Læknablaðið - 01.09.1979, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ
199
phosphamid vincristine á degi 1 og metho-
trexate á degi 21. Síðan endurtekið á 4 vikna
fresti í 6 umferðir. Geislun 3200 rad á primer
tiumorinn.
Þrír sjúklingar fengu fullkomna svörun, sem
stóð að meðaltali í 41 viku. Meðal lifslengd
þeirra var 58 vikur. Fjórir sjúklingar fengu
takmarkaða svörun, sem stóð að meðaltali í
15 vikur og meðal lífslengd 31 vika. Þrír sjúkl-
ingar fengu minni svörun með stöðvun á
framgangi sjúkdómsins og meðal lífslengd 24
vikur. Einn sjúklingur svaraði ekki meðferð.
Meðal legutími á spítala, frá byrjun með-
ferðar hjá 10 sjúklingum, sem fengu svörun,
voru 64 dagar, en meðal lífslengd 238 dagar.
Lyfja- og geislameðferð á smáfrumukrabba-
meini í lungum getur læknað sjúkdóminn
tímabundið og lengt líf, en enginn sjúkling-
anna fékk varanlega lækningu.
Þórarinn Sveinsson
Oskurðtækt adenocarcinoma pulm
Lyfja-geislameðferð
Frumárangur
Greint er frá „pilot" rannsókn á gildi stað-
bundinnar geisla- og fjöllyfjameðferðar, gef-
in samtímis gegn óskurðtæku adenocarcinoma
í lunga (stig III).
Fjórir sjúklingar hafa verið teknir til með-
ferðar, sá fyrsti í júlí ’78, annar i janúar ’79
og síðan tveir í marzmánuði ’79.
Geislun er gefin með Cobolt 60 á tveim
gagnstæðum reitum gegn tumor svo og
mediastinum, tvisvar i viku í þrjár vikur, síð-
an tveggja vikna hvíld og þá endurtekin með-
ferð með óbreyttum skömmtum.
Á fyrsta og áttunda degi í hvorri lyfjaseríu
er gefin hálftíma fyrir geislun intra venös
lyfjagjöf með Methotrexate og 5-Fluorouracili,
á fimmtánda degi 50% skammtur. Þá er og
gefið tabl. Endoxan per os þriðja hvern dag,
í allt fimm sinnum í hvorri lyfjaseríu.
Getið er um tumorútbreiðslu fyrir byrjun
meðferðar svo og frumárangri meðferðar.
Svörunin lokalt hefur verið það góð, að hún
hvetur til frekari rannsókna á þessari með-
ferð gegn adenocarcinoma pulm.
Læknarnir fjórir á myndinni hér að ofan eiga það allir sameiginlegt aö hafa útskrifast fyrir
50 árum frá Lœknadeild Háskóla Islands. Hafa þeir síSan unniS, hver á sínu sviSi, ómetanleg
störf á sviSi lœknavísindanna og á margan hátt verið brautryðjendur hérlendis. 1 sumar héldu þeir
upp á áfanga þennan og hittust fjórir, frá vinitri: SigurSur Sigurðsson, Bragi Óiafsson, Þóröur
Þóröarson og Karl SigurÖur Jónasson, en þeir Jón G. Nikulásson og Ólafur Einarsson, sem einn-
ig útskrifuöust fyrir 50 árum gátu ekki komiS því viö aö fagna þessum tímamótum.