Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
309
heimahúsum, fjögur við landbúnaðarstörf, fjögur af
völdum bruna og þrjú önnur dauðaslys áttu sér stað.
Alyktanir: Dauðaslys barna eru algengari á
landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Dauða-
slys dren^ja eru mun algengari en stúlkna. Um-
ferðarslys voru algengasta orsökin en tíðni drukkn-
ana er há miðað við hin Norðurlöndin. Sem helstu
leiðir til forvarna má nefna betra eftirlit fullorðinna
með börnum. Þau virðast vera of mikið sjálfala og
undir of litlu eftirliti.
E-31. Forgangsröðun á biðlistum.
Viðhorf sérfræðinga til biðlista
Aðalheiður Sigursveinsdóttir heimspéianemi
Frá landlœknisembœttinu
Inngangur: Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi
á starfsaðferðir sérfræðinga og einstakra deilda inn-
an heilbrigðisþjónustunnar við forgangsröðun á
biðlistum sjúkrastofnana. Meginspurningin sem
liggur að baki þessari könnun er: Fá allir sömu
þjónustu þegar raðað er á biðlista? í þessum fyrir-
lestri er fyrirhugað að kynna þær niðurstöður sem
lúta að viðhorfum sérfræðinga til biðlista og for-
gangsröðun sjúklinga.
Efniviður og aðferðir: Könnun var gerð meðal
54 sérfræðinga á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Landspítalanum
vegna biðlista og forgangsröðunar á þeim. Urtakið
var valið með hliðsjón af þeim deildum sem skila
tölum um fjölda einstaklinga á biðlistum til land-
læknisembættisins.
Spurningalistanum var skipt niður í þrjá hluta. I
fyrsta hluta voru kannaðar hugmyndir sérfræðinga
um samræmingu á aðferðum innan eigin deilda. I
öðrum hluta var spurt um mismunandi þætti sem
geta haft áhrif á röðun sjúklinga á biðlista, meðal
annars þætti sem snúa beint að sjúklingi svo sem
lifnaðarhætti, félagslega stöðu þeirra, búsetu, lík-
amlegt ástand og aldur. Einnig var spurt um áhrif
þátta sem lúta að mati sérfræðings, svo sem endur-
tekningar á meðferð, líðan og svefn sjúklinga sem
og hæfni sjúklinga til að sjá um sig sjálfa. í þriðja
hluta spumingalistans var spurt um viðhorf sér-
fræðinga til biðlista. Rætt var við um 30 sér-
fræðinga í tengslum við rannsóknina. Auk heild-
arniðurstaðna var svörum sérfræðinga skipt niður
eftir deildum sjúkrastofnanna.
Niðurstöður: Fram kom að þriðjungur sér-
fræðinga sagði að sér þætti vandasamt að raða á
biðlista. Þessum sérfræðingum fannst jafnframt að
starfsreglur sínar við mat á sjúklingum væru ekki
nógu skýrar. Þessir sérfræðingar telja sig síður hafa
yfirsýn yfir þann hóp sem hefur haft forgang á
biðlistum hjá þeim.
Sérfræðingar úrtaksins skiptast í nær jafn stóra
hluta í afstöðu sinni til laga um hámarksbiðtíma
sjúklinga. Upplýsingagjöf sérfræðinga til sjúklinga
vegna biðlistanna er nokkuð mismunandi og verður
hún rædd með hliðsjón af lögum um réttindi sjúk-
linga. Meðferð og endurskoðun á biðlistum verður
kynnt en hún er mismunandi eftir deildum.
Alyktanir: I Ijós kom að margvíslegar hug-
myndir eru meðal sérfræðinga um hvort og hversu
mikið til dæmis félagslegir þættir og lifnaðarhættir
komi inn í mat á þörfum einstaklinga fyrir meðferð.
Nokkurs misræmis gætir milli sérfræðinga á ein-
stökum deildum með sama sérsvið og milli deilda á
sömu stofnun. Meginniðurstaða þessarar könnunar
er sú að matsaðferðir sérfræðinga vegna forgangs á
biðlistum eru ekki alfarið samræmdar. Reglur um
forgangsröðun sjúklinga á biðlistum á sjúkrahúsun-
um þremur eru ekki fyrir hendi en þó má þar greina
ákveðið mynstur varðandi áhrifaríkustu þætti for-
gangsröðunar.
E-32. Hvernig afgreiddi landlæknir
1546 kæru- og kvörtunarmál á árunum
1991-1997?
Ólafur Ólafsson, Matthías Halldórsson
Frá landlœknisembœttinu
Sagt verður frá afgreiðslu 1546 kvartana- og
kærumála er bárust landlæknisembættinu á árunum
1991-1997. Allflest málin beinast að læknum sér-
greinasjúkrahúsanna. I flestum tilfellum voru or-
sakirnar meint mistök (48,5%) og meintir sam-
skiptaerfiðleikar. Milli 31-37% þessara mála voru
staðfest að öllu leyti eða að hluta. Um aðgerðir
landlæknis má lesa um í töflu I.
Tafla I. Aðgerðir landlæknis vegna kvartana- og
kœrumála við málslok 1991-1997.
Ábending 25,3%
Aðfinnsla 9,9%
Áminning 1,5%
Annað 2,1%
Tillaga um leyfissviptingu 0,2%
I vinnslu 3.4%
Alls hafa níu læknar verið sviptir Ieyfi til lækn-
inga á tímabilinu 1976-1991 og þar af tveir vegna
alvarlegra samskiptaerfiðleika. Hlutfallslega hafa
fleiri læknar verið sviptir lækningaleyfi á Islandi en
í sumum nágrannalöndunum.
E-33. Tölvusjúkraskrá í sjúkrahúsum-
hverfi á Landspítalanum
Halldór Jónsson jr.‘, Ingi S. Ingason2, Jörundur
Sveinssoir, Þorsteinn Víglundsson2
Frá 'bœklunarskurðdeild Landspítalans, 'Gagna-
lind hf.
Inngangur: Tölvuvinnsla sjúkragagna er krafa
nútíma heilbrigðisþjónustu. A Landspítalanum
hófst tölvuvæðing biðlista og sjúkraskrár bæklun-