Bændablaðið - 07.02.2013, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Líf og starf
Niðurstöður skýrsluhaldsársins
2012 hafa nú verið reiknaðar
og settar á vef Bændasamtaka
Íslands www.bondi.is. Hér verður
nú farið yfir helstu uppgjörs-
tölur ársins. Alls skiluðu 587
mjólkur framleiðendur afurða-
upplýsingum fyrir árið 2012, en
það eru um 88% framleiðendanna.
Árskýr á skýrslu árið 2012 voru
tæplega 22.900 og er það fjölgun
frá fyrra ári. Meðalafurðir ársins
voru 5.606 kg/árskú, sem eru
mestu meðalafurðir sem mælst
hafa og er það aukning um tæp
200 kg frá fyrra ári. Meðalbúið var
einnig heldur stærra en árið áður,
eða 38,9 árskýr, og meðalfjöldi
skýrslufærðra kúa var 53,3 kýr.
Mestar afurðir voru í Skagafirði
Líkt og áður má sjá nokkurn mun
milli uppgjörssvæða en mestar
afurðir voru í Skagafirði þetta árið,
eða 6.095 kg/árskú. Snæfellingar
fara einnig yfir 6.000 kg markið,
en meðalafurðir á því svæði voru
6.032 kg/árskú. Minnstar afurðir
voru í Dalasýslu, eða 4.589 kg/árskú.
Talsverður munur er einnig
á bústærð milli uppgjörssvæða.
Stærst voru búin í Eyjafirði, þar
sem meðalbúið taldi 47,8 árskýr,
en minnstu búin voru að meðaltali
í Suður- Þingeyjarsýslu, þar sem
meðalbúið taldi 25,4 árskýr.
Árnessýsla og Eyjafjörður eru sem
fyrr öflugustu mjólkurframleiðslu-
svæðin samkvæmt afurða-
skýrsluhaldinu. Í 1. töflu má sjá
heildaruppgjör ársins 2012.
Miðdalur í Kjós er afurðahæsta
bú ársins 2012
Miðdalur í Kjós er afurðahæsta
bú ársins 2012 með 8.086 kg/
árskú, en þar búa þau Guðmundur
H. Davíðsson og Svanborg Anna
Magnúsdóttir. Jón og Hrefna á
Hóli í Sæmundarhlíð fylgja fast á
eftir með 8.058 kg/árskú. Á Syðri-
Bægisá í Hörgárbyggð er síðan
þriðja afurðahæsta bú landsins með
7.599 kg/árskú. Í 2. töflu má sjá
10 afurðahæstu bú landsins en í 3.
töflu má sjá yfirlit yfir afurðahæstu
bú á hverju uppgjörssvæði. Eins
og sjá má eru nú tvö bú þar sem
meðalafurðir fara yfir 8.000 kg/árskú
en Íslandsmet Hraunkotskúnna frá í
fyrra stendur þó enn óhaggað. Alls
eru 20 bú með ársafurðir hærri en
7.000 kg/árskú.
Urður 1229 var afurðahæsta
kýr ársins
Afurðahæsta kýr ársins 2012 var
síðan Urður 1229, Laskadóttir
á Hvanneyri í Andakíl. Urður
mjólkaði 13.031 kg síðastliðið ár.
Urður er þriðja íslenska kýrin sem
fer yfir 13.000 kg, en Blúnda 468 á
Helluvaði í Rangárþingi setti árið
2006 Íslandsmet í afurðum, sem
stendur enn, þegar hún mjólkaði
13.327 kg. Sama ár mjólkaði Stubba
53 á Kvennabrekku í Dölum 13.011
kg. Urður er því önnur afurðahæsta
kýr á landinu frá upphafi. Til gamans
má geta þess að Urður er sú kýr sem
stendur hæst allra íslenskra kúa í
kynbótamati enda fer þarna saman í
einum grip gott ætterni, góð bygging
og miklar afurðir.
Varúð 299, Stígsdóttir í Miðdal
í Kjós, er önnur afurðahæsta kýrin
árið 2012 og Blúnda 335, Þrasadóttir
í Leirulækjarseli, er í þriðja sæti.
Í 4. töflu má sjá þær kýr sem
mjólkuðu yfir 11.000 kg árið 2012.
Til gamans má geta þess að elsta
kýrin á listanum er Snotra 354, á
Eystra-Seljalandi, en hún er nú á sínu
sjöunda mjaltaskeiði. Yngsta kýrin
er hins vegar Gjá 1522 á Hrafnagili,
sem bar sínum fyrsta kálfi 17. janúar
2012 og hafði því ekki náð fullu ári
á skýrslu um síðustu áramót.
Ástæða er til að óska kúabændum
til hamingju með góðan árangur og
jafnframt þakka fyrir gott samstarf á
árinu 2012. Megi nýtt skýrsluhaldsár
verða ykkur öllum farsælt og gjöfult.
/GEH
Fjóstíran
Uppgjörssvæði Árskýr
Afurðir á
árskú
Fita
%
Prótein
%
Heilsárs-
kýr
Kýr á
skýrslu
Skiluðu
skýrslum
2012
Skrá
kjarnf.
Kjarnf.
(árskú)
Meðalbú-
stærð
(árskýr)
Meðalbú-
stærð
(skýrsluf.
kýr)
Kjalarnesþing 264,4 5245,0 4 3,3 212 343,0 7 3 1025 37,8 49
Borgarfjörður 1.824,0 5.278 4,18 3,36 1.333 2.441 49 31 752 37,2 49,8
Snæfellsnes 594,5 6032,0 4 3,4 414 830,0 21 12 852 28,3 40
Dalasýsla 379,0 4.589 4,22 3,34 255 545 12 6 762 31,6 45,4
Vestfirðir 594,5 5193,0 4 3,33 407 814,0 18 11 717 33,0 45
Húnavatnssýslur og Strandir 1.350,0 5.421 4,15 3,35 897 1862 45 31 779 30,0 41,4
Skagafjörður 2146,9 6095,0 4 3,41 1483 2913,0 50 35 972 42,9 58
Eyjafjörður 4.497,4 5.577 4,28 3,38 2.978 6.197 94 54 630 47,8 65,9
Suður-Þingeyjarsýsla 1395,9 5500,0 4 3,4 958 1884,0 55 29 633 25,4 34
Austurland 1.011,3 5.699 4,19 3,38 693 1.377 25 16 778 40,5 55,1
Austur-Skaftafellssýsla 397,4 5914,0 4 3,37 290 526,0 11 7 1067 36,1 48
Vestur-Skaftafellssýsla 753,2 4.903 4,20 3,37 549 974 28 12 341 26,9 34,8
Rangárvallasýsla 3105,7 5657,0 4 3,39 2113 4335,0 72 21 695 43,1 60
Árnessýsla 4.564,9 5.759 4,15 3,40 3.104 6.270 100 53 796 45,6 62,7
Samtals 22879 5606,0 4 3,38 15686 31311,0 587 321 741 38,9 53
Fjöldi Afurðir
Bú - desember 2012 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
260111 Miðdalur Guðmundur og Svanborg, Miðdal 22,5 8.086
570322 Hóll Jón og Hrefna 34,4 8.058
650813 Syðri-Bægisá Helgi Bjarni Steinsson 31,7 7.599
850387 Hraunkot Ólafur Helgason 15,3 7.577
871077 Dalbær 1 Arnfríður & Jón Viðar 51,4 7.525
870840 Reykjahlíð Sveinn Ingvarsson 63,1 7.492
860103 Ytri-Skógar Félagsbúið 22,4 7.467
860530 Kirkjulækur 2 Eggert Pálsson 43,4 7.454
370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 23,7 7.392
560112 Brúsastaðir Brúsi ehf 50,9 7.264
Uppgjörssvæði Fjöldi Afurðir
Bú - desember 2012 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
Kjalarnesþing 260111 Miðdalur Guðmundur og Svanborg, Miðdal 22,5 8086
Borgarfjörður 350191 Eystri-Leirárgarðar Eystri-Leirárgarðar ehf. 42,8 7255
Snæfellsnes 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 23,7 7392
Dalasýsla 380127 Lyngbrekka Sigurður og Bára, Lyngbrekku 59,2 6703
Vestfirðir 480204 Botn 2 Björn og Svavar 69,1 6759
Húnavatnssýslur og Strandir 560112 Brúsastaðir Brúsi ehf 50,9 7264
Skagafjörður 570322 Hóll Jón og Hrefna 34,4 8058
Eyjafjörður 650813 Syðri-Bægisá Helgi Bjarni Steinsson 31,7 7599
Suður-Þingeyjarsýsla 660510 Hrifla Hriflubú sf 24,7 7174
Austurland 750562 Egilsstaðir Egilsstaðabúið ehf. 68,4 6673
Austur-Skaftafellssýsla 770116 Seljavellir Eiríkur Egillson 62,1 6621
Vestur-Skaftafellssýsla 850387 Hraunkot Ólafur Helgason 15,3 7577
Rangárvallasýsla 860103 Ytri-Skógar Félagsbúið 22,4 7467
Árnessýsla 871077 Dalbær 1 Arnfríður & Jón Viðar 51,4 7525
Desember 2012 Árs- Prót-
Kýr Faðir afurðir ein Fita Bú
1. tafla
Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurframleiðendum 2012:
Meðalafurðir ársins voru 5.606 kg á árskú –
sem eru mestu meðalafurðir sem mælst hafa