Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 96
Þessar töflur
líta út eins og
venjulegar
töflur...
LOSEC MUPS
Hassle, 970401
SÝRUHJÚPTÖFLUR; A 02 B C 01 R E
Hver sýruhjúptafla inniheldur: Omeprazolum INN,
magnesíumsalt, 10,3 mg, 20,6 mg eða 41,3 mg,
samsvarandi Omeprazolum INN 10 mg, 20 mg eða
40 mg.
Abendingar
Sársjúkdómur í skeifugöm og maga. Bólga í vélinda
vegna bakflæðis (reflux oesophagitis). Uppræting
Helicobacter pylori við sársjúkdómi (ásamt
sýklalyfjum). Sársjúkdómur eða fleiður í skeifúgöm
og maga vegna meðferðar með bólgueyðandi
gigtarlyfjum (NSAID). Fyrirbyggjandi vegna aukinnar
hættu á óþægindum, eins og sársjúkdómi í maga,
vélinda eða skeifugöm, fleiðri í maga og/eða
skeifugörn eða meltingartruflunum, við meðferð
með bólgueyðandi gigtarlyfjum. Langtímanotkun
við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við
síendurteknum sárum í maga og skeifúgöm. Meðferð
á einkennum brjóstsviða og nábíts vegna
bakflæðissjúkdóms (gastro-oesophageal reflux
disease). Zollinger-Ellison heilkenni.
Skammtar*:
Mælt er með að LOSEC MUPS sýruhjúptöflur séu
teknar inn að morgni. Töflurnar á að gleypa heilar
með vökva. Innihald taflna má hvorki tyggja né
mylja.
Töflurnar á að taka meðl/2 glasi af vökva. Hvorki
má tyggja né mylja töflumar. Töflurnar má einnig
hræra út í hálfú glasi af vatni eða ávaxtasafa. Hræra
á í þar til töflumar hafa sundrast og drekka á vökvann
með komunum í innan 30 mínútna. Skola á glasið
að innan með vökva og drekka hann. Hvorki má
tyggja né mylja komin.
Við skeifugarnarsári, magasári, sársjúkdómum eða
fleiðurs vegna meðferðar við bólgueyðandi
gigtarlyfjum, við bólgu i vélinda vegna bakflœðis og
til meðferðar á einkennum vegna bakflœðissjúkdóms
er ráðlagður skammtur 20 mg einu sinni á dag. *
Við alvarlegri bólgu i vélinda vegna bakflæðis hjá
börnum 1 árs og eldri: Ráðlagður skammtur handa
börnum 10-20 kg er 10 mg á dag og handa bömum
>20 kg 20 mg á dag.*
Til upprœtingar Helicobacterpylori við sársjúkdómi:
Losec MUPS er ýmist gefið í "þriggja lyfja meðferð"
(ásamt amoxicillíni og klaritromýcíni, klaritrómýcíni
og metrónídazóli eða amoxicillíni og metrónídazóli)
eða í "tveggja lyfja meðferð" (ásamt amoxicillíni eða
klaritrómýcíni).*
Við Zollinger-Ellison heilkenni: Ráðlagður
upphafsskammtur er 60 mg daglega.*
Skert nýrnastarfsemi:
Hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi er ekki
nauðsynlegt að breyta skömmtum.
Skert lifrarstarfsemi:
Þar sem aðgengi og helmingunartími ómeprazóls í
plasma eykst við skerta lifrarstarfsemi getur verið
nægjanlegt að gefa 10-20 mg dagsskammta.
Aldraðir:
Hjá öldruðum þarf ekki að breyta skömmtum.
Frábendingar
Þekkt ofnæmi fyrir ómeprazóli.
Varnaðarorð og varúðarreglur
Þegar talið er að um magasár sé að ræða skal útiloka
illkynja sjúkdóm, en meðferð með ómeprazóli getur
dregið úr einkennum og seinkað sjúkdómsgreiningu.
Meðganga og brjóstagjöf
Eins og við á um flest lyf ætti ekki að gefa þunguðum
konum né konum með barn á brjósti ómeprazól
magnesíumsalt nema brýn ástæða sé til. LOSEC
MUPS gefið í skömmtum allt að 80 mg á 24 klst.
konum í fæðingu hefúr ekki valdið aukaverkunum
hjá baminu. Dýrarannsóknir hafa ekki bent til hættu
vegna meðferðar með LOSEC MUPS á
meðgöngutíma og við brjóstagjöf og engar
vísbendingar liggja fyrir um eituráhrif eða
fósturskemmandi verkun.
Aukaverkanir
LOSEC þolist vel og aukaverkanir hafa yfirleitt verið
vægar og gengið til baka*.
Pakkningar og verð
Sýruhjúptöflur 10 mg: 14 stk. 3.190,-; 100 stk.
16.051,-
Sýruhjúptöflur 20 mg: 14 stk. 3.691,-; 28 stk. 6.446,-
; 56 stk. 11.689.; 100 stk. 19.596,-.
Sýruhjúptöflur 40 mg: 28 stk. 12.514,-
Umboð á íslandi: Pharmaco hf.
Sérlyfjaskrártexti, samþykktur af Lyfjaneíúd ríkisins
7. 10. 1998 (styttur)
* ítarlegri texta um lyfið er að finna í Fréttabréfi
Lyfjanefndar rikisins l.janúar 1999 og Sérlyfjaskrá
1999 (l.apríl 1999).