Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
175
ingu að halda í sambandi við sín störf, verður hægt að koma safna-
málum okkar í viðunandi horf.
Það er samhljóða álit okkar læknisfræðibókavarða — byggt á
erfiðri en dýrmætri reynslu, — að sem fyrst verði að hefjast handa
um áætlun og byggingu miðsafns í læknisfræði og skyldum greinum,
og staðsetning þess hljóti að verða miðsvæðis meðal fyrirhugaðra
kennslu- og rannsóknastofnana á Landspítalasvæðinu. Það er álit okk-
ar, að þar eigi að rísa safn með alhliða þjónustu við kennsludeildir,
heilbrigðis- og rannsóknastofnanir, safn, sem annist alla vandasamari
upplýsinga- og heimildaþjónustu, tengsl við erlend söfn og skynsam-
leg skipti á ritum; safn, sem haldi uppi og efli ýmiss konar kynningar-
starfsemi á nýjungum og framförum, hvort sem hún er í formi tíma-
ritaklúbba, bókakynninga eða fræðilegra fyrirlestra.
Að endingu langar mig til að þakka þetta tækifæri til þess að
tala um mál, sem er mjög tímaþært og liggur okkur, sem störfum
sem sjúkrahúsabókaverðir, mjög á hjarta. Við höfum í starfi okkar
rekið okkur á mörg og stór vandamál, sem ekki verða leyst nema
með stóru átaki — ykkar og okkar, — en við höfum líka fengið tölu-
verða hvatningu í samskiptum við safngesti okkar og treystum á, að
þeir hjálpi við að efla það brautryðjandastarf, sem hafið er.