Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1998, Qupperneq 39

Læknablaðið - 15.05.1998, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 399 Af hverju allt þetta umstang? I Siðareglum lækna (6) er í meginreglum lögð áhersla á að „varðveita leyndarmál sjúk- linga“. í 26. grein Siðareglnanna segir: „Lœkni er skylt að forðast affremsta megni að hafast nokkuð að er veikt gœti trúnaðarsam- band hans við sjúklinga. Lœkni er óheimilt að Ijóstra upp einkamál- um, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða Itann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu, nema með samþykki sjúklingsins, eftir úrskurði dómara eða samkvœmt lagaboði. Lcekni ber að áminna samstarfsfólk um að gœta fyllstu þagmœlsku um allt er varðar sjúk- linga hans". Þessar reglur hafa ávallt verið hafðar í heiðri, þó auðvitað hafi stöku sinnum orðið misbrestur á sem valdið hefur sjúklingum óþægindum og tjóni. Skemmst er að minnast þess þegar geðlækn- ir sagði í endurminningum sínum frá einkamál- um sjúklings. Læknasamtökin og heilbrigðisyf- irvöld brugðust að vonum hart við og er nú rek- ið mál fyrir dómstólum gegn lækninum. En er ekki gagnagrunnurinn öruggur? Prófessor í tölvunarfræðum hefur bent á að svo sé ekki (Morgunblaðið 1998, 16. apríl). Með nokkurri læknisfræðilegri þekkingu er lít- ill vandi að þekkja einstaklinga ákveðinna ætta. Fyrir þá sem vilja er auðvelt að brjóta jafnvel flóknustu dulkóða. Gagnstætt því sem forstjóri Islenskrar erfðagreiningar hélt fram í viðtali við Morgunblaðið hinn 3. apríl, snýst málið ekki um hvort á heilbrigðisstofnunum starfi eingöngu heiðvirðir einstaklingar, en við gagnagrunninn starfi hins vegar vondir menn sem færu um upplýsingarnar af subbuskap. Þessi skipting fólks í tvo flokka er fjarri sanni. Auðvitað eru langflestir sem að þessum málum starfa vel menntaðir og heiðarlegir. Freisting- arnar eru hins vegar margfalt meiri þegar sam- an eru komnar á einn stað allar heilsufarsupp- lýsingar um alla Islendinga og að „mati mark- aðarins“ eru upplýsingar þessar óhemju verð- mætar. Beinlínutenging til þeirra sem kaupa upplýs- ingar úr gagnagrunninum og fjármagna í raun verkefnið, gerir enn erfiðara að viðhalda nafn- leynd. Dulkóðinn verður eðli málsins sam- kvæmt ný kennitala og þann kóða er líka hægt að leysa. Stefnubreyting Heilbrigðisráðuneytisins Innan Heilbrigðisráðuneytisins er verið að vinna öflugt starf að upplýsingamálum og vinna er í gangi við að tölvuvæða sjúkraskrá á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Allir eru sammála um að slík vinna er nauðsynleg og all- ir hafa lagst á eitt til að tryggja að upplýsing- arnar séu sem best tryggðar. I stefnuyfirlýsingu Heilbrigðisráðuneytisins (7) er lögð áhersla á að friðhelgi einkalífsins verði tryggð. Þar segir ennfremur: „þeirri meg- inreglu verður fylgt að upplýsingar séu varð- veittar þar sem þœr verða til. Ekki er áformað að setja upp miðlœgan gagnabanka með per- sónutengdum upplýsingum um heilsufarsmál- efni“. Svo mörg voru þau orð. Hver er stefnan í upplýsingamálum ráðuneytisins? Hver á sjúkraskrárnar? I lögum um réttindi sjúklinga (1) kemur ekki beinlínis fram hver á sjúkraskrárnar. í 14. gr. laganna segir að sjúkraskrána skuli varðveita á heilbrigðisstofnun þar sem hún er færð eða hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni sem færir hana á eigin starfsstofu. Sjúkraskráin hefur alltaf verið talin eign þeirrar stofnunar sem hún er skráð á eða lækn- isins sem færir hana á eigin stofu. Eina vafa- málið í þessum efnum snýst um eignarrétt sjúk- lingsins sjálfs á upplýsingunum. Nauðsynlegt er að gefa sér ítarlegri tíma til að komast að niðurstöðu um eignarréttinn. Eins og framkomið frumvarp ber með sér eru upp- lýsingar um veikindi fólks markaðsverðar. Nið- urstaða þarf að liggja fyrir áður en farið er að selja gögn og upplýsingar sem einhver annar á. Niðurstaða Eins og fram hefur komið er ljóst að ekki er hægt að samþykkja framkomið frumvarp um gagnagrunna á heilbrigðissviði í því formi sem það liggur fyrir. Til þess eru álitamálin allt of mörg. Ekki hefur í þessum orðum verið fjallað um einkaleyfi til upplýsinga úr gagnagrunnin- um og eingöngu lítillega minnst á beinlínu- tengingu kaupenda upplýsinganna úr grunnin- um. Einkaleyfið leiðir af sér einokun og hún er vísasti vegurinn til stöðnunar. Einokun á vís- indasviði er ekkert öðru vísi en einokun á öðr- um sviðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.