Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
829
Meinvörp í stunguörum eftir gallkögun
Sjúklingur með óvænt hulið briskrabbamein
Siguröur Þór Sigurðarson, Margrét Oddsdóttir, Jónas Magnússon
Sigurðarson SÞ, Oddsdóttir M, Magnússon J
Subeutaneous metastasis after laparascopic chole-
cystcctomy in a patient with unsuspected adenocarci-
noma of the pancreas
Læknablaðið 1997; 83: 829-30
A 63 year old patient underwent uneventful laparo-
scopic cholecystectomy in 1994. The patient had a
long history of biliary colic after fatty meals. The
chief presenting symptom was pain localized in the
epigastrium radiating to the back and later distribut-
ing to the whole abdomen. The patient also had a
history of constipation, but no other symptoms were
noted. An ultrasonogram of the liver, gall bladder
and pancreas was reported to show calculi in the gall
bladder but otherwise normal findings. The lapara-
scopic cholecystectomy was uneventful with dis-
charge the following day. The symptoms however
did not disappear, changing in character, locating at
the center of the abdomen. The patient began to
lose appetite with bouts of diarrhea. The symptoms
gradually increased and the patient was admitted to
the hospital. Upon arrival the patient was found to
have diffuse abdominal pain with a painful swelling
of the umbilical trocar site. Incarcerated hernia was
suspected, but proved to be a mass at exploration.
Pathologic examination disclosed a metastatic ade-
nocarcinoma. A similar but smaller mass was also
discovered in the epigastric trocar site. CT scan
showed a pancreatic carcinoma of the corpus with
infiltration. The patient deteriorated rapidly and
died four months after the diagnosis of pancreatic
cancer.
Keywords: portsite metastasis, laparascopiccholecystec-
tomy, case report.
Frá "læknadeild Háskóla Islands, 2,handlækningadeild
Landspítalans. Bréfaskipti, fyrirspurnir: Sigurður Þór Sig-
urðarson lyflækningadeild Landspítalans, 101 Reykjavík.
Lykilorð: meinvörp í stunguöri, gallkögun, sjúkratilfelli.
Ágrip
Árið 1994 var framkvæmd gallkögun á 63 ára
gömlum sjúklingi vegna gallkveisu, aðgerðin
gekk vel fyrir sig. Ómskoðun sem hafði verið
framkvæmd fyrir aðgerð sýndi einungis gall-
steina. Eftir aðgerð héldu verkir áfram en voru
nú aðallega í miðjum kviði. Einum mánuði
eftir aðgerð var sjúklingur lagður inn brátt
vegna verkja um allt kviðarhol og auma fyrir-
ferð í naflaörinu. Vegna gruns um innklemmt
naflakviðslit var sjúklingur tekinn til aðgerðar.
Fyrirferð var skorin burt og reyndist vera
meinvarp frá kirtilkrabbameini. Svipuð fyrir-
ferð fannst í öðru stunguöri. Tölvusneiðmynd
sýndi krabbamein í brisi. Einkenni sjúklings
versnuðu mjög hratt og lést hann fjórum mán-
uðum síðar.
Fylgikvillar koma í stunguör eftir kaganir
eins og önnur ör. Ýmsar tilgátur eru uppi um
orsakir þessara meinvarpa. Meinvörpum í
stunguörum eftir gallkögum hefur ekki verið
lýst í þremur stórum uppgjörum á gallkögun-
um. Þetta virðist því vera sjaldgæf hliðarverk-
un en þó hefur nokkrum tilfellum verið lýst.
Inngangur
Gallkaganir hófust hérlendis haustið 1991 og
frá þeim tíma hafa mörg hundruð aðgerðir
verið framkvæmdar, að auki hafa aðrar kögun-
araðgerðir rutt sér til rúms. Helstar eru botn-
langaaðgerðir og aðgerðir vegna þindarslits en
einnig ristilaðgerðir og kviðslitsaðgerðir. Allir
læknar sjá nú sjúklinga sem hafa nýlega gengið
undir kögunaraðgerð. Tilgangur þessarar
greinar er að beina sjónum lækna að því að
meinvörp geta sest að í stunguörunum.
Sjúkratilfelli
Sextíu og þriggja ára gamall sjúklingur