Læknablaðið - 15.05.1998, Blaðsíða 74
432
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
íðorðasafn lækna 100
Evidence based medicine
í 98. pistli var fjallað um heit-
ið evidence based ntedicine og
gert ráð fyrir framhaldi í næsta
pistli þar á eftir. Af ýmsum
ástæðum tókst það ekki, en nú
skal haldið áfram þar sem frá var
horfið.
Tölvuleit í greinasöfnum
læknisfræðinnar leiddi fljótt í
ljós að heitið er nýlegt og mjög í
tísku um þessar mundir. An telj-
andi fyrirhafnar fundust fræði-
greinar á sviðum geðlækninga,
heimilislækninga, hitabeltissjúk-
dóma, hjartalækninga, kvensjúk-
dóma, nýburalækninga, skurð-
lækninga og sýklafræði. Ekki
verður gerð tilraun til þess að
rekja sögulegan uppruna heitis-
ins, en oft bar fyrir augu nafn
kanadíska læknisins Davids L.
Sackett. Skilgreining hans á hug-
takinu að baki heitinu lítur þann-
ig út í þýðingu undirritaðs: sam-
viskusamleg, skilmerkileg og yf-
irveguð notkun á nýjustu og
bestu staðreyndum til þess að
taka ákvarðanir við umönnun
einstakra sjúklinga. Þessi skil-
greining vísar til þeirrar aðferðar
sem nota beri við greiningu sjúk-
dóma og meðferð sjúkra. Otví-
ræð tengsl eru við tiltekna náms-
aðferð, problem based leaming,
lausnaleitarnám, sem fjallað
var um í 97. pistli. Báðar aðferð-
irnar fela það í sér að sérhvert
klínískt tilvik verði skilgreint
sem vandamál og að lausnar sé
síðan alltaf leitað í sameiginleg-
um þekkingarforða læknisfræð-
innar. Áhersla er lögð á að sér-
hver meðferð verði studd mark-
tækum vitnisburði úr vísindaleg-
um rannsóknum, þannig að
gagnsemin sé fullkomlega sönn-
uð. Á þann hátt verði lækning-
arnar skilvirkar og ekki byggðar
á takmarkaðri persónulegri
reynslu. Gagnrýnendur telja hins
vegar að með þessari kröfu sé
verið að hefta hið klíníska frelsi
læknisins og jafnvel að ganga af
læknislistinni dauðri. Sjálfvirk
rannsóknartæki muni sjá um
greiningu, forrit vinni úr upplýs-
ingunum, tölvur leiti uppi niður-
stöður annarra og að „leyfð“
meðferð verði síðan sú ein sem
hefur verið vísindalega sann-
reynd að gagnsemi. Sackett
leggur þó áherslu á að hlutverk
læknisins sé að sameina sína eig-
in reynslu og sérþekkingu og
niðurstöður vísindalegra rann-
sókna og að gera það eitt sem
grundvallað sé á fræðilegum
staðreyndum.
Staðreyndalæknisfræði
Þetta var langur formáli að
þeirri hugmynd undirritaðs að
nefna evidence based medicine
staðreyndalæknisfræði. Þessu
heiti er ætlað að vekja til um-
hugsunar um það hvað af því
sem læknar gera sé stutt full-
nægjandi rökum og hvað ekki.
Ari Jóhannesson, læknir á Akra-
nesi, sendi tölvupóst með tveim-
ur hugmyndum. Sú fyrri er
gagnreynd læknisfræði. Orð-
hlutinn gagn segir Ari að geti
annars vegar vísað í gagnsemi og
hins vegar í gögn (heimildir), en
heimildaleit og gagnrýnið mat á
þeim eru einmitt hornsteinar
„evidence based medicine". Síð-
ari hugmyndin er heimilda-
læknisfræði, en hana telur Ari
þó varla koma til greina. Lýst er
eftir fleirum.
Trefjalíkisæxli
Guðrún Aspelund, unglæknir,
hringdi og vantaði íslenskt heiti
á þá meinsemd sem desmoid
tumor nefnist. Orðfræðilegan
uppruna má rekja til grísku, en
þar merkir nafnorðið desmos
band og viðskeytið -oid er notað
til að gefa til kynna líkingu við
eitthvað. Carcinoid er þannig
æxli sem líkist carcinoma,
krabbalíki. Með desmo- er í
læknisfræðilegum heitum vísað
til trefjabandvefja, en þó sérstak-
lega til liðbanda. Desmology er
til dæmis liðbandafræði og heit-
ið desmopathy má nota um sér-
hvern þann kvilla sem leggst á
liðbönd. Með heitinu desmoid
tumor er þó ekki verið að vísa í
liðbandaæxli, heldur í band-
vefsofvöxt eða æxli, sem oft
kemur fyrir í kviðvegg og er þá
gjarnan nefnt abdominal
fibromatosis. Við þýðingu á al-
þjóðlegu sjúkdómaflokkuninni,
ICD-10, var valið heitið kviðar-
trefjaæxlisvöxtur. Það er langt
og stirðlegt heiti og betur gæti
því farið á því að nota annað
hvort trefjalíkisvöxtur eða
trefjalíkisæxli um desmoid
tumor.
Frumufellir, frumufall
Magnús Snædal, málfræðing-
ur, sendi stutta athugasemd í
tölvupósti og benti á meinlega
ritvillu í síðasta pistli. Ptosis var
þar ranglega ritað sem „optosis".
Beðist er velvirðingar á þessu.
Magnús vildi jafnframt koma
þeirri skoðun sinni á framfæri að
frumufall væri betra en frumu-
fellir sem íslenskt heiti á
apoptosis og vísar þar sérstak-
lega í mannfall sem merkir
manndauði í orrustu. Lýst er eft-
ir fleiri hugmyndum eða öðrum
skoðunum.
Jóhann Heiðar Jóhannsson
(netfang: johannhj@rsp.is)