Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 101
LÆKNABLAÐIÐ
241
ins, og er kominn tími til aS samtök þeirra myndi sér skoðun
og marki stefnuna í þessum málum.
Þeim mun meiri ástæða er til þess, þegar allir vita, að trygg-
ingastofnunin og almannatryggingafélög hafa um árabil verið
leikföng stjórnmálaflokka í baráttu þeirra um atkvæði í kosn-
ingum, og oft hefur tugmilljónum verið kastað svo að segja út
í loftið í sambandi við kosningar eða nýja kjarasamninga að
óathuguðu máli og án alls fyrirvara.
Almannatryggingar eru hápólitískt málefni, og þó að sam-
tök lækna vilji ekki blanda sér í pólitík, geta þau ekki né mega
vegna þeirrar siðferðilegu skyldu, sem á meðlimum þeirra hvíl-
ir, leiða hjá sér málefni, sem snerta starf þeirra jafnmikið
og tryggingarnar.
Þótt öruggt megi telja, að einhverjir muni segja afskipti L.í.
af þessum málum af stjórnmálalegum toga spunnin, má það
ekki hræða frá slíku, enda hefur L.í. nægilega sterkar forsend-
ur á sinni hendi til að hrekja aðdróttanir í þá átt.
Á undanförnum árum hefur L.í. hafið bein afskipti af mál-
efnum, sem aðeins varða meðlimi þess óbeint, og þannig breytzt
úr passífum hagsmunaaðila í aktífan félagsskap manna, sem
menntunar sinnar vegna telja sig hafa gleggri yfirsýn yfir
ýmis málefni, er þjóðfélagið allt varðar. Er þar átt við afskipti
félagsins af skipulagi heilbrigðisþjónustunnar í landinu, og auð-
sætt er nú, að þau mál verða til lykta leidd að miklu leyti í
samræmi við þá stefnu, sem L.f. hefur markað; þó er það
mál einnig hápólitískt.
Nú er á döfinni endurskoðun löggjafar um almannatryggingar
hér á landi, eða a. m. k. verður að ætla, að sú sé meiningin
með tillögunni. Ætti því hér að vera fengið tilefni til þess, að
L.í. hefji nú mörkun stefnu sinnar á þessum vettvangi“.
d) Tillaga kom fram frá Arinbirni Kolbeinssyni og þremur öðrum,
þess efnis, að fundurinn beini þeim tilmælum til heilbrigðismála-
ráðherra, að hann láti gera tilraun til að framkvæma fræðilega
athugun á þörf þjóðfélagsins fyrir nýliðun í læknastétt á komandi
árum (fskj. 16), en tillagan var tekin af dagskrá skv. dagskrár-
tillögu Brynleifs Steingrímssonar (fskj. 17), vegna mjög ólíkra
skoðana fundarmanna á máli því, sem tillagan fjallar um.
10. Kosning stjórnar L.í. Arinbjörn Kolbeinsson er áfram formað-
ur (kjörinn í fyrra til tveggja ára), og jafnframt eru Bryn-
leifur Steingrímsson og Guðsteinn Þengilsson áfram meðstjórn-
endur af sömu ástæðu. Skv. lagabreytingum á síðasta aðal-
fundi voru aðrir stjórnarmenn þá aðeins kjörnir til eins árs,
en eru nú kosnir til tveggja ára. Fráfarandi ritari, Friðrik
Sveinsson, hafði beðizt eindregið undan endurkjöri, og var í
hans stað kosinn Baldur Fr. Sigfússon. Gjaldkeri var endur-
kjörinn Guðmundur Jóhannesson og meðstjórnandi í stað Bald-
urs Sigursteinn Guðmundsson.