Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1997, Side 62

Læknablaðið - 15.12.1997, Side 62
Skjótvirkt magalyf Lanser (Omega Farma, 950073) SÝRUHJÚPHYLKI; A 02 B C R. Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Lansoprazolum INN 30 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (H , K - ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úrframleiðslu magasýru, bæði grunnframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá smáþörmum, en breytist í virkt form í súru umhverfi paríetalfrumnanna. Fylgni er milli áhrifa á sýruframleiðslu og flatarmáls undir blóðþéttniferlinum (AUC), en ekki blóðþéttni hverju sinni, Blóðþéttni nær hámarki 1,5 klst. eftirtöku lyfsins. Aðgengi er yfirleitt hátt (80-90%), en er mjög breytilegt milli einstaklinga. Binding við plasmaprótein er um 97%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst.; hann lengist með hækkandi aldri og við skerta lifrarstarfsemi. Lyfið umbrotnar að fullu í lifur og skilst út sem óvirk umbrotsefni, 65% í saur og afgangur i þvagi. Ábendingar: Skammtimameðferð á sársjúkdómi í skeifugörn og maga. Skammtímameðferð á bólgu í vélinda vegna bakflæðis. Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með röntgen eða speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Við skerta lifrarstarfsemi er helmingunartími lengdur og skammta getur þurft að minnka. Meðganga og brjóstagjöf: Klínísk reynsla af gjöf lyfsins á meðgöngutíma er litil. Fósturskemmdir hafa ekki komið fram við dýratilraunir. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Miðtaugakerfi: Höfuðverkur, svimi. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, magaverkir, hægðatregða, uppköst, vindgangur. Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%); Þreyta. Millivcrkanir: Lyfið umbrotnar fyrir tilstilli cýtókróm P-450 enzýma og gðeti haft milliverkanir við önnur lyf sem þetta enzýmkerfi umbrýtur. Lyfið virðist ekki hafa milliverkanir við diazepam, fenýtóín, teófýllín', warfarín, sýrubindandi lyf eða bólgueyðandi gigtarlyf. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin verður að gleypa i heilu lagi. Lyfið er ætlað til skammtímameðferðar, mest í 8 vikur. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag i 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram i 2 vikur í viðbót. Magasár: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Bólga i vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag i 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Skammtastærðir handa bömum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: Sýruhjúphylki 30 mg: 14 stk. 3.043 kr.; Sýruhjúphylki 30 mg: 28 stk. 5.901 kr.;Sýruhjúphylki 30 mg: 56 stk. 11.230 kr. LANSER (lansóprazól) - nýtt, skjótvirkt og áhrifarlkt íslenskt magalyf Q Omega Farma \ HfUNÚAUaÝ

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.