Læknablaðið - 15.05.1998, Blaðsíða 73
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
431
Minningarorð Þórarinn
Látinn er í Reykjavík Þórarinn
Olafsson yfirlæknir tæpra 63 ára.
Heilsu hans hafði farið hnign-
andi á undanförnum árum og
kom fráfall hans því ekki á óvart
þeim sem til þekktu. Mein í heila
varð honum að aldurtila. Hann
var þeim sem kynntust honum
eftirminnilegur fyrir margra
hluta sakir og er hans nú saknað
þar sem hann er látinn um aldur
fram.
Þórarinn fæddist í Reykjavík.
Foreldrar hans voru hjónin Erla
Þórarinsdóttir Egilson og Olafur
Geirsson sem var mikils metinn
læknir. Systkini Þórarins eru
Skúli og Erla.
Að loknu stúdentsprófi 1954
lagði hann stund á læknisfræði
og lauk embættisprófi 1961. Sér-
fræðinám í svæfingarlæknis-
fræði stundaði hann einkum við
Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gauta-
borg. Hann var yfirlæknir svæf-
ingadeildar Vánersborg-Troll-
háttan sjúkrahúsanna 1972, en
1975 var hann skipaður yfir-
læknir svæfinga- og gjörgæslu-
deildar Landspítalans, þar sem
hann starfaði síðan. Þegar hann
hóf störf hérlendis voru svæf-
ingalæknar fáir, en verkefni mik-
il. Hann varð því strax önnum
kafinn við klíníska vinnu bæði á
skurðstofum og á gjörgæslu-
deild. Jafnframt byggði hann
upp starfsemi svæfingadeildar-
innar ásamt samstarfsmönnum
sínum og fór starfsemin vaxandi
ár frá ári. Fljótlega hlóðust á
hann ýmis stjórnunar-, nefnda-,
Fæddur 20. mars 1935
Dáinn 23. febrúar 1998
fræðslu- og félagsstörf. Ekki
verða öll þau störf talin hér, en
nefna má sviðsstjórn á hand-
lækningasviði, forsetastörf í nor-
ræna svæfingalæknasambandinu
og hann var forseti þings sam-
takanna í Reykjavík 1985.
Áhugamál hans innan læknis-
fræðinnar voru mörg. Seinustu
árin voru það einkum rannsóknir
á illkynja háhita sem áttu hug
hans. Það er sjúkdómsmynd,
mjög sjaldgæf þó, sem stafar af
galla í kalkbúskap vöðvafrumna
og svæfingalyf geta leyst úr læð-
ingi. Eðli þessa fyrirbæris eru nú
að mestu ljós og lyf eru til sem
stöðva framvindu einkenna. Þór-
arinn lagði mikla áherslu á að
halda við þekkingu sinni og bæta
nýrri við. Þess vegna sótti hann
fjölda af ráðstefnum og nám-
skeiðum víðs vegar.
Þórarinn var félagslyndur með
afbrigðum og fyrir utan þátttöku
í félögum heilbrigðisstétta tók
hann mikinn þátt í starfsemi
Lionshreyfingarinnar og klúbbur
hans hefur um árabil stutt þá
merku mannúðarstarfsemi sem
fram fer að Sólheimum í Gríms-
nesi. Á sumrin voru veiðiferðir í
Laxá í Þingeyjarsýslu honum til-
hlökkunarefni, en hann tók sæti
föður síns í Laxárfélaginu að
honum látnum. Hið mikla minni
hans var alþekkt og fjölmargir
eru þeir sem hann var kunnugur,
bæði heima og erlendis. Hjálp-
semi hans var viðbrugðið og
greiddi hann götu fjölmargra
lækna sem voru að feta sín fyrstu
Olafsson
spor við framhaldsnám erlendis
og hafði mikinn metnað fyrir
þeirra hönd. Hann var glaðsinna,
vinsæll og vinmargur og mönn-
um leið vel í návist hans. Ótal
eru þær skemmtilegu smásögur
sem hann kunni.
Þórarinn var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir. Þau slitu sam-
vistir. Síðari kona hans var Björg
Ólafsson, fædd Trandum. Börn
Þórarins eru Erla, Þóra, Þórodd-
ur, Guðmundur Helgi, Oddrún
Kristín og Geir Þórarinn.
Utför Þórarins var gerð frá
Hallgrímskirkju í Reykjavík
þann 4. mars síðastliðinn að við-
stöddu fjölmenni.
Ólafur Þ. Jónsson