Læknablaðið - 15.05.1998, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
441
XIII. þing Félags íslenskra lyflækna
á Akureyri 12.-14. júní 1998
Þing Félags íslenskra lyflækna, hiö XIII. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 12.-14.
júní næstkomandi. Þingstaður er Verkmenntaskólinn á Akureyri og stendur þingið frá há-
degi á föstudegi til síðdegis á sunnudegi.
Á þinginu verður að venju frjáls erindaflutningur og kynning á veggspjöldum auk þess sem
að minnsta kosti tveimur gestafyrirlesurum verður boðið erlendis frá.
Verölaun
Við lok þingsins verða veitt tvenn verðlaun. Annars vegar úr Vísindasjóði lyflækninga-
deildar Landspítalans, kr. 50.000 fyrir framúrskarandi rannsókn og erindi ungs læknis og
hins vegar veitir Félag íslenskra lyflækna kr. 25.000 fyrir besta framiag stúdents.
Þátttökugjald
Almennt gjald kr. 8.500, kr. 6.000 fyrir unga lækna og frítt fyrir stúdenta.
Pantanir
Birna Þórðardóttir Læknablaðinu skráir þátttakenda og tekur við pöntun um gistingu frá
og með 1. apríl, sími: 564 4104, bréfsími: 564 4106, netfang: birna@icemed.is
Flugferðir
Flugferðir í tengslum við þingið verða auglýstar síöar.
Schering - Leiras
Fundur verður haldinn á vegum Schering Leiras í samstarfi við félög kvensjúkdómalækna,
krabbameinslækna, innkirtlafræðinga og heimilislækna:
Laugardaginn 19. september næstkomandi á Hótel Lofleiðum.
Efni fundarins:
„Hormones and Breast Cancer" og „HRT and Breast Cancer Risk. Recent Epidem-
iologic Evidence"
Fyrirlesarar: Prófessor Valerie Beral frá Imperial Cancer Research Fund, Oxford og Dr.
Ingemar Persson dósent frá Karolinska Institutet, Stokkhólmi.
Fundarstjóri: Prófessor ReynirT. Geirsson.
Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Schering Leiras
Reykjavík, 26. mars 1998
Thorarensen Lyf