Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ
213
LÆKNABLAÐIÐ
57. árg. Okíóber 1971
FELAGSPRENTSMIÐJAN h.f.
YANSKAPNAÐAR-
HÆTTA AF VÖLDUM
LYFJA
Þegar á öldinni sem leið
höfðu verið gerðar marghátt-
aðar tilraunir með egg lægri
dýra, er sýndu, að unnt væri
að valda vansköpun hjá fóstr-
um, sem orðið höfðu fyrir skað-
legum áhrifum ýmissa efna.
Tilraunir mcð fóstur spendýra
að þessu lútandi hófust eklíi
fyrr en upp úr 1930 og ekki að
marki fyrr en eftir 1940. Raun-
ar var lengi talið, að öðru máli
gegndi um vanskapnað hjá
spendýrum en hjá fuglum eða
skriðdýrum, þar eð leg spen-
dýra veitti fóstrinu slíka vernd,
að utanaðkomandi skaðvaldar
næðu annað tveggja ekki til
fóstursins eða deyddu það með
öllu. Það var því lengi fasta-
kenning (dogma), að van-
skapnaður hjá fóstrum spen-
dýra væri fyrst og fremst
á erfðafræðilegum grundvelli,
þ. e. a. s. stafaði af truflun í
erfðaeigindum einstaklingsins,
en ekki af utanaðkomandi
álirifum á fósturskeiði. Þannig
má segja, að vanskapnaður
hjá mannsfóstrum af völdum
talídómíðs, sem olli skelfingu
um víða veröld fyrir tæpum 10
árum, hafi verið fyrsta tilvikið,
er til fullnustu vakti athygli
manna á því, að jafnvel lyf,
sem talin væru lítt skaðleg,
gætu haft hin skaðvænlegustu
áhrif á fóstur, væru þau tek-
in á ákveðnu skeiði meðgöngu-
tímans.
Tilraunir með ýmis spendýr,
einkum rottur og mýs, hafa
leitt í ljós, að vanskapnaðar-
hætta er langmest á tilteknu
aldursskeiði, þegar frummynd-
un hinna ýmsu líffæra og líf-
færakerfa á sér stað, Rottur
ganga venjulega með í 22 daga,
og' stendur þetta skeið lijá
rottufóstrum frá um það hil 8.
degi og til um það hil 15. dags
meðgöngutímans. Hjá mönnum
er samsvarandi tímahil um 6
vikur, frá uin það bil lokum
2. viku og til um það bil loka
8. viku meðgöngutímans. Ef
lyf eða önnur efni eru gefin
rottum á fyrstu viku með-
göngutímans, er, að heita má
án undantekninga, ekki unnt
að framkalla vanskapnað hjá
fóstrunum, enda þótt sömu
efni eða lyf geti hæglega vald-
ið vanskapnaði, ef þau eru gef-
iu á 2. viku meðgöngutímans.
Sömu sögu er að segja um 3.
viku meðgöngutímans. Gjöf
ýmissa lyfja á þessu skéiði get-
ur leitt til dauða eða jafnvel
sjúklegra breytinga í fóstrum,