Læknablaðið - 01.10.1967, Qupperneq 80
220
LÆKNABLAÐIÐ
þetta, er nauðsynlegt samræmingar vegna að hafa þarna ákveðinn
taxta að vinna eftir.
Suðureyri, 14. júlí 1967.
Guðsteinn Þengilsson.
F y 1 g i s k j a 1 15
Tillaga frá Læknafélagi Norðvesturlands
Aðalfundur L. 1, haldinn í Reykjavík 27.—29. júlí 1967, beimr
þeim tilmælum til heilbrigðismálastjórnarinnar, að hún hlutist til um,
að frumvarp verði flutt á næsta Alþingi í þá átt, að verkefni héraðs-
samlaga verði aukið frá því, sem nú er, sérstaklega að þeim veroi
fengin meiri skylda og réttindi til að efla heilbrigðisstarfsemi í hér-
uðum landsins og til greiðslu á kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Jafn-
framt verði núverandi hreppasamlög lögð niður að verulegu leyti.
Reykjavík, 19. 7. 1967.
f. h. Læknafél. Norðvesturlands,
Valgarð Björnsson.
lylgiskjal 16
Greinargerð Valgarðs Björnssonar fyrir tillögu á fylgiskjali 15
Tillagan beinist í þá átt að auka verksvið og vald héraðssamlaga.
Okkur finnst, að of mikils tómlætis gæti meðal almennings um heil-
brigðismál og endurskipulagningu þeirra. Hin litlu sjúkrasamlög hér-
aðanna eru getulaus til úrbóta og sitt sýnist hverjum í hverju máli,
og hin ráðandi öfl í hverju samlagi verða oft mjög breytileg eftir að-
stæðum, ýmist fjárhagslegum eða félagslegum, eða einokast af ein-
um sterkum aðila innan stjórnar lítilla samlaga.
Segja má, að heilbrigðisþjónusta og skipulagning hennar úti í hér-
uðum landsins hvíli nú öll á einum herðum, þ. e. héraðslæknisins, og
hafa þeir flestir nóg á sinni könnu, þótt ekki þurfi þeir að ganga
bónar- eða hótunarveg á milli margra aðila til að fá sínum áhuga-
málum framgengt. Við viljum því fá einn aðila í hverju héraði eða
hverri sýslu, sem við getum snúið okkur til og síðan tekur ákvarð-
anir og framkvæmir þær eða aðstoðar við framkvæmdir. Allir hér-
aðslæknar kannast við, hve bókfærsla fyrir hin mörgu litlu samlög
er mikil og tímafrek, þar sem flokka þarf alla sjúklinga niður í t. d.
7—8 hópa eftir því, í hvaða samlagi þeir eru. Mikill munur væri, ef
einn aðili, t. d. héraðssamlag, sæi um allar greiðslur og sparaði þann-
ig þessa sundurliðun. Með stærri einingum skapast skilyrði til að
ráða framkvæmdastjóra, sem í starfi sínu fær yfirlit yfir heilbrigðis-
mál héraðanna og getur gert tillögur til úrbóta og að samþykki fengnu