Bændablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. febrúar 2013
Bærinn er landnámsjörð, en þar
nam land Þrándur mjöksiglandi.
Ingvar Þrándarson er uppalinn
í Þrándarholti en Magnea
Gunnarsdóttir á Selfossi.
Foreldrar Ingvars, Þrándur og
Guðrún, ráku þar áður bú en árið
2001 stofnaði sonur þeirra, Arnór
Hans, og Sigríður Björk kona hans
félagsbú með þeim. Árið 2008 tóku
Ingvar og Magnea við af Þrándi og
Guðrúnu.
Býli? Þrándarholt 4.
Staðsett í sveit? Skeiða- og
Gnúpverjahreppi, Árnessýslu.
Ábúendur? Ingvar Þrándarson og
Magnea Gunnarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Börn Ingvars og Magneu eru Þrándur
(8 ára), Eyrún Huld (5 ára) og Snorri (2
ára). Einnig býr þar hundurinn Dimma
(1 árs).
Stærð jarðar? Um 200 ha.
Gerð bús? Við rekum kúabú í
félagsbúi ásamt bróður Ingvars
og konu hans, þeim Arnóri Hans
Þrándarsyni og Sigríði Björk
Marinósdóttur í Þrándarholti 3.
Einnig eru á bænum nokkrar kindur
og hestar.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Mjólkandi kýr eru um 70, naut í
uppeldi um 40, hrossin eru 17 talsins
og kindurnar 26.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Bræðurnir skiptast á um að sinna
bústörfum og vinna við smíðar – en
þeir reka smíðafyrirtæki samhliða
búinu. Bústörfin eru eins og gefur
að skilja ólík eftir árstíma. Farið
er í fjós kvölds og morgna – og
öðrum bústörfum sinnt. Magnea
og Sigríður Björk vinna báðar
utan heimilis, sú fyrrnefnda
sem tónlistarkennari og hin sem
leikskólakennari.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Þegar vel gengur í
fjósi er gaman. Einnig eru vor-
verkin – sauðburður og heyskapur
– skemmtileg. Leiðinlegast er þegar
illa gengur í fjósi.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu móti – vonandi
verða þó kýr og kindur eitthvað
fleiri. Svo mætti vel hugsa sér
örfá hænsni handa Sirrý.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Félagsmál
bænda eru á góðu róli.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni? Við
teljum landbúnaðinum best borgið
utan veggja Evrópusambandsins.
Mikilvægt er að stuðla að
framþróun í framleiðsluháttum og
markaðssetningu.
Hvar teljið þið að helstu
tækifærin séu í útflutningi
íslenskra búvara? Lambakjöt
okkar er gott og einnig
mjólkurafurðir. Að öðru leyti er
mikilvægt að leita stöðugt nýrra
tækifæra í útflutningi og halda á
lofti sérstöðu íslenskra afurða.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Gottaostur og krakkalýsi. Einnig
smjörvi, íslenskt smjör og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Ribeye-biti, grillaður.
Einnig er yngri kynslóðin hrifin af
lasagna.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar við prófuðum
olíurepju á akrinum við Stöðulfell
í Þjórsárdal.
Drykkir úr ávöxtum eru mjög
hentugir á milli mála til að
seðja sárasta hungrið og eru
margir þeirra mjög mettandi í
þokkabót. Allir eru þeir stútfullir
af vítamínum og aukaorku fyrir
daginn og kjörið fyrir hvern og
einn að finna sína réttu blöndu.
Ananasdrykkur
fyrir 2
› Nokkrir ísmolar
› 400 g mjög vel þroskaður ananas,
afhýddur, kjarnhreinsaður og saxaður
› 1 stór, mjög vel þroskaður banani
› 100 ml hreinn appelsínusafi
› 50 ml sojamjólk (má sleppa)
Aðferð:
Setjið ísmola í blandara og hellið
svolitlu af safanum út á. Blandið í
nokkrar sekúndur.
Afhýðið ananasinn, kjarn-
hreinsið og skerið í bita. Setjið
ananasinn út í blandarann ásamt
afganginum af appelsínusafanum.
Blandið í um 30 sekúndur eða
þangað til það er silkimjúkt.
Afhýðið bananann og bætið
honum út í ásamt sojamjólkinni.
Blandið í um 10 sekúndur.
Bætið meira af sojamjólkinni
saman við ef þið viljið þynnri
drykk. Berið fram strax.
Kíví- og límónusafi
fyrir 2
› 3 vel þroskuð kíví, afhýdd og skorin
í stóra bita
› 150 ml eplasafi (eða 1 sætt epli,
þvegið og skorið í stóra bita)
› 2 lúkur græn vínber (steinalaus),
þvegin (má nota 100 ml epla
safa til viðbótar í staðinn)
› safi úr einni límónu
Aðferð:
Ef notuð er safapressa:
Þvoið vínberin vel og eplið og skerið
í stóra bita. Setjið eplið og vínberin
í safapressu. Farið í lið 5 og haldið
áfram með uppskriftina.
Ef notaður er blandari eingöngu:
Afhýðið kívíið, skerið í stóra bita
og setjið í blandarann. Blandið í 2
sekúndur (fræin mega ekki maukast í
sundur því þá verður drykkurinn bitur
á bragðið). Bætið límónusafanum,
vínberjasafanum (ef notaður) og
eplasafanum út í. Blandið í aðrar
2 sekúndur (eða hrærið með stórri
skeið). Hellið í glös og berið fram
strax.
Uppskriftir af cafesigrun.com.
/ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
MATARKRÓKURINN
Vítamínsprengjur milli mála
Þrándarholt
Hundurinn Dimma og og börnin þrjú.
Drykkina er hægt að útbúa í öllum regnbogans litum og blanda saman ávöxtum og grænmeti. Mynd / Ny Nordisk Mat