Læknablaðið - 01.10.1971, Page 97
LÆKNABLAÐIÐ
239
bót á þessu, leggur fundurinn til, að upp verði tekin aftur út-
gáfa fréttablaðs til svæðafélaganna eða reglulegir fréttapistlar
birtir í Læknablaðinu, þegar stjórn L.í. telur það hentugra“.
Tillaga þessi var samþykkt. Er hún efnislega samhljóða til-
lögu frá L.N.V. (fskj. 9, V) og stjóm L.í. (fskj. 10) og kemur
í stað þeirra með viðbót fundarins.
7. Tillaga kom fram frá L.N.V. um, að Læknafélag íslands keypti
land og reisti bústaði helzt við ár eða veiðivötn, og eignaðist
þannig sumardvalarheimili fyrir félagsmenn, eins og tíðkast í
öðrum hagsmunafélögum (fskj. 9, III). Jafnframt leitaði stjórn
L.f. heimildar fundarins til að ganga frá stofnun hlutafélags í
þessu skyni, þar sem læknafélögin færu ávallt með meiri hluta
atkvæðisréttar (fskj. 2, IX). Urðu um málið nokkrar umræður,
en að lokum var því vísað til stjórnar L.í. til frekari athugunar,
einkum á því, hver væri vilji svæðafélaganna í þessu efni.
8. Rætt var um þá áskorun aðalfundar L.N.V. 1970 til stjórnar
L.í. að vinna að því í samstarfi við stjórnvöld landsins og
aðra aðila, að aflað verði öflugra þyrla, sem staðsettar verði
í landsfjórðungunum. Var samþykkt að vísa máli þessu einnig
til stjórnar L.Í., sem athugi fyrst um möguleika á rekstri tækj-
anna og geri síðan kröfur þar að lútandi (sjá fskj. 9, II).
9. Loks var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Læknafélagi Austur-
lands, og fylgdi henni löng greinargerð, sem einnig fer hér á
eftir (sbr. fskj. 12): „Aðalfundur Læknafélags fslands, haldinn
í Vestmannaeyjum 19.-21. júní 1970, felur stjórn sinni að hefja
nú þegar aðgerðir, er stefni í þá átt, að auka áhrif félagsins
á mótun og framkvæmd almannatrygginga hér á landi.
Verði þetta m. a. gert með því að fara þess á leit við ráð-
herra trygginga, að hann skipi mann, tilnefndan af L.Í., í nefnd
þá, er sett hefur verið til að semja frumvarp til nýrra trygginga-
laga“.
Felldar voru burt tvær síðustu málsgreinar tillögunnar um
aðstöðu, hvað snertir áhrif á ýmsa þætti trygginganna, svo sem
slysa-, sjúkra- og örorkutrygginga, og um að stefnt skuli að
því að gera embætti tryggingayfirlæknis áhrifameira innan
tryggingastofnunarinnar, til að áhrif stéttarinnar aukist og lækn-
isfræðileg sjónarmið ráði meiru við framkvæmd trygginganna.
Greinargerð með tillögunni: „Tryggingar alls konar, ekki sízt
almannatryggingar, eru að verða sífellt snarari þáttur í lífi
fólks hér á landi, og er raunar svo komið, að fæstir vita eða
gera sér grein fyrir þeim fjölmörgu sviðum og atvikum, sem
allflestir einstaklingar eru tryggðir fyrir, oft til mikils skaða
fyrir hinn tryggða.
Almannatryggingar eru stærstu mannúðarfyrirtæki velferð-
arþjóðfélaganna, og e. t. v. er nafnið velferðarþjóðfélag ekki
sízt notað til aðgreiningar milli þeirra og annarra þjóðfélaga,
þar sem þegnarnir eru ekki slíkra trygginga aðnjótandi fyrir
tilstilli ríkisvaldsins.
Okkur læknum er mikil nauðsyn að gera okkur fulla grein