Læknablaðið - 01.10.1971, Side 54
208
LÆKNABLAÐIÐ
betur fullnægt þeim kröfum, sem almenningur réttilega gerir til fram-
komu þeirra í starfi.
Þá var einnig nokkuð rætt um kjaramál lækna og samvinnu lækna-
samtaka við önnur akademísk félög. Almennt kom sú skoðun fram,
að laun lækna væru yfirleitt verulega hærri en annarra akademískra
stétta, en jafnframt væri vinnutími þeirra og vaktþjónusta miklu
lengri, svo og aðrar skyldur, sem þjóðfélagið, almenningur og þær
siðferðilegu kröfur, sem eru lagðar á herðar læknum, þ. á m. viðhalds-
og framhaldsmenntun þeirra.
Læknar í Svíþjóð eru nú milli 7—8 þús., og er gert ráð fyrir, að
þeir verði 10.500 árið 1980, en með vaxandi starfsviði, styttri vinnu-
tíma og auknum kröfum til læknisþjónustunnar, er einnig gert ráð
fyrir, að þar verði læknaskortur árið 1980.
Scandicon
Einum eftirmiðdegi var varið til þess að skoða Scandicon, en það
er skammstöfun fyrir Scandinavian Training and Conference Center.
A dönsku er stofnunin venjulega kölluð Scandicon, en einnig heitir
hún Uddannelse og konference centret í Skaandebakke ved Aarhus.
Stofnun þessi er eins konar funda- og námskeiða-hótel, sem byggt er
með sérstöku sniði, og var byggingunni lokið á síðastliðnu hausti.
Byggingarstíllinn er mjög sérkennilegur. Húsið er byggt í aflíðandi
brekku neðst í smáhæð, og er það gert í stöllum með hallandi þaki
á hverjum stalli, en húsið er þakið grasi og fellur með sjérkennilegum
hætti inn í landslagið. Húsið er gamaldags í útliti. Inni eru steinhellur
í gólfi og allir veggir í göngum úr steini. Svipar það til „college“ í
Oxford. í húsinu eru 66 gistiherbergi, en í funda-, kennslu- og nám-
skeiðshlutanum er einn stór áheyrendasalur (auditorium), sem tekur
200 manns. Það er búið öllum hugsanlegum hljóð- og sjóntækjum,
þ. á m. innanhússsjónvarpskerfi, þannig að hægt er að sjónvarpa úr
öðrum minni námskeiðssölum og varpa myndinni á stóran skerm.
Einnig eru inni í stóra áheyrendasalnum sjónvarpsmyndavélar, þannig
að taka má myndir, hvort lieldur er af hálfum salnum eða af borði
eins þátttakanda og varpa á stóran skerm því, sem þátttakandi skrifar
á lítinn miða á borðinu. Einnig eru þar tveir salir fyrir minni fundi.
Hvor þeirra tekur 30 manns. Þá eru þrjú fundaherbsrgi, þar sem er
rúm fyrir allt að 24 til fundarsetu, og fjögur herbergi fyrir minni
hópa, „seminarium", og rúmar hvert þeirra 12 manns. Þarna eru
einnig veitingasalur og' önnur þægindi, sem hóteli tilheyra, enda gert
ráð fyrir, að haldin séu bæði einsdags-námskeið og einnig námskeið,
sem standa í lengri tíma, viku eða meira. Verð fyrir þá, sem taka
þátt í lengri námskeiðum, er d. kr. 160,00 á dag, en sé um einsdags-
námskeið að ræða án gistingar, er verðið lægra.
Framhaldsmenntun lækna
Síðasta morguninn var rætt um framhaldsmenntun lækna, og
flutti þar framsöguerindi Eriksson frá Stokkhólmi um æðri framhalds-
menntun. Sýndi hann ýmis atriði nýtízkutækni við samanþjappaða
námskeiðakennslu, þar sem hægt er að nota sjónvarpstæki, kvikmynd-