Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 85

Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 85
LÆKNABLAÐIÐ 229 viðbyggingar og því, hvort byggja skyldi reglulegt ráðstefnuhús. Bjarni Bjarnason skýrði frá því, að stjórn Domus Medica hefði rætt við borgarverkfræðing um hugsanlega möguleika á því, að skát- arnir vildu gefa eftir einhvern hluta af lóð sinni við Snorrabraut. Skátarnir munu ekki hafa bolmagn til að byggja stórhýsi á lóðinni, en eru því samt fráhverfir að láta lóðina alla af hendi. Bjarni taldi borgarverkfræðing hlynntan því, að Domus Medica fái aðstöðu til þess að byggja þarna. Bjarni taldi það ómetanlegt að hafa þessa möguleika, hvort sem þeir yrðu notaðir eða ekki. Arinbjörn Kolbeinsson, formaður L.Í., þakkaði Bjarna Bjarna- syni ágæta forystu og fyrirmyndarstjórn á rekstri sjálfseignarstofn- unarinnar Domus Medica og rakti það nánar. Eignin er nú metin á 21 milljón, áhvílandi skuldir 6,5 millj. Úr eigin vasa læknanna hefðu til þessa einungis runnið kr. 400 þús. Sýndi þetta að vel væri á haldið. Hann kvað ofraun að reyna að reisa „meðalstórt þinghús“ sökum óhemju kostnaðar. Hins vegar væri unnt að bæta aðstöðu til ráðstefnuhalds í salnum. Sigmundur Magnússon benti á, að rafkerfi salarins væri óþjált með tilliti til fundahalda. Taldi hann því fé vel varið, sem færi til þess að ráða bót á þessu. Bjarni Bjarnason kvað fullan hug hafa verið á því að ráða bót á þessu, en naumast verði því við komið nema í tengslum við stækkun salarins. Jón Þorsteinsson sagði umræðurnar fyrst og fremst snúast um stækkun á sölum. Ræddi hann þá hlið málsins, sem veit að lækn- unum, sem vinna í Domus Medica. Gat hann um mikilvægi þess starfs, sem þar er unnið, og tengsl þess við starfandi lækna landsbyggðar- innar. Svigrúm væri ekkert. Húsnæði væri ekkert fyrir ritara, spjald- skrár og önnur aukin umsvif þeirrar læknamiðstöðvar, sem er að vaxa úr grasi í Domus Medica. Hann kvað þetta ekki mega gleymast, þegar rætt væri um stækkun Domus Medica. Bjarni Bjarnason svaraði þessu með nokkrum orðum og kvað alla framvindu mála byggjast á því, að læknar hefðu áhuga og bolmagn til að skapa þarna góða aðstöðu. Sjálfsagt væri, að stjórn Domus Medica hafi þarna forgöngu. Fleiri tóku ekki til máls. Þessu næst voru lagðar fram tillögur og ályktanir fskj. 1-12, sem öllum var vísað til nefnda þeirra, sem kosnar voru í upphafi fundar- ins. Klukkan var nú orðin 12.30 og því gert matarhlé og fundur boðaður aftur kl. 13.30. f. h. Friðriks Sveinssonar. Eftir matarhlé var fundur settur á ný af formanni L.í. og skipaði hann Brynleif Steingrímsson fundarstjóra, er svo skipaði Valgarð Björnsson ritara. Þá tók til máls Baldur Sigfússon, er flutti erindi um læknamið- stöðvar, staðsetningu þeirra, þróun og lágmarkskröfur. Greindi hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.