Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
865
hélst á öðru rannsóknarárinu en í lyfleysu-
hópnum urðu mælingar aftur eins og við upp-
haf rannsóknar eða versnuðu jafnvel. I fyrsta
skipti hafa mælingar á rúmmáli blöðruhálskirt-
ils verið staðfestar í tvö ár í tvíblindri saman-
burðarrannsókn með lyfleysu hjá sjúklingum
með einkenni vegna góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli. Niðurstöður sýna ótvírætt að
meðhöndlun með fínasteríði stöðvar stækkun á
blöðruhálskirtli sem verður hjá karlmönnum í
þessum aldurshópi. Þessar niðurstöður ásamt
áhrifum á einkenni og þvagflæði, benda til að
fínasteríð geti stöðvað og jafnvel snúið við
framvindu góðkynja stækkunar á blöðruháls-
kirtli og geti viðhaldið batanum í að minnsta
kosti tvö ár.
Nánari staðfesting sést á því að færri sjúk-
lingar í fínasteríðhópnum þurftu að fá þvaglegg
vegna þvagteppu eða gangast undir aðgerð á
blöðruhálskirtli. Þetta var aftur á móti eftir-
greining með ófullkominni vissu (18,4% sjúk-
linganna hættu áður en rannsókninni lauk) og
því ekki hægt að telja örugga.
Tíðni kynlífsröskunar reyndist marktækt
hærri í báðum meðferðarhópum miðað við
fyrri rannsóknir (10,11), þar sem marktækur
munur í tíðni var um 3% milli fínasteríð- og
lyfleysuhópsins. í byrjun voru 45% sjúkling-
anna með kynlífsröskun sem ef til vill gæti
verið vegna meiri vilja karlmanna í okkar rann-
sókn til að tjá sig um kynferðisleg vandamál.
Vegna niðurstaðna fyrri rannsókna var sér-
staklega bent á hugsanlega kynlífsröskun af
völdum fínasteríðs í samþykktarblaði sjúk-
lings, en það gæti hafa aukið líkindi þess að
sjúklingur hafi tekið fram truflanir af slíku tagi
meðan á rannsókninni stóð. Þrátt fyrir þetta
leiddu aukaverkanir er höfðu áhrif á kynlíf
aðeins til þess að 3% fleiri sjúklinga í fínaster-
íðhópnum heldur en í lyfleysuhópnum hættu
meðferð.
Meirihluti sjúklinga á Norðurlöndum, sem
eru meðhöndlaðir vegna góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli eru meðhöndlaðir vegna
óþægindaeinkenna og einhverrar vitneskju um
þvagblöðruteppu sem metin er með þvagflæði-
mælingu. Sjúklingarnir í þessari rannsókn voru
með meðaleinkenni góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli og hámarksflæði sem gaf til
kynna væga eða enga þvagblöðruteppu hjá
flestum. Markmið meðhöndlunar þessa hóps
ætti að minnka einkenni og draga úr aðgerð-
um. Samt sem áður er brottnám blöðruháls-
Number of
patients
100 t
Finasteride Placebo
History of sexual dysfunction (ejaculation disorder,
erectile dysfunction.libido decrease or other)
No history of sexual dysfunction (ejaculation disorder,
erectile dysfunction.libido decrease or other)
Fig. 7. Adverse experience: impotence.
kirtils um holsjá í þvagrás (transurethral resec-
tion of the prostate, TURP) ennþá besta með-
ferðin á sjúklingum með mikla þvagblöðru-
teppu (6).
Lyfjameðferð er góður kostur til að minnka
einkenni sjúklinga með minniháttar teppu
(19). Niðurstöður þessarar tveggja ára saman-
burðarrannsóknar staðfesta fyrri niðurstöður
langtíma áhrifa fínasteríðs og ásættanlegra ör-
yggisþátta í vel stýrðum, klínískum slembi-
rannsóknum. Fínasteríð bætir einkenni og
þvagflæði, minnkar rúmmál blöðruhálskirtils
og þolist almennt vel.
Ályktun
Niðurstöður þessarar rannsóknar eru í sam-
ræmi við niðurstöður annarra rannsókna sem
hafa birst víða (9-12) og sýna að fínasteríðmeð-
ferð þolist vel og öryggi virðist gott. Minnkun á
rúmmáli blöðruhálskirtils á fyrsta árinu hélst út
annað ár meðferðarinnar og bæði einkenni og
hámarksþvagflæði löguðust marktækt meðan á
rannsókninni stóð. Meðferð með fínasteríði er
góður kostur í staðinn fyrir að bíða og sjá til og
getur snúið við eðlilegri þróun góðkynja stækk-
unar á blöðruhálskirtli.
HEIMILDIR
1. Oesterling JE. Benign prostatic hyperplasia: medical
and minimally invasive treatment options. N Engl J Med
1995; 332: 99-109.
2. Lytton B, Emery JM, Harvard BM. The incidence of