Læknablaðið - 01.10.1971, Page 48
202
LÆKNABLAÐIÐ
VIII. Samningur við Tryggingastofnun ríkisins
Brynleifur Steingrímsson, form. samninganefndar, gerði grein fyr-
ir samningaumleitunum við T.R. og gangi þeirra mála.
Samninganefndin hefur átt fund með Tryggingaráði. Áður hafði
hún lagt fram nýja gjaldskrá og áherzla lögð á, að hún yrði grund-
völlur nýrra samninga, en þar er, sem kunnugt er, mestur þunginn
lagður á viðtöl með skoðun (klínik).
Brynleifur kvað þetta sjónarmið hafa mætt skilningi af hálfu T.R.
Kvað hann samninganefndina bjartsýna á, að nú væri grundvöllur
fyrir umtalsverðri hækkun á taxtanum.
IX. Undirbúningur og fyrirkomulag aðalfundar
Ákveðið hefur verið að halda aðalfund L.f. í Vestmannaeyjum
20.—21. júní n.k. Fundarboð ásamt drögum að ársskýrslu verða send
út mánudag 20. apríl.
X. Símakostnaður
Símakostnaður héraðslækna eftir breytingu í sjálfvirkt kerfi. Rit-
ara var falið að kanna það nánar.
XI. Önnur mál
Formaður L.í. gat þess í lokin, að sú hugmynd hefði komið fram,
að læknar auglýstu fundi sína í dagblöðunum með dagskrá. Með þeim
hætti væri almenningi sýnt svart á hvítu, hve fræðslustarfsemin er
mikill þáttur í félagsstarfinu.
Að svo búnu þakkaði formaður fundarmönnum komuna og sleit
fundi.
Friðrik Sveinsson, ritari.