Læknablaðið - 15.12.1997, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
811
lungnamynden einnig23% neikvæðra. Aðeins
33% jákvæðra fengu nreðferð til að uppræta
sýkingu og tóku 88% þeirra lyf í að minnsta
kosti sex mánuði.
Ályktun: Berklapróf ætti að vera ófrávíkjan-
legur hluti af heilbrigðisskoðun innflytjenda
ásamt lungnamynd þegar hún á við. Það ætti að
veita meðferð gegn berklasmitun oftar en gert
er í dag.
Inngangur
Berklar náðu hámarki á íslandi á fjórða ára-
tugi þessarar aldar en eftir það dró verulega úr
nýgengi sjúkdómsins. Á síðasta áratugi hefur
þó nýgengi berklaveiki aukist aftur víða um
heint og á það jafnt við um þróuð lönd sem
vanþróuð (1). Helstu þættir sem tengjast þess-
ari aukningu eru fátækt, atvinnuleysi, vímu-
efnaneysla, faraldur alnæmis og fólksflutning-
ar, að ógleymdum minnkandi fjárveitingum til
berklavarna. Enginn þessara þátta er viðamik-
ill hérlendis nema auknir fólksflutningar.
Líkt og erlendis hefur á síðari árurn æ stærra
hlutfall nýgreindrar berklaveiki á íslandi
greinst hjá einstaklingum af erlendum uppruna
(2-4). Árið 1981 bjuggu á íslandi 6195 einstak-
lingar sem voru fæddir erlendis en 1996 var
samsvarandi tala 11.579. Aukningin er hlut-
fallslega meiri frá svæðum þar sem vitað er að
mikið er um berkla. Þannig fjölgaði fólki frá
Asíu á sama tímabili úr 175 í 1322.
Aðrir áhættuþættir en fólksflutningar vega
misþungt eftir löndum og tíma (5) og í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku var til dæmis alnæmi
talið skýra um 30-57% af aukningu berklatil-
fella á árunum 1985-1992 (6-8). Á íslandi hafa
tveir sjúklingar greinst með bæði berklaveiki
og alnæmi.
Hvert stefnir í þessum málum á íslandi og
hvert er nýgengið meðal innflytjenda? Hafa
þeir sjúkdóminn við komu eða fá þeir hann
síðar? Hafi þeir sjúkdóminn við komu á að
vera auðvelt að greina hann og meðhöndla.
Komi berklaveiki fram síðar má spyrja hvort
unnt hefði verið að fyrirbyggja hana með því
að meðhöndla berklasmitun sem oft er til stað-
ar við fyrstu rannsókn.
Leitað var svara með því að kanna fáanleg
gögn um alla innflytjendur sem greinst höfðu
með berkla á árunum 1975-1996. Til að skoða
málið frá öðru sjónarhorni voru einnig könnuð
gögn þeirra sem sóttu um dvalar- og/eða at-
vinnuleyfi árið 1995 og fundinn fjöldinn sem
greindist með berklasmitun annars vegar og
berklaveiki hins vegar. Einnig var kannað
hvernig tekist hefði til hjá þeim innflytjendum
sem greindust með berklasmitun og féllust á að
byrja lyfjameðferð.
Efniviður og aðferðir
Notuð voru gögn frá Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur en þar hefur verið færð berkla-
skrá um öll berklatilfelli frá 1975. Leitað var
innflytjenda sem greinst höfðu með berkla á
árunum 1975-1996. Farið var yfir berklaskrá og
hún skoðuð með tilliti til uppruna og fæðingar-
staðar. Ur gögnum þeirra sem þannig fundust
voru eftirfarandi atriði skráð: fæðingarland,
lengd dvalar á íslandi, hvort viðkomandi var
skoðaður með tilliti til berkla við komu til
landsins, niðurstaða þeirrar skoðunar og hvort
gripið hafði verið til viðeigandi meðferðar í
framhaldi af heilbrigðisskoðun. Innflytjandi er
einstaklingur fæddur erlendis sem sótt hefur
um atvinnu- og/eða dvalarleyfi á íslandi.
Stjórnvöld setja það skilyrði að allir hand-
hafar ríkisborgararéttar utan Evrópska efna-
hagssvæðisins framvísi læknisvottorði hjá Út-
lendingaeftirliti áður en atvinnu- og dvalarleyfi
er veitt. Ekki hefur verið sett skilyrði um það á
hvaða rannsóknum vottorðin eigi að byggjast
heldur hafa læknar verið látnir ráða því sjálfir
og vottorðin hafa ekki heldur verið yfirfarin af
læknum á vegum Útlendingaeftirlits.
Farið var yfir öll ný dvalar- og atvinnuleyfi
sem veitt voru árið 1995. Við veitingu dvalar-
leyfa það árið reyndust 27% umsækjenda til-
heyra Evrópska efnahagssvæðinu og voru und-
anþegin vottorðaskyldu og þar með rannsókn-
um. Öðrum dvalarleyfum fylgdu vottorð og
reyndust þau vera 559 talsins. Þau voru skoðuð
og frekari gagna leitað ef á þurfti að halda hjá
læknum sem gáfu þau út. Eftirtalin atriði voru
skráð: aldureinstaklings, upprunaland, áætlað
nýgengi berkla í fæðingarlandi (9), hvort
berklapróf hafði verið gert og niðurstaða þess,
hvort tekin hafði verið röntgenmynd af lungum
og niðurstaða hennar, hvort meðferð hafði
verið beitt gegn berklaveiki eða berklasmitun
og hvort viðkomandi hafði lokið þeirri með-
ferð.
Hin hefðbundna ábending fyrirbyggjandi
meðferðar við berklasmitun er til staðar ef við-
komandi er jákvæður á berklaprófi (10 mm eða
meira), er yngri en 35 ára og er frá landi með
miðlungs eða hátt nýgengi berkla (10,11). í