Læknablaðið - 15.04.1997, Page 38
230
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
eldri, hafi slit í mjöðmum og hnjám, hver sé
kynja- og aldursskipting þeirra, aldur við fyrstu
einkenni og tíðni gerviliðaaðgerða. Sérstaklega
verður litið til þess hvort um ættgengni sé að ræða
í þessum sjúkdómi.
Aðferðir: Spurningarlistar voru sendir til allra
40 ára og eldri íbúa Skútustaðahrepps 1. júní 1996
samkvæmt þjóðskrá, alls 195 einstaklinga. Unnið
er að því að yfirfara sjúkraskýrslur og röntgen-
myndir þessara einstaklinga, kortleggja tíðni
slitgigtar í ættum Mývetninga og grunnur lagður
að litningarannsókn.
Niðurstöður: Alls svöruðu 78 einstaklingar
þessum spurningarlista eða 40%. Mun betri
heimtur voru frá sveitaheimilum í Skútustaða-
hreppi heldur en úr þéttbýlinu í Reykjahlíð. Alls
svöruðu 48,3% úr sveitinni en 27,2% úr Reykja-
hlíð.
Alls töldu 43,6% þeirra sem svöruðu sig hafa
einkenni um slitgigt, annaðhvort í mjöðmum eða
hnjám og stærsti hluti þessa fólks, eða 88,2%
höfðu leitað til lækna vegna einkennanna. Af
þeim sem svöruðu spurningarlistunum höfðu
16,7% gengist undir gerviliðaaðgerð, annaðhvort
á hnjám eða mjöðum. Samkvæmt sjúkraskýrslum
FSA, hafa að minnsta kosti 12,3% íbúa Skútu-
staðahrepps 40 ára og eldri gengist undir gervi-
liðaaðgerð á mjöðmum eða hnjám.
Ályktun: Slit í mjöðmum og hnjám Mývetninga
er algengt og líklega algengara en gengur og gerist
meðal annarra Islendinga.
E-23. Hálkuslys
Sigurður Ásgeir Kristinsson*, Axel Hilmars-
son***, Hersir Oddsson***, Óskar Porvalds-
son***, Pálína Ásgeirsdóttir*, Pétur Kr. Péturs-
son***, Brynjólfur Mogensen**
Frá *slysa- og bráðamóttaka Sjúkrahúss Reykja-
víkur, **lœknadeild HÍ, ***embcetti borgarverk-
frœðings í Reykjavík
Inngangur: Tilgangur rannsóknar á hálkuslys-
um er að kanna algengi þeirra, greina eðli og
kostnað fyrir einstakling og þjóðfélag en lítið er
vitað um hálkuslys hér á landi.
Efniviður: Rannsóknin náði til allra sem komu
á slysa- og sjúkravakt Sjúkrahúss Reykjavíkur frá
1. nóvember 1995 til 30. aprfl 1996 vegna áverka
sem orsakast af hálku (snjór, krapi, ísing). Skrán-
ing var framkvæmd við komu á slysa- og sjúkra-
vakt og líðan könnuð símleiðis þremur mánuðum
eftir slys.
Niðurstöður: Alls leituðu 520 einstaklingar á
slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur
vegna hálkuslysa yfir tímabilið. Miðað við fjölda
hálkudaga má gera ráð fyrir fimm hálkuslysum á
dag að jafnaði. Konur slösuðust í 57% tilfella en
karlar í 43%. Meðalaldur kvenna var 42 ár (1-88)
og karla 40 ár (2-81). Fótgangandi voru 89%.
Áverkar eftir umferðarslys sem eingöngu mátti
rekja til hálku voru skráð í 8% tilvika og hjól-
reiðaslys í 3% tilvika. Tæplega helmingur akandi
einstaklinga voru ökumenn undir tvítugsaldri.
Rúmlega helmingur slysanna áttu sér stað við
heimahús og fyrirtæki (54%) en aðeins 29% slysa
áttu sér stað á umferðargötum eða á gangstígum
við umferðargötur. Flest slysin áttu sér stað í des-
ember, janúar og febrúar en aðrir mánuðir voru
sérstaklega snjóléttir miðað við undanfarin ár.
Flest slysin urðu við skyndilegar ísingaraðstæður
en fækkaði með auknum snjó. Slysin voru algeng-
ust á tímabilinu 12-14 en fæst á tímanum 18-21.
Slysatími er háður aldri.
Algengast var að slysin yrðu við frístundastörf
(65%). Áverkagreiningar 520 slasaðra voru 573.
Með brot greindust 33%, tognanir voru hjá 28%,
mar hjá 20% og sár hjá 10%. Átta af hundraði
slasaðra voru lagðir inn á sjúkrahús í sex daga að
meðaltali. Algengastir eða 35% voru áverkar á
efri útlimum, 25% áverka voru á neðri útlimum,
20% á höfði, 10% á hálsi og 5% á brjósti og kviði.
Við athugun þremur mánuðum eftir slys töldu
46% slasaðra sig hafa náð fullum bata og 26% að
mestu leyti en 28% slasaðra töldu sig ekki hafa
náð bata. Batahorfur virtust betri hjá körlum en
konum og batahorfur voru háðar aldri. Fleiri kon-
ur en karlar hlutu beinbrot og tognun en svipað
kynjahlutfall var við aðra áverka. Fimmtíu og
fimm af hundraði slasaðra voru útivinnandi og
voru að jafnaði 13 fjarvistadaga frá starfi.
Umræða: Þrátt fyrir mildan vetur leituðu 520
einstaklingar á slysa- og bráðamóttöku vegna
hálkuslysa. Flest slysin virtust gerast við aðstæður
þar sem fólk var óviðbúið hálku. Gera má ráð
fyrir 15 ársstörfum eða 20 milljónum króna árlega
eingöngu í fjarvistakostnað útivinnandi einstak-
linga á höfuðborgarsvæðinu. Fækkun hálkuslysa
næst fyrst og fremst með fyrirbyggjandi aðgerð-
um.
E-24. Umferðarslys Reykvíkinga árið
1994
Brynjólfur Mogensen* *****, Karl Kristjánsson*
Frá *slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykja-
víkur, **Slysavarnaráði íslands, ***lœknadeild
HÍ
Inngangur: Góð og nákvæm skráning umferð-
arslysa er forsenda þess að hægt sé að bera saman
slysatíðni. Einnig forsenda markvissra forvarna
og nýtingu fjármagns. Miklir hagsmunir einstak-
linga og samfélags eru í húfi.