Bændablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Vélabásinn
Öflug Claas-dráttarvél frá Vélfangi á góðu verði:
Vél frá stærsta fjölskyldufyrirtæki í heimi
– sem verður 100 ára á þessu ári
Í þessum pistlum mínum um
vélar og tæki hef ég lítið fjallað
um dráttarvélar, en fyrir mér er
prófun á dráttarvél að fara fram í
vinnu við mismunandi aðstæður
sem dráttarvélum eru ætlaðar. Því
gæti slík prófun tekið mikinn tíma
og væri jafnvel aldrei annað en
umfjöllun án fullnaðarprófunar.
Fyrir nokkru bauð kunningi minn
Guðmundur Sigurðsson í Vélfangi
mér með sér í bíltúr upp undir
Flúðir á sveitabæ þar sem hann
sýndi mér nýja Claas-dráttarvél
sem Vélfang hafði selt Jóni Viðari
á Dalbæ.
Þegar við renndum í hlað á
Dalbæ var Jón Viðar að vinna á
nýju Claas-vélinni sinni og þurfti
hann aðeins að skreppa á vélinni
og loka einu hliði áður en hann gæti
sinnt okkur. Ég notaði tækifærið og
fékk far með honum í vélinni enda
ágætis sæti með öryggisbelti fyrir
farþega í Claas-vélum. Í þessum
u.þ.b. 500 metra rúnt hvora leið
sýndi Jón mér muninn á því að
keyra vélina á sjálfskiptingunni eða
handskipta með þumlinum (myndi
halda að sjálfskiptingin hentaði vel
til aksturs á vegum með ekkert aftan
í vélinni, en til vinnu sé vænlegra að
nota vélina handskipta). Munurinn
var töluverður en það sem kom mér
mest á óvart var hversu lítið heyrðist
í vélinni inni í stýrishúsinu.
Eftir ferð okkar Jóns Viðars
skoðaði ég vélina og rak augun
í ýmsa kosti sem ég sá strax;
rafgeymirinn er á góðum stað
og auðvelt að komast að honum,
geymslukassi fyrir verkfæri
er á þægilegum stað ofan á
dísilolíutankinum og gott aðgengi er
að glussatengingum aftan á vélinni.
Einnig var ég ánægður að sjá að gult
blikkljós er staðalbúnaður á þessari
vél, en ég hvet menn til að kveikja
á gula blikkljósinu þegar ferðast er
á dráttarvélum úti á þjóðvegi þrátt
fyrir að í lögum sé það bannað. Það
er mitt persónulega mat að þetta
sé spurning um öryggi fyrir aðra
vegfarendur en ekki lög sem eru í
raun ólög.
Dalbæjarvélin kostar 11.870.000
með öllum aukabúnaði
Aukabúnaðurinn sem er á Claas-
vélinni á Dalbæ er ámoksturstæki,
loftkæling (inni í stýrishúsinu),
auka vinnuljós við stefnuljós
að framan, auka vinnuljós áföst
ámoksturstækjum (mjög sniðugur
búnaður) og valrofi sem skiptir
stjórnun á milli ámoksturstækja
og rafstýrðu vökvaúrtaka að aftan.
Eins og hún stóð þarna á hlaðinu
á Dalbæ kostar Claas-vélin með
öllum aukaútbúnaði 11.870.000 og
vildi Jón Viðar meina að eins og
vélin sín væri hún töluvert ódýrari
en sambærileg dráttarvél með sama
búnaði.
Eftir að hafa skoðað vélina
nokkra hringi fór ég smá hring
(engin vinna og mundi flokkast
undir óþarfan „montrúnt“). Strax
og ég bakkaði vélinni til að snúa
við varð ég hrifinn af útsýninu aftur
fyrir hana og í speglunum, sem eru
mjög góðir. Svo er líka hægt að
snúa ökumannssætinu í u.þ.b. 20-30
gráður til hægri og læsa því þar, en í
þessari stöðu með sætið er mjög gott
að vinna ef maður er með eitthvað
aftan í vélinni.
Aðgengi að öllum stjórntækjum
er mjög gott, sérstaklega að
stýripinnanum fyrir ámoksturstækin,
en í honum er líka gírskiptirinn.
Í þessum litla akstri mínum fann
ég samt að það er töluverður
munur á venjulegri kúplingu og
rafmagnskúplingunni sem er í
þessari vél (erfitt að lýsa í orðum,
en nákvæmari og auðveldara að
snuða þessari rafmagnskúplingu en
mörgum öðrum sem ég hef prófað).
Útsýni aftur fyrir til að bakka
að tæki sem tengja á aftan í vélina
er sennilega betra á þessari vél en
nokkurri annarri sem ég hef prófað,
en sætið er svo aftarlega og ekkert
fyrir sem skyggir á útsýnið niður á
þrítengið eða krókinn.
Inni í vélinni er gott aðgengi
að öllu og sem dæmi er óvenju-
lega þægilegt að komast að
rafmagnsöryggjaboxinu miðað við
það sem ég hef séð áður. Stýrishúsið
er rykhelt og ætti kælingin að koma
sér vel á heitum sumardögum við
heyskap eða sambærilega vinnu
með kælingu inni í stýrishúsinu og
ekki skemmir að í litlu hólfi undir
stýrinu er pláss fyrir eins og hálfs
lítra flösku í kæli.
Í spjalli við Jón Viðar sagðist
hann hlakka til að fara að vinna
alvöru vinnu á vélinni og kynnast
henni betur. Það eina sem hann geti
sett út á vélina væru smáhlutir, svo
sem að honum fyndist vanta ljós
niður á stjórnborð hægra megin við
ökumanninn, og of sterk ljós frá
sumum rofum inni í vélinni í svarta
myrkri.
Gott aðgengi undir vélarhlífina til
að þrífa
Oft er erfitt að þrífa í kringum
vatnskassann hey og önnur óhreinindi
sem vilja safnast þangað, en Claas
er með fína lausn á þessu með því
að vera með loftboxið og fremri
vatnskassann á lömum, sem gefur
manni gott aðgengi að þrífa þetta
svæði. Mönnum til fróðleiks er orsök
75% íkveikja og bruna á dráttarvélum
sú að við smá neista er eldsmatur sem
kveikir mikið bál, en með reglulegum
þrifum getur maður lágmarkað þá
áhættu. Claas Arion 430 ISO og CIS
vélarnar eru vel útbúnar með m.a.
130 hestafla vél, 16 gíra kassa, fjögur
vökvaskipt drif, rofa í afturbrettum
til ræsingar og stöðvunar á aflúrtaki
og til að stjórna beisli, loftfjaðrandi
sæti með snúning, farþegasæti
með öryggisbelti, útvarp og MP3-
geislaspilara, gegnsæja topplúgu
(sem opnast meira en 45 gráður) og
beisli að aftan með 6,2 tonna lyftigetu.
Ýmislegt fleira er staðalbúnaður sem
mætti nefna, en fyrir áhugasama bendi
ég á heimasíðu Vélfang á vefsíðunni
www.velfang.is.
Claas-dráttarvélar eiga ekki langa
sögu á Íslandi, en sú fyrsta mun
hafa komið til landsins 2004. Árið
áður festi Claas kaup á Renault-
dráttarvélaverksmiðjunum og
hóf af framleiða dráttarvélar og
því er dráttarvélananafnið Claas
frekar ungt. Öllu þekktari eru
baggabindivélar og rúlluvélar
með nafni Claas, en fyrirtækið var
stofnað 1913 og verður því 100 ára
á þessu ári. Verksmiðjan er stærsta
fjölskyldufyrirtæki í heiminum sem
framleiðir landbúnaðarvörur, en það
er með yfir 9.000 starfsmenn í vinnu.
Skeiðalaug er í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi, nánar tiltekið
í Brautarholti við þjóðveg númer
30. Laugin var tekin í notkun árið
1975 og hefur þjónað heimamönnum
og gestum síðan þá. Laugin er 16,68
metrar að lengd og átta metra
breið og umhverfi hennar allt hið
snotrasta. Við laugina er heitur
pottur og rúmgóð vatnsgufubaðstofa.
Í næsta nágrenni er síðan tjaldstæði,
íþróttavöllur og félagsheimili.
Að vetrum er Skeiðalaug opin
á fimmtudögum frá 18.00 til 22.00.
Yfir sumartímann er laugin opin frá
14.00 til 21.00 á virkum dögum nema
mánudaga en þá er lokað. Um helgar
er opið frá 10.00 til 18.00. Nánari
upplýsingar má fá í síma 486-5500
eða með pósti á netfangið eythorb@
skeidgnup.is
Skeiðalaug
Laugar landsins
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Krónur 11.870.000 er ekki slæmt verð fyrir svona vel útbúna vél. Myndir / HLJ
Auðvelt er að komast í öryggisboxið
fyrir rafmagnið.
Snilldarlausn, loftboxið og fremri
kælikassinn á lömum.
Rauði takkinn neðst til vinstri er
gírskiptirinn, en hér fyrir ofan hefði
mátt vera ljós.