Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 88
232
LÆKNABLAÐIÐ
hann frá forsögu máls þessa og viðbrögðum stúdenta og almennings.
Hann taldi alveg ókannað, hve marga lækna þyrfti að útskrifa hér
árlega til að halda uppi fullri læknisþjónustu í landinu. Hann taldi
það lágmarkskröfu, að rikisstjórn og valdhafar létu gera slíka könn-
un og lýstu yfir, hver lágmarkslæknisþjónusta þyrfti að vera í land-
inu, og hve marga lækna þyrfti að útskrifa til að halda henni uppi.
Jón Þorsteinsson var samþykkur könnuninni, en sagði hana óör-
ugga. Taldi hann, að framboð og eftirspurn ætti að ráða fjölda lækna,
og ekkert væri óeðlilegt, þótt við hér menntuðum lækna fyrir aðrar
þjóðir. Hann taldi, að læknar yrðu nú að rísa upp og mótmæla tak-
mörkunum á inngöngu í læknadeild, og mættum við ekki feta í fót-
spor Norðmanna og Svía og skapa læknaskort í framtíðinni.
Arinbjörn Kolbeinsson tók mjög í sama streng og Jón Þorsteins-
son og taldi töluna, þ. e. lágmarkstölu um inngöngu, algjörlega órök-
studda og gripna úr lausu lofti. Ef opna ætti deildina alveg, þyrfti
hún miklu meiri fjárveitingu og það að verulegum mun hærri en nú
væri. Læknafélagið ætti að stuðla að því að láta rannsaka málið, ef
hægt væri, að öðrum kosti ætti að opna deildina alveg og láta fram-
boð og eftirspurn ráða. Hann taldi, að sjónarmið læknanema væri
mjög mikilvægt og bauð Högna Óskarssyni áheyrn, er tillögur væru
ræddar í nefndinni, er fjölluðu um þessi mál.
Högni Óskarsson ræddi um töluna 24, og komu þá fram þær upp-
lýsingar, að hún hefði fengizt með því að telja alla tiltæka stóla í
einni kennslustofu læknadeildar.
Fundarstjóri kvað ekki fleira liggja fyrir fundi þennan fyrri
dag fundarins, skipaði nefndirnar til starfa, tilkynnti fund kl. 9.30
að morgni 21. júní og sleit síðan fundi.
f. h. Valgarðs Björnssonar.
Fundur var settur á ný kl. 9.30 næsta morgun, en kvöldið áður
höfðu fundarmenn setið veglega afmælisveizlu Arnar Bjarnasonar.
Skipaði formaður Víking Amórsson fundarstjóra og Baldur Fr. Sig-
fússon fundarritara.
Árgjald félaga til L.í. var fyrst til umræðu. Kvað formaður L.Í.,
Arinbjörn Kolbeinsson, hækkun nauðsynlega vegna tveggja gjaldliða.
Annars vegar hækkar árgjald Bandalags háskólamenntaðra manna
úr 200 kr. upp í kr. 500, og var samsvarandi hækkun samþykkt.
Hins vegar fór formaður fram á heimild til hækkunar allt að kr.
1000.00, vegna fyrirhugaðrar byggingar á þaki Domus Medica, ef
framkvæmdir hefjast á næsta starfsári, og var hún samþykkt. Þá
ræddi Arinbjörn nokkuð áætlanir og framkvæmdir á vegum félags-
ins. Taldi hann, að skrifstofukostnaður mundi aukast, m. a. vegna
launahækkana og tækjakaupa, risna gæti aukizt, enda lítil, og loks
yrðu væntanlega aukin útgjöld vegna hækkandi útgáfukostnaðar
Læknablaðsins.
Fulltrúar í B.H.M. voru endurkjörnir, þ. e. Arinbjörn Kolbeins-
son, Snorri P. Snorrason og Tómas Helgason.
Ekknasjóður. Skýrsla stjórnar Ekknasjóðs lá ekki fyrir.
Lífeyrissjóður lækna. Víkingur Arnórsson skýrði nokkuð frá