Bændablaðið - 07.02.2013, Page 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
fræða þá um staðhætti. Á leiðinni
vestur skall á norðanhríð með engu
skyggni en færi var gott og ráðherra
hafði góðan bílstjóra og öllu vanan.
Jónas hvatti þá til að halda áfram en
skutlaði mér til baka að Skálanesi.
Fundað var á Patró um kvöldið. Heim
kominn sagði ráðherrann að þetta
væru verstu vegir á landinu og úrbóta
væri þörf strax.
Í Framkvæmdafréttum Vega-
gerðarinnar var vegur á leiðinni
Þórisstaðir-Kraká auglýstur sem
næsta útboð árið 2008, en það féll
niður eins og annað þegar öll útboð
stöðvuðust.
Þann 20. maí 2008 sótti
Vegagerðin um framkvæmdaleyfi
fyrir áfanga II (Þórisstaðir-Kraká).
Hreppsnefnd Reykhólahrepps sam-
þykkti framkvæmdaleyfið og gaf það
út 16. júní. Skilyrði var að farin yrði
efri leið fyrir ofan Gröf í Þorskafirði.
Hreppsnefnd hafði fundað með
Gunnlaugi Péturssyni og fleiri land-
eigendum og taldi líkur á að sættir
yrðu um þá leið. Vegagerðin hafnaði
hins vegar þeirri leið án raka og gerði
ekkert til að ná samkomulagi.
Gunnlaugur og fleiri vísuðu
úrskurði Jónínu Bjartmarz til
dómstóla og unnu bæði í héraði og
fyrir Hæstarétti. Margir halda því
fram að dómurinn fjalli eingöngu
um lagatæknileg atriði í úrskurði
umhverfisráðherra en banni ekki
vegarlagninguna.
Síðan kom „Hrunið“ og allar nýjar
framkvæmdir stöðvuðust. Kláraður
var vegur í Kollafirði og nú síðast í
sumar vegur fyrir Skálanes að Kraká.
Áfanganum Þverá í Kjálkafirði-
Vatnsfjörður var lokið 2011.
Meðan á þeirri framkvæmd stóð
var örninn svo ósvífinn að verpa
og koma upp unga nokkrum tugum
metra ofan við vélaskrölt og læti.
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar, hafði gleymt
að láta örninn vita að þetta væri
bannað.
Útboð á leiðinni Eiði í Vattarfirði-
Þverá í Kjálkafirði var auglýst í
febrúar 2012. Í maí var samið við
Suðurverk og eiga verklok að vera
í september 2015. Farið er yfir
Mjóafjörð utarlega á 14 m dýpi um
fjöru með 160 m langri brú.
Í Kjálkafirði er vegur á 6 m dýpi
og 116 m brú. Að fara yfir firðina
utarlega á miklu dýpi margfaldar
efnismagn, brúarlengd og kostn-
að. Rökin fyrir leiðarvalinu yfir
Mjóafjörð voru þessi:
2,9 kílómetra stytting.
Lágmark 500 m frá arnarhreiðri.
Snjóþyngsli í Mjóafirði, sem eng-
inn kannast við sem til þekkir.
Milljarður króna í aukinn kostnað
er auðvitað smáaurar ef þessi
háleitu markmið nást. Jón Gunnar
Ottósson lendir í vanda á nýjan
leik ef örninn tekur upp á því að
verpa í námunda við veglínuna.
En þetta verður góður vegur og
væri gaman að eiga eftir að fara
hann.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra, ásamt heilum her
vegagerðar- og sveitarstjórnarmanna,
fundaði mikið um vegamál í héraðinu
sumarið 2011. Að loknum einum
slíkum fundi fékk ég að hitta þá
félaga dálitla stund. Afhenti ég þeim
skriflega, rökstudda tillögu um veg í
fjöruborði neðan við Teigsskóg. Ekki
veit ég hvort þeir hafa hent tillögunni
á leiðinni heim, en margir hafa tekið
undir þessa lausn.
Ögmundur var yfirlýsingaglaður
og vildi láta vita hver réði:
Enginn vegur yrði leyfður um
Teigsskóg.
Vegur kæmi yfir hálsana.
Rista ætti niður Ódrjúgsháls og
gera jarðgöng undir Hjallaháls.
Nota ætti núverandi veg á
Hjallahálsi a.m.k. næstu tíu árin.
Þetta yrði það sem kalla mætti
„vegur á tveimur hæðum“.
Fundahöld Ögmundar enduðu með
því að stór hluti íbúa í Vesturbyggð
og Tálknafjarðarhreppi var mættur á
fund á Patró. Ráðherrann og félagar
glöddust yfir góðri fundarsókn en
eftir yfirlýsingu heimamanna um að
nóg væri búið að funda gengu þeir af
fundinum og ráðherra sat eftir með
sveinum sínum.
Nú í sumar sendi Vegagerðin frá
sér loftmyndir af þrem leiðum, sem
fara ættu í umhverfismat. Þetta eru:
Leið I. Frá Kraká um Melanes,
yfir Gufufjörð, um Grónes,
yfir Djúpafjörð, á fjörum
austan Hallsteinsness, á ská
yfir Grenitrésnes og þaðan á
miklu dýpi yfir Þorskafjörð að
Laugalandi. Síðan um beitiland
á austurströnd Þorskafjarðar á veg
við Bjarkalund. Kostnaðaráætlun
9,7 milljarðar króna.
Leið H. Sama og I að Hallsteins-
nesi, síðan vestanvert á nesinu
inn að Barmi. Þaðan jarðgöng
undir Hjallaháls og síðan yfir
Þorskafjörð um Kóngavakir að
Kinnarstöðum. Kostnaðaráætlun
10,1 milljarður króna.
Leið D1. Um Melanes, yfir
tún og beitiland á Hofstöðum,
yfir miðjan Gufufjörð, um
Brekkuflóa, um skóglendi inn
á Ódrjúgsháls, yfir Hálsgil,
mjög djúpt, þaðan rist niður
Miðhúsabrúnir, mjög snjóþungar
(snjóflóðaupptök), um
Djúpadalseyrar og Mýrarland,
í jarðgöngum undir Hjallaháls
að Þórisstöðum og síðan yfir
Þorskafjörð um Kóngavakir að
Kinnarstöðum. Kostnaðaráætlun
9,1 milljarður króna. Náttúrustofa
Vestfjarða á að skila af sér
umhverfismati síðar í vetur.
Allir umræddir kostir hafa í för með
sér mikil neikvæð áhrif á náttúru og
líka á skilyrði til búskapar. Sauðfé á
fóðrum í Gufudalssveit í vetur mun
vera nálægt 1.500 á fjórum jörðum.
Beitiland vor og haust má ekki
skerða. Sama gildir um austanverðan
Þorskafjörð.
Ætti ég að gefa leiðum einkunnir
á skalanum 1-10 vegna skaða sem
þær myndu valda og einkunnin 10
táknaði mestan skaða, þá hlytu leiðir
I og D1 einkunnina 9 til 10 en leiðir
B1 og H einkunnina 5 til 6.
B-leið var ekki tekin með í
umhverfismat þó að hún sé á
aðalskipulagi. Vegagerðin sendi
land eigendum og sveitarstjórnum
loftmyndir af umræddum leiðum
og óskaði eftir athugasemdum.
Í júlí í sumar sendi sveitarstjórn
Reykhólahrepps Vegagerðinni tvær
ályktanir. Sú fyrri var krafa um að
B-leið yrði tekin með í umhverfismat
og jafnframt minnti sveitarstjórn á
skipulagsvald sitt. Hina geymi ég
að ræða.
Hafði sveitarstjórn ekkert við til-
lögur Vegagerðarinnar að athuga?
Landeigendur í austanverðum
Þorskafirði sendu Vegagerðinni eftir-
farandi athugasemdir:
Við erum því algerlega mótfallnir
að vegur verði lagður um land
Hofstaða, Hlíðar og Laugalands
samkvæmt leið I og teljum það
skjóta skökku við að leggja
til vegagerð þessa leið þegar
mun hentugra vegstæði býðst
samkvæmt leið B eða B1 yfir
Þorskafjörð hjá Kinnarstöðum
og út Hallsteinsnes.
Við teljum það einnig óverjandi
að ætla að leggja til leið I sem er
3,0 milljörðum dýrari en leið B
eða B1 og hvorki betri með tilliti
til umferðaröryggis né greiðfærni.
Með sömu rökum er óverjandi
að leggja til leið D1 sem er 2,4
milljörðum dýrari og fer þar að
auki áfram yfir Ódrjúgsháls.
Við gerum athugasemdir við að
í skýrsludrögunum er enginn
greinarmunur gerður á því hvort
jarðir á framkvæmdasvæðinu eru
í ábúð og/eða nýttar af ábúendum
og þeim jörðum sem eru hreinar
eyðijarðir til margra áratuga og
lítið eða ekkert nýttar nema til frí-
stundar. Við teljum nauðsynlegt
að mat sé lagt á þetta og bendum
á mikilvægi þess fyrir sveitar-
félagið að sem flestar jarðir séu
áfram í ábúð.
Á jörðinni Hofstöðum er föst
búseta, túnin nýtt til heyskapar
og úthagi til beitar, sem hvort
tveggja skerðist umtalsvert við
veglagninguna.
Undirlendi á jörðinni Hlíð, sem er
nýtt frá Stað, er mjög lítið, og ljóst
að vegur um land jarðarinnar mun
draga verulega úr nýtingarmögu-
leikum hennar. Þá skal vakin
athygli á því, að á jörðinni eru
skrásettar og friðaðar fornmenjar
samkvæmt þinglýstu friðlýsingar-
skjali fornmenjavarðar frá árinu
1930.
Á jörðinni Laugalandi er íbúðar-
hús sem er nýtt til sumardvalar,
undirlendi á jörðinni Laugalandi
er nýtt frá Árbæ.
Loks vekur það furðu okkar
sem íbúa í Reykhólahreppi, að
Vegagerðin skuli með því að
hafna leiðum B og B1 virða að
vettugi nýsamþykkt aðalskipulag
fyrir Reykhólahrepp, sem gerir
ráð fyrir að Vestfjarðavegur nr.
60 skuli einmitt lagður samkvæmt
þeirri leið.
Þann 3. september í haust sendi ég
„forsvarsmönnum samgöngumála“
bréf og krafðist þess að B-leið yrði
tekin með í umhverfismatið og farið
yrði eftir gildandi aðalskipulagi.
Ég benti á leið neðan Teigsskógar
og hvatti til þess að reynt yrði að
ná sáttum um B-leið. Næðist það
ekki bæri Alþingi skylda til að setja
sérlög er heimiluðu veginn. Kvittun
barst fyrir því að Ögmundur hefði
móttekið bréfið. Vegamálastjóri
þakkaði ábendingar og sagði að þær
yrðu skoðaðar. Aðrir gáfu engin svör.
Allar fyrrverandi sveitarstjórnir
og sveitarstjórar í Reykhólahreppi
börðust fyrir B-leiðinni og eftir
það með blaðagreinum. Það sama
gerðu fjölmargir aðrir. Bjarni
Guðmundsson á Hvanneyri benti á
að birki væri fljótt að gróa í vegfláum
og skeringum. Sést það vel nú þegar
í Skálmarfirði og Vattarfirði.
Í upphafi sagði ég frá samstöðu
um veg í Gilsfirði. Nú skortir
verulega á, og þess vegna má búast
við að enn lendi fólk í hríð og roki
á hálsum, í dölum og fjarðarbotnum
þó að þokkalegt veður sé á vegi yfir
firði og nes. Núna eru á Hjallahálsi
vindhraðamælir og vefmyndavél.
Vindhraði þar hefur sést fara í 32 m/
sek. í norðan- og norðaustanhríðum,
sem stundum var meira en á
Klettshálsi. Og í síðasta fárviðri
þann 29. desember kl. 13 mældist
vindhraði á Hjallahálsi 40 m/sek., á
Klettshálsi 41 m/sek. og talsvert yfir
50 m/sek. í hviðum.
Ég fékk uppgefið hjá Vegagerðinni
að við klifur yfir tvo hálsa með ca.
500 m hækkun væri aukin brennsla
á bensíni eða olíu sem svaraði 11
km akstri á láglendi. Í ferðatíma er
munurinn meiri. Flutningabílar eyða
að sjálfsögðu margfalt meira elds-
neyti við 500 m hækkun. Stytting
mætti því reiknast 33 km í stað 22
km frá núverandi vegi, miðað við
láglendisveg samkvæmt B-leið.
Vegleysur hafa mikil neikvæð
áhrif á allan atvinnurekstur. Í
ferðaþjónustu hafa Bjarkalundur
og Flókalundur og fleiri fengið að
kenna á því. Það litla sem eftir er af
fiskvinnslu, laxeldi og verksmiðju-
rekstri á líf sitt undir Baldri, gömlum
fljótapramma, sem gæti nú bilað eða
orðið fyrir óhappi. Gæfa hefur verið
með í ferðum Baldurs enda skipinu
stjórnað af mönnum sem þekkja
Breiðafjörðinn eins vel og hugsast
getur.
Frá fyrsta fundi í Bjarkalundi
árið 2003 hefur Vegagerðin unnið
með hangandi hendi. Hún hefur
ekki viljað skoða leið B1 ofan eða
neðan skógar heldur haldið sig við
veg í hlykkjum gegnum miðjan
skóginn og staðsett stóra grjótnámu
á miðju svæðinu. Nauðsynlegt er
að Vegagerðin hafi meira samráð
við landeigendur og heimamenn og
hafi lipra samningamenn. Bændur
á Skálanesi áttu erfitt með að fá
Kristján Kristjánsson til að fara þá
leið sem þeir vildu. Sú leið var þó
farin og hefur lánast vel.
Það er furðulegt að Vegagerðin
skuli leggja til þrjá verstu kostina.
Við hverja þeirra leiða sem yrði farin
væri kostnaðurinn nokkrum milljörð-
um meiri en ef farið yrði yfir firðina
þrjá og um austanvert Hallsteinsnes,
auk þess sem sú leið er langbest hvað
öryggi varðar. Þar gæti varla talist
farið vel með takmarkaða fjármuni.
Fjórðungssamband Vestfirðinga
er horfið frá fyrri yfirlýsingum um að
„Dýrafjarðargöng og nýr vegur um
Dynjandisheiði komi ekki til fram-
kvæmda fyrr en Vestfjarðavegi 60
og Djúpvegi er lokið“. Þetta kemur
fram hjá Aðalsteini Óskarssyni fram-
kvæmdastjóra á fréttavefnum bb.is
2. nóv. 2012.
Alþingismenn og ráðamenn
samgöngumála sviku gefin loforð
um að forgangsmál væri að ljúka
vegi um Austur-Barðastrandarsýslu.
Nú á að skipta ráðstöfunarfénu og
ljúka jarðgöngum milli Dýrafjarðar
og Arnarfjarðar og vegi um
Dynjandisheiði, hæsta og lengsta
fjallveg á Vestfjörðum, áður en lokið
er hér syðra.
Núna hefði B-leið átt að vera
lokið, samkvæmt loforði Sturlu
Böðvarssonar árið 2007, og jafn-
framt lofaði hann 2.160 milljónum
af „símapeningunum“ sem síðan
hurfu í hruninu.
Um veginn vestur segir Einar
Kristinn Guðfinnsson alþingismaður
á fréttavefnum bb.is 13. nóv.
2012: „Ekki lokið fyrr en kannski
árið 2024, í besta falli, og líklega
enn síðar.“ Einnig segir hann að
við umhverfismat sé fráleitt að
undanskilja einn kostinn, þann sem
heimamenn kjósa helst.
Ráðamenn samgöngumála virðast
haldnir miklum ótta við endurtekin
málaferli. Ögmundur er svo hræddur
að hann bannar Vegagerðinni að taka
B1 með í umhverfismat. Ég hélt að
það væru til vegalög sem vinna bæri
eftir. Það á að fara eftir þeim, náist
ekki að semja við landeigendur.
Umhverfisráðuneytið og stofnanir
þess virðast hafa tekið afstöðu með
andstæðingum B-leiðar. Ætla þau að
bera ábyrgð á slysum sem kunna að
verða t.d. á Ódrjúgshálsi á 65 ára vegi
með 16% halla, þar sem leiðbeinandi
hraði er 20 km/klst.? Þann veg
ætti að varðveita sem fornminjar.
Gufudalshreppur kostaði lagningu
þess vegar.
Heimamenn fari nú að efla
samstöðu sína og átta sig á því
að ekki eru margir raunverulegir
kostir í boði varðandi veg á
láglendi. Sveitarstjórn gæti gefið út
yfirlýsingu um að ekki verði gefið
út framkvæmdaleyfi nema fylgt sé
núverandi aðalskipulagi og byrjað
sé á að þvera Þorskafjörð.
Allar sveitarstjórnirnar krefjist
þess af Alþingi, að framkvæmdir
hefjist 2014 og fjármagn verði
tryggt til að verkinu verði lokið 2018
eða 2019. Þingmenn endurskoði
samgöngu áætlun á næsta ári. Dugi
það ekki sé ég eina ráðið að fólk af
svæðinu fjölmenni í höfuðborgina
með potta sína og pönnur og berji
Ögmund og aðra ráðamenn til hlýðni.
Samstaða er það eina sem dugar.
Á nýársdag 2013.
Kristinn Bergsveinsson
frá Gufudal,
Görðum, Reykhólum.
Kristinn Bergsveinsson frá Gufudal. Mynd / Hlynur Þór Magnússon