Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 58

Læknablaðið - 15.01.1999, Side 58
50 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Leiðbeiningar til höfunda um ritun og frágang fræðilegra greina í Læknablaðið Efni Læknablaðsins Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræði og líffræði, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni LÍ, svæða- og sérgreinafélaga og um hvert það efni annað sem tengt er hagsmuna- og áhugamálum lækna. Þá eru birtar stuttar athugasemdir og les- endabréf. Birting efnis Læknablaðsins annars staðar Læknablaðið mun taka við greinum til mats fyrir birtingu enda þótt efni þeirra hafi verið birt eða hafi verið sent til birtingar í öðrum tímaritum á öðru lungumáli en íslensku, sé eftirfarandi skilyrðum fullnægt: 1. Ritstjórum beggja tímarita sé gerð full grein fyrir tvíbirtingu og ástæðum hennar; ritstjóm þess tímarits sem seinna birtir niðurstöður rannsóknarinnar fái í hendur afrit fyrri grein- ar. 2. Að minnsta kosti líði tvær vikur frá fyrri birtingu til hinnar seinni. 3. Önnur greinin sé ekki einföld þýðing hinnar á annað tungumál, heldur sé beint að öðrum lesendahópi; oft nægir að önnur greinin sé styttri útgáfa hinnar. 4. Fram komi neðanmáls á titilsíðu seinni greinar að niðurstöður hafi birst áður, til dæmis „Grein þessi er byggð á niðurstöðum rannsóknar sem fyrst birtist í (nafn tímarits, með fullri tilvitnun)11. Leiðbeiningarnar má sjá á heimasíðu Lækna- blaðsins: www.icemed.is/laeknabladid Læknablaðið mun einnig að sjálfsögðu taka til birtingar efni sem áður hefur verið kynnt á vísindaþingunt og birt hefur verið sem ágrip (abstract) í tengslum við þingin. Þar með talið er efni sem hefur hlotið umfjöllun í fjölmiðlum í kjölfar kynningar eða fyrirlestra á vísinda- þingum. Öðru máli gegnir um niðurstöður og efni sem höfundar hafa lýst í almennum orðum eða smáatriðum í fjölmiðlum áður en starfsfélagar hafa haft aðstöðu til að meta vísindagildi þeirra, annað hvort á prenti eða á þingi. Blaðið mun áskilja sér rétt til að hafna efni á þeim forsendum einum að höfundar hafi kynnt það í fjölmiðlum fyrir birtingu þess í Læknablaðinu („regla Ingelfingers“). A þessri almennu reglu má gera undantekningar, ætíð í samráði við ritstjórn blaðsins, einkum ef snemmbær birting er nauðsynleg vegna mikilvægis niðurstaðna og þær varði heill almennings. Vísindagreinar Læknablaðið byggir á reglum Vancouver- hópsins hvað varðar frágang, uppbyggingu og efnistök vísindagreina. Nýjustu reglur, útgefn- ar í janúar 1997, má finna á netinu: http://www.acponline.org/joumals/annals/ jan97Amifreqr.htm Með greininni þarf að fylgja bréf þar sem fram koma: a. upplýsingar um fyrri birtingu efnis greinarinnar (tvíbirtingu) sé um slíkt að ræða, b. yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og c. að höf- undar afsali birtingarrétti (copyright) til blaðs- ins. Ennfremur þarf að fylgja leyfi útgefanda eða handhafa birtingarréttar til birtingar mynda eða grafa annarra en höfunda. Öllum greinum skal skilað í endanlegum frá- gangi á tölvutæku formi ásamt með útprenti, gildir það bæði um texta, töflur og gröf. Töflur og gröf vistist sem sérstök skjöl. Tilgreina skal
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.