Bændablaðið - 07.02.2013, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Ábúendur á Sandhaugum í Bárðardal taka í notkun nýtt hesthús og tamningastöð:
Starfsemin fer vel af stað og hesthúsið fylltist strax
Ábúendur á Sandhaugum
í Bárðardal, þau Erlingur
Ingvarsson og Diljá Óladóttir,
breyttu í haust sem leið gömlu
fjósi við bæinn í nýtt og glæsilegt
hesthús og reiðskemmu og tóku
nýju húsakynnin formlega í notkun
skömmu fyrir jól. Þar er nú þegar
tekin til starfa tamningastöð, en
Erlingur er menntaður þjálfari
og reiðkennari frá Háskólanum
á Hólum. Hann stundar að auki
kennslu bæði hér heima og
erlendis, einkum í Svíþjóð. Þá
stunda þau einnig sauðfjárbúskap,
en fyrir tveimur árum tóku þau
við rekstri sauðfjárbús foreldra
Erlings að Hlíðarenda, sem er
næsti bær norðan við Sandhauga.
Mikil hjálp frá ættingum og
vinum
„Það tók í raun mjög skamman tíma
að vinna að endurbótum á fjósinu
og breyta því yfir í nútímalegt
hesthús,“ segir Erlingur, en hafist
var handa við endurbætur um
miðjan nóvember. Verkinu lauk
mánuði síðar. Þá fór fram formleg
vígsla og fyrstu hestarnir voru teknir
í hús.
Erlingur var upptekinn framan af
hausti við önnur störf, m.a. kennslu
á Hólum, og síðan tóku við bústörf
sem setið höfðu á hakanum á meðan
á fjarveru hans frá búinu stóð.
„Við tókum síðan til óspilltra
málanna og nutum aðstoðar frá
ættingjum og vinum og þannig
tókst okkur að vinna verkið hratt
en örugglega. Sú hjálp sem við
fengum við endurbæturnar var
okkur ómetanleg og varð til þess
að kostnaður við þær er í lágmarki,“
segir hann.
Kennir heima og erlendis
Erlingur er fæddur og uppalinn að
Hlíðarenda. Hann hefur að baki um
tveggja áratuga farsælan feril við
tamningar. Hann stundaði nám á
Hólum á sínum tíma og hefur m.a
kennt við hestafræðideild háskólans
en einbeitir sér að styttri námskeiðum
um þessar mundir svo fjarveran frá
búinu verði ekki of löng. Meðal
annars sér hann um námskeiðið
Reiðmanninn á Akureyri, semer
haldið á vegum Endurmenntunar
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri,
og þá er hann að hefja kennslu við
námskeið í Bústólpahöllinni á
Húsavík innan skamms. Um liðna
helgi var hann við kennslu í Svíþjóð.
Langaði að setjast að á
heimaslóðum
Erlingur leigði Sandhauga síðla árs
2005 og hefur búið þar síðan, en
Diljá flutti þangað í lok árs 2008.
Hann starfaði við Ræktunarbúið á
Torfunesi árin 2008 til 2011, en hafði
áður starfað sjálfstætt m.a. á æsku-
heimili sínu Hlíðarenda og farið að
auki vítt og breitt, verið að störfum
í Svíþjóð og Þýskalandi. Einnig hér
heima, m.a. á Akureyri og Eyjafirði,
Borgarnesi og Blönduósi.
„Ég var alltaf með annan fótinn
heima og tók þátt í búskapnum með
foreldrum mínum, og mig langaði
að setjast að á mínum heimaslóð-
um,“ segir hann.
Þau Erlingur og Diljá tóku við
rekstri búsins að Hlíðarenda fyrir
um tveimur árum og eru með ríflega
200 kindur auk þess að taka hross í
tamningu að Sandhaugum.
Nýja hesthúsið er sem fyrr segir í
gömlu básafjósi en húsið var byggt
fyrir rúmum 30 árum, á árunum
1979-80, og hefur staðið ónotað í
áratug. Margt var þar úr sér gengið,
innréttingar m.a. svo til ónýtar.
„Við byrjuðum á því að hreinsa
allt út úr húsinu og gera það nánast
fokhelt,“ segir Erlingur, en varðandi
framkvæmdir af þessu tagi segir
hann máli skipta að gera sem mest
sjálfur. Þannig voru allar innrétt-
ingar í hesthúsið smíðaðar heima
og lítið sem ekkert var um aðkeypta
vinnu. Í húsinu eru nú 16 nýjar eins
heststíur en aðstaða er þar fyrir ríf-
lega 20 hross í allt. Þar sem áður
var aðstaða fyrir kálfa og naut er nú
búið að koma fyrir stórum tvegga
heststíum. Gestir við vígslu húss-
ins luku lofsorði á hversu glæsileg
aðstaðan væri og öllu haganlega
fyrir komið.
„Ég er ánægður með útkomuna
og held að vel hafi tekist til, þetta er
rúmgott og fínt hús og góð aðstaða,
m.a. höfum við útbúið inniaðstöðu
í hlöðu og eins erum við með góða
geymslu fyrir rúllur og búnað í
annarri hlöðu,“ segir Erlingur.
Orðsporið skiptir máli
Hann segir að starfsemin fari vel
af stað og þegar sé búið að fylla
hesthúsið af efnilegum hrossum.
Aðallega er hann með hross af
norðanverðu landinu en þó ekki
eingöngu, því nokkur koma lengra
að.
„Ég hef verið lengi í þessum
bransa og það þekkja margir til
mín,“ segir Erlingur og bætir við
að gott orðspor skipti máli í þessari
starfsgrein. Þannig sé mikilvægt
að taka þátt í kynbótasýningum og
keppnum og halda nafni sínu á lofti.
„En það verður að forgangs-
raða þessu eins og öðru, það er
mjög dýrt að sækja samkomur af
þessu tagi um land allt og varla
hægt lengur að fara á alla staði.
Rekstur af þessu tagi sem ég er með
kallar á útsjónarsemi. Allur fyrir-
tækjarekstur er erfiður um þessar
mundir og aðföng hafa hækkað
gríðarlega, sem og allur kostnaður
yfirleitt, og það er ekki hægt að
velta öllu út í verðlagið. Það er bara
að halda vel á spöðunum,“ segir
Erlingur og er bjartsýnn á framtíð
hrossaræktarinnar þótt enn séu erf-
iðir tímar í greininni. /MÞÞ
Ábúendur á Sandhaugum í Bárðardal, þau Erlingur Ingvarsson og Diljá Óladóttir, breyttu í haust sem leið gömlu fjósi við bæinn í nýtt og glæsilegt hesthús
og reiðskemmu og tóku nýju húsakynnin formlega í notkun skömmu fyrir jól.
hross í allt.
Starfsemin fer vel af stað og er þegar búið að fylla hesthúsið af efnilegum
hrossum. Einkum eru það hross af norðanverðu landinu en einnig lengra
að komin.
Góð aðstaða er fyrir reiðtygi í nýja hesthúsinu á Sandhaugum.