Læknablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 92
234
LÆKNABLAÐIÐ
tillögur fyrir fundinn sem hér segir, en of langt yrði að rekja frum-
tillögur einnig.
a) Kjaramálanefnd. Stefán Bogason bar fram eftirfarandi tillögur til
ályktunar:
1. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 beinir þeim tilmælum
til aðildarfélaga L.Í., að þau vinni að því með samningagerð og
á annan hátt, að vinnutíma lækna verði stillt í hóf, og verði
hann því styttur verulega frá því, sem nú er. Virðist eðlilegt,
að dagvinnutími verði 36 klst. á viku, þar með talinn hæfilegur
tími til lestrar tímarita og handbóka í sambandi við dagleg
störf lækna“.
Tillaga þessi frá stjóm L.Í., fskj. 2, till. I, var samþykkt, og
jafnframt fékk formaður heimild fundarins til að færa síðar
til betri vegar orðalag samþykktra ályktana, ef þurfa þætti.
(Aðrar breytingar eru því að sjálfsögðu verk nefndanna og
fundarins).
2. „Aðalfundur Læknaíélags íslands 1970 fagnar því, að ákveðið
hefur verið að reisa læknamiðstöð á Egilsstöðum og leggur
áherzlu á, að framkvæmdum við þessa læknamiðstöð verði
hraðað sem mest.
Jafnframt vill fundurinn ítreka fyrri ályktanir um stöðlun
og skipulagningu læknamiðstöðva, svo og allrar læknaþjónustu
dreifbýlisins, en þó sérstaklega um samband sjúkrahúsa og
læknamiðstöðva“.
3. Vísað var frá ályktun frá aðalfundi L.N.V. (fskj. 9, IV) svo-
hljóðandi: „Aðalfundur L.N.V. haldinn á Siglufirði 24. maí
1970, telur óviðunandi, hversu dregizt hefur að ganga frá samn-
ingum lækna við Tryggingastofnun ríkisins. Aðalfundur L.N.V.
leggur því áherzlu á, að L.í. sjái um, að samið verði þegar í
stað við Tryggingastofnun ríkisins og framvegis verði samning-
um lokið fyrir 1. maí ár hvert“.
Mál þetta hafði verið rætt daginn áður og skýringar gefnar
á drætti samninga.
4. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 beinir þeim tilmælum
til stjórnar félagsins, að hún sjái um, að samin verði frumdrög
að fjárhagslegum og verklegum samstarfsgrundvelli fyrir lækna
við læknamiðstöðvar almennt, sem auka mætti og breyta, eftir
því sem óskir og aðstæður segðu til um í hverju tilfelli, en þó
ætíð í samráði við samstarfsnefnd L.í.“.
Tillaga þessi (frá L.V., fskj. 11) var samþykkt.
5. „Aðalfundur Læknafélags íslands 1970 lýsir ánægju sinni yfir
þeim áfanga, sem náðst hefur (í kjarabaráttu lækna) með
stofnun læknaráða við Borgarspitalann, Landakotsspítalann og
Landspítalann.
Fundurinn ályktar, að stofna beri læknaráð á svipuðum grund-
velli við öll sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir landsins, þar eð
stofnun slíkra ráða er forsenda þess, að hægt sé að koma á
lágmarksstaðli fyrir þjónustu þessara stofnana.