Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1997, Síða 70

Læknablaðið - 15.12.1997, Síða 70
852 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 íðorðasafn lækna 95 Orðabanki Málræktarþing íslenskrar málnefndar var haldiö laugar- daginn 15. nóvember 1997. Þar fór meðal annars fram kynning á Orðabanka Islenskrar mál- stöðvar og síðan opnaði menntamálaráðherra bankann inn á Alnetið. Hugmyndin að íðorðabanka mun fyrst hafa komið fram á árinu 1979. í reglugerð um Islenska mál- nefnd og Islenska málstöð frá 1987 er kveðið á um undirbún- ing slíks banka, en skriður komst ekki á framkvæmdir fyrr en á árinu 1995. Fram til þess tíma höfðu íðorð ýmissa orðan- efnda þó verið tölvuskráð á Is- lenskri málstöð, meðal annarra íðorðasafn lækna, þannig að gera mætti úr þeim einn íðorða- banka. Nú er hugmyndin orðin að veruleika og netverjar geta fyrst um sinn fengið ókeypis að- gang. Fjórtán orðasöfn voru komin í bankann við opnun hans og kennir þar ýmissa grasa, allt frá bíl- og flugorða- söfnum til orðaskráa í efnafræði ogstjörnufræði. Slóðiner þessi; http://www.ismal.hi.is/ob/ index.html íöorðasafn Iækna á Netinu Af ýmsum ástæðum náðist ekki að opna aðgang að íðorða- safni lækna á fyrsta degi bank- ans, en formlegur samningur um birtingu hefur verið gerður og vonir standa til að safnið verði komið á Netið þegar þessi pistill birtist. Rétt er að vekja athygli á því að heildarendur- skoðun safnsins hefur ekki farið fram, og að það íðorðasafn sem birtist í orðabankanum er fyrst og fremst það sem kom út í litlu heftunum frá árunum 1985- 1989. Orðanefnd lækna skipu- leggur nú endurskoðun Iðorða- safnsins og vonast til að eiginleg orðabókarvinna hefjist í upp- hafi árs 1998. Að henni lokinni er gert ráð fyrir að safnið verði einnig gefið út á formi sem henti einkatölvum, hvort heldur er á sjúkrahúsum, skrifstofum eða heimilum. Einnig má vekja at- hygli á því að heftin eru enn til sölu á skrifstofu læknafélag- anna og fást á gamla góða verð- inu kr. 5000. Það er að sjálf- sögðu miklu fljótlegra að grípa hefti úr bókahillunni til upp- flettingar, en að rekja sig eftir slóð veraldarvefsins fyrir eitt einasta orð. Uppflettingar í Orðabankanum samhliða langri ritvinnslu í tölvu verða þó von- andi nægilega hraðvirkar. Referral center Ásbjörn Jónsson, yfirlæknir á röntgendeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, sendi nýlega í tölvupósti beiðni um aðstoð við þýðingu á referral center. Til- tækar ensk-amerískar læknis- fræðiorðabækur birta ekki þetta hugtak sem sjálfstæða flettu, en hin mikla líf- og læknisfræði- orðabók Wileys lýsir referral þannig: Pað að senda sjúkling til annars aðila í heilbrigðiskerf- inu, venjulega til sérhœfðrar þjónustu, eða til annarrar stofn- unar eða þjónustudeildar. Cent- er er þar meðal annars þannig lýst: Stöð sem þjónar samfélagi eða sérstökum hópi og veitir til- tekna sérhæfða þjónustu. Ið- orðasafn lækna birtir þýðingar á center: miðja, miðbik, stöð, miðstöð, en referral finnst þar ekki. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs þýðir referral hins vegar með nafnorðinu til- vísun. Læknar hafa lengi notað íslenska nafnorðið tilvísun, annars vegar um þann gerning að vísa sjúklingi til annars aðila í heilbrigðiskerfinu, einstaklings eða stofnunar, og hins vegar um þá formlegu beiðni sem fylgir sjúklingi til staðfestingar tilvís- uninni og til nánari lýsingar á ástæðum hennar. Ásbjörn leggur áherslu á þann skilning að „slík deild sé endastöð í þjónustunni“. Orðin miðja, miðbik og stöð gefa slíkt tæpast nógu vel til kynna. Fyrir þá sem hafa kynnst handvirkum símstöðvum eða eldri upphitun- arkerfum íbúðarhúsa, er mið- stöð hins vegar sá staður sem allir þræðir liggja til eða allar leiðslur liggja frá. Að þessu sögðu liggur beint við að gera þá tillögu að referral center verði tilvísunarmiðstöð. Heitið gerir þó ekki endilega ráð fyrir að um „endastöð" sé að ræða, áhersl- an er á lykilstöðu eða megin- aðsetur tiltekinnar þjónustu. Vinulág í 93. pistli var stutt umfjöllun um heiti á philtrum, sem er dældin í miðri efri vör beint undir miðsnesi. Magnús Snædal vakti athygli mína á þvf að til er heitið vinulág. Hann telur það komið frá Bjarna Pálssyni, lækni, sem skipaður var fyrsti landlæknir íslendinga árið 1760. Heitið finnst í Islenskri orðabók Máls og menningar. Vinulág er skáldlegt heiti og fallegt og í samræmi við þá upprunaskýr- ingu á latneska heitinu philtr- um, að það sé komið af grísku sögninni phileo, að elska. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.