Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1971, Side 22

Læknablaðið - 01.10.1971, Side 22
180 LÆKNABLAÐIÐ þess að halda sýningar á lækningatækjum og lyfjum, þegar læknaþing standa eða aðrir fjölmennir læknafundir. d) Veitingaaðstaða í salnum er ófullnægjandi. Greinargerð: Heilbrigðismálaráðstefnur: Læknafélag íslands hefur haldið tvær ráðstefnur um heilbrigðismál í Domus Medica, þar sem boðið var aðil- um utan læknastéttarinnar, en hins vegar voru ráðstefnur þessar opn- ar öllum læknum. í slíkum tilvikum hefur salurinn reynzt ófullnægj- andi, og hefur þá verið tekið það ráð að setja upp hátalarakerfi í for- sal ásamt sætum, svo sem stjórn Domus Medica er kunnugt um. Læknaþing: Á fjölmennustu fundum í sambandi við læknaþing hefur salurinn einnig verið mjög þétt setinn, og er sýnilegt, að á næstu árum verður hann of lítill til slíkra fundahalda. í sambandi við slík þing er æskilegt að halda lyfja- og áhaldasýningar. Reynzt hefur erfitt að koma slíkum sýningum fyrir og í rauninni ókleift að hafa samtímis bæði áhalda- og lyfjasýningar, en vart kemur annað húsnæði en í Domus Medica til greina til slíkra nota. í þessu sambandi má geta þess, að heildarfjöldi læknakandídata er nú 491. Starfandi læknar á íslandi eru nú um 320. Gera má ráð fyrir, að á næsta áratug útskrifist úr læknadeild 20—30 kandídatar árlega. Samkomur: Fjölmennustu samkomur lækna hefur ekki verið unnt að halda í Domus Medica, en þær hafa sótt yfir 200 manns. Námskeið: í sambandi við læknanámskeið, sem Læknafélag ís- lands gengst fyrir árlega, eru oft haldnir samstarfsfundir (symposia) um víðtæk hagnýt efni. Á þessa fundi er læknanemum einnig boðið, og er þá fyrirsjáanlegt, að salurinn getur ekki með góðu móti rúmað það fólk, sem slíka fundi vill sækja. Veitingaaðstaða: í sambandi við áðurnefnd læknanámskeið er æskilegt, að hægt sé að hafa veitingar á staðnum, til þess að námskeið- ið geti haldið áfram óslitið allan daginn. Einnig er æskilegt, að starfs- fólk í húsinu geti fengið þar hádegisverð, ef það óskar, en starfslið hússins er nú á annað hundrað manns. í húsinu eru 59 læknar, auk tannlækna, skrifstofu læknafélaganna og skrifstofu Domus Medica, en fjöldi þeirra, sem sækja þjónustu þessara aðila, er um 700 manns á dag að meðaltali. Sumir læknanna hafa ekki fyrirfram pantaða tíma, heldur biðnúmer, og er því æskilegt, bæði vegna starfsfólks og einnig þeirra, sem húsið sækja, að unnt sé að framreiða eftirmiðdagskaffi í samkomusal. f sambandi við læknaþing, svo og í sambandi við minni erlendar læknaráðstefnur og einnig við önnur tækifæri, kemur iðulega til, að nauðsynlegt er að halda fleiri en einn fund samtímis, jafnframt því sem veitingaaðstaða þarf að vera fyrir hendi. Lokaorð: í tilefni af því, sem að framan segir, telur stjórn Lækna- félags íslands nauðsynlegt, að gerðar verði ráðstafanir til að stækka samkomusalinn í Domus Medica um ca. 2/3 af núverandi stærð. Við þá stækkun verði höfð hliðsjón af því, að nauðsynlegt er að geta skipt salnum í deildir, bæði vegna fleiri funda samtímis og sýninga. Þá er nauðsynlegt, að jafnframt verði bætt veitingaaðstaða í salnum frá því
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.