelferð sé ekki tryggð,
vegna stærðar svæðanna, þá verður
að breyta kerfinu. Það hins vegar veit
ég ekki núna, það eru fyrst og fremst
bændur sem verða að koma fram
sínum skoðunum og tilkynningum.
Ég vil á sama hátt hnykkja á því
að almenningur hefur greiða leið til
að tilkynna um ef verið er að fara
illa með dýr eða eitthvað megi betur
fara. Það er hægt að gera í gegnum
heimasíðu MAST og senda skilaboð
þar í gegn. Sé tilkynnt um eitthvað
sem ekki er í lagi með þessum hætti
er gengið í málið. Fólk á að vera
óhrætt við að láta vita.“ /fr
! "
# $
%%%" "
!
"" #$%%#%%
&
'"
#
&
()
$
* '+' "
#$
,-."
'"
*
'"
'"
/0
&-
()
$
* '+' "
#$
.,-"
'"
*
'"
#$
,."&-
'"
$
'" #$
,".-
'"
$
'"
Varmadælur Námskeið 15. febrúar Höfn Hornafirði
Skúlatún 2 - 105 Reykjavík
Sími 590 6400 - Fax 590 6401
idan@idan.is - www.idan.is
NÁMSKEIÐ FYRIR LAGNAMENN OG ÁHUGAMENN UM ORKUSPARNAÐ
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
Á IDAN.IS
Nánari upplýsingar og skráning á
www.idan.is eða í síma 590 6400
Lausnir fyrir köld svæði.
Varmadælur geta sparað verulegan kostnað við kyndingu húsa á
köldum svæðum. Á þessu námskeiði er í boði að afla sér þekkingar á
varmadælum og notkun þeirra í byggingum. Farið í uppbyggingu og
gerðir varmadæla, tengingar, stillingar og lokafrágang. Námskeiðið er
haldið í samvinnu við Orkusetur og Verklagnir ehf.
Kennarar: Sigurður Friðleifsson frá Orkusetri.
Þór Gunnarsson tæknifræðingur frá Ferli.
Gunnlaugur Jóhannsson,
pípulagningameistari og
Pétur Kristjánsson, sérfræðingur.
Staðsetning: Höfn í Hornafirði.
Tími: Föstudagur 15. febrúar kl. 13.00 – 18.00.
Fullt verð: 15.000 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.
Rá
ða
nd
i -
a
ug
lý
sin
ga
st
of
a
eh
f
BYLTING Í SÓTTHREINSUN
Sagewash sótthreinsikerfið
Hlutlaust efni sem drepur
bakteríur sem valdið geta
sýkingum, ásamt því að halda
tækjum, gólfi og veggjum
skínandi hreinum. Hafðu
samband við ráðgjafa KEMI
og fáðu nánari upplýsingar.