Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
201
óhjákvæmilega hafa í för með sér hækkun árgjalda félagsins. Að-
spurðir kváðust allir fundarmenn því samþykkir nema Úlfur Gunnars-
son, sbr. fyrirvara hans áður.
Stjórn L.í. var falið að kanna betta mál betur, t. d. afla kostnaðar-
áætlunar og leggja fyrir næsta aðalfund.
V. Skýrsla gjaldkera
Gjaldkeri gerði í aðaldráttum grein fyrir fjárreiðum félagsins.
Endanlegir reikningar liggja þó ekki fyrir. Hann kvað fjárhag félags-
ins betri við lok sl. árs en hann var í lok árs 1968. Hann gat þess, að
við endurskoðun hefði komið fram vanskil af hálfu fyrrv. fram-
kvæmdastjóra, að upphæð 106 þús. kr., sem hann yrði krafinn um.
Þetta snerti aðallega Læknablaðið og tímaritanefnd.
VI. Þingsályktunartillaga um nýjar námsstöður við Landspítalann,
tengdar læknisþjónustu strjálbýlisins, sbr. meðfylgjandi greinar-
gerð
Formaður L.í. gat þess, að í gær (föstud. 17. apríl) hefði neðri
deild Alþingis samþykkt samhljóða frumvarp til laga um lengingu
héraðslæknisskyldunnar í sex mánuði. Var frumvarpið þannig afgreitt
til efri deildar. Aðspurðir voru fundarmenn, að einum undanskildum,
andvígir þessari lagasetningu og samþykkir því, að stjórnin kæmi á
framfæri ályktun frá Læknafélagi fslands varðandi þetta mál.
VII. Blaðaskrif
Jakob Jónasson, ritari L.R., las grein úr dagblaðinu Vísi, dags.
9.4. 70, þar sem höfð eru ummæli eftir próf. Þorkeli Jóhannessyni,
þar sem hann lætur svo um mælt, að ,,læknar virðist vera of losara-
legir í handsali ýmissa lyfja“. Lagði Jakob til, að hlutaðeigandi pró-
fessor, sem jafnframt stundar lækningar að einhverju leyti, fái áminn-
ingu frá L.í. eða verði látinn sanna fullyrðingu sína. Formaður L.í
kvaðst hafa rætt þetta við prófessor Þorkel, sem hefði lýst því yfir,
að hann leiðrétti ekki ummæli, sem eftir sér væru höfð í blöðum.
Það, sem þar stæði, væri á blaðanna ábyrgð, en ekki hans. Formaður
L.R. kvað það hafa hvarflað að sér að bjóða próf. Þorkeli á fund í
L. R. og láta hann þar standa fyrir máli sínu. Brynleifur Steingríms-
son kvað það fráleita hugmynd. Hann kvað það sína skoðun, að hreyfa
basri þessu sem minnst. Formaður L.í. kvaðst einnig hafa rætt við
lögfræðing félagsins, svo og landlækni og próf. Tómas Helgason, og
væru þeir eigi sammála því áliti, sem fram hefði komið í blöðum um
misferli lækna. Lögfræðingur félagsins taldi ráðlegast:
a) að stjórn L.f. birti yfirlýsingu í blöðum, þar sem fram kæmi, að
um órökstuddar dylgjur væri að ræða og óskaði eftir rannsókn;
b) innan stéttarinnar kæmi eftirfarandi til greina: 1. að próf. Þorkell
fengi áminningu, 2. að honum yrði boðið að halda erindi um efnið
á félagsfundi, 3. að kæra hann fyrir gerðardómi L.f.
Fundarmenn voru sammála, að undanskildum form. Læknafélags
Suðurlands, Brynleifi Steingrímssyni, að óska rannsóknar í þessu máli.