Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 58
50
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Leiðbeiningar til höfunda
um ritun og frágang fræðilegra
greina í Læknablaðið
Efni Læknablaðsins
Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um
öll svið læknisfræði og líffræði, hvort sem þær
eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum
eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra,
bæði yfirlits- og fræðslugreinar.
Blaðið birtir efni er varðar málefni LÍ, svæða-
og sérgreinafélaga og um hvert það efni annað
sem tengt er hagsmuna- og áhugamálum lækna.
Þá eru birtar stuttar athugasemdir og les-
endabréf.
Birting efnis Læknablaðsins
annars staðar
Læknablaðið mun taka við greinum til mats
fyrir birtingu enda þótt efni þeirra hafi verið
birt eða hafi verið sent til birtingar í öðrum
tímaritum á öðru lungumáli en íslensku, sé
eftirfarandi skilyrðum fullnægt:
1. Ritstjórum beggja tímarita sé gerð full grein
fyrir tvíbirtingu og ástæðum hennar; ritstjóm
þess tímarits sem seinna birtir niðurstöður
rannsóknarinnar fái í hendur afrit fyrri grein-
ar.
2. Að minnsta kosti líði tvær vikur frá fyrri
birtingu til hinnar seinni.
3. Önnur greinin sé ekki einföld þýðing hinnar
á annað tungumál, heldur sé beint að öðrum
lesendahópi; oft nægir að önnur greinin sé
styttri útgáfa hinnar.
4. Fram komi neðanmáls á titilsíðu seinni
greinar að niðurstöður hafi birst áður, til
dæmis „Grein þessi er byggð á niðurstöðum
rannsóknar sem fyrst birtist í (nafn tímarits,
með fullri tilvitnun)11.
Leiðbeiningarnar má sjá á heimasíðu Lækna-
blaðsins:
www.icemed.is/laeknabladid
Læknablaðið mun einnig að sjálfsögðu taka
til birtingar efni sem áður hefur verið kynnt á
vísindaþingunt og birt hefur verið sem ágrip
(abstract) í tengslum við þingin. Þar með talið
er efni sem hefur hlotið umfjöllun í fjölmiðlum
í kjölfar kynningar eða fyrirlestra á vísinda-
þingum.
Öðru máli gegnir um niðurstöður og efni
sem höfundar hafa lýst í almennum orðum eða
smáatriðum í fjölmiðlum áður en starfsfélagar
hafa haft aðstöðu til að meta vísindagildi
þeirra, annað hvort á prenti eða á þingi. Blaðið
mun áskilja sér rétt til að hafna efni á þeim
forsendum einum að höfundar hafi kynnt það í
fjölmiðlum fyrir birtingu þess í Læknablaðinu
(„regla Ingelfingers“). A þessri almennu reglu
má gera undantekningar, ætíð í samráði við
ritstjórn blaðsins, einkum ef snemmbær birting
er nauðsynleg vegna mikilvægis niðurstaðna
og þær varði heill almennings.
Vísindagreinar
Læknablaðið byggir á reglum Vancouver-
hópsins hvað varðar frágang, uppbyggingu og
efnistök vísindagreina. Nýjustu reglur, útgefn-
ar í janúar 1997, má finna á netinu:
http://www.acponline.org/joumals/annals/
jan97Amifreqr.htm
Með greininni þarf að fylgja bréf þar sem
fram koma: a. upplýsingar um fyrri birtingu
efnis greinarinnar (tvíbirtingu) sé um slíkt að
ræða, b. yfirlýsing þess efnis að allir höfundar
séu lokaformi greinar samþykkir og c. að höf-
undar afsali birtingarrétti (copyright) til blaðs-
ins. Ennfremur þarf að fylgja leyfi útgefanda
eða handhafa birtingarréttar til birtingar mynda
eða grafa annarra en höfunda.
Öllum greinum skal skilað í endanlegum frá-
gangi á tölvutæku formi ásamt með útprenti,
gildir það bæði um texta, töflur og gröf. Töflur
og gröf vistist sem sérstök skjöl. Tilgreina skal