Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 12
10
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Ágrip
Inngangur: Hinn 15. ágúst 1968 hófst á Is-
landi blóðskilunarmeðferð (hemodialysis) við
lokastigsnýrnabilun (end-stage renal disease,
ESRD). Fyrsta nýraígræðslan í íslenskan sjúk-
ling fór fram í London 1970 og síðan hafa
nýrnaígræðslur ævinlega farið fram erlendis,
oftast í Kaupmannahöfn, Gautaborg og Boston.
Tilgangur þessarar afturskyggnu rannsóknar var
að meta þær breytingar sem orðið hafa á ný-
gengi, algengi, meðferð og afdrifum sjúklinga
1968-1997 og bera niðurstöður saman við önn-
ur lönd, einkum Norðurlönd.
Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar, sem
hófu meðferð vegna lokastigsnýrnabilunar á
áðurnefndu tímabili og voru í virkri meðferð í
að minnsta kosti sex vikur, voru teknir með í
rannsóknina. Upplýsingar voru fengnar úr
gagnagrunni blóðskilunardeildar Landspítal-
ans. Þær voru notaðar til að meta árlegt ný-
gengi og algengi meðhöndlaðrar lokastigs-
nýrnabilunar. Metnar voru breytingar á aldri
við upphaf meðferðar, á kynjahlutfalli, grunn-
sjúkdómum, meðferð og lifun sjúklinga. Arleg
dánartíðni var reiknuð sem fjöldi dauðsfalla á
100 lífár. Samanburður meðalgilda var gerður
með t-prófi fyrir tvö þýði. Lifun var metin með
Kaplan-Meier aðferð og mismunur lifunar með
Mantel-Cox aðferð.
Niðurstöður: Alls hóf 201 sjúklingur með-
ferð við lokastigsnýrnabilun á þessu 30 ára
tímabili. Fjöldi nýrra sjúklinga í meðferð á
hverjum áratugi var 27, 59 og 115 en þær tölur
samsvara 12,8, 25,1 og 44 sjúklingum árlega,
miðað við milljón íbúa. Meðalaldur við upphaf
meðferðar fór hækkandi og var 54,8 ár síðasta
tímabilið. Algengi í árslok miðað við milljón
íbúa var 72 árið 1977, 182 árið 1987 og 356
árið 1997. Sykursýkinýrnamein kom ekki fram
sem orsök lokastigsnýrnabilunar fyrr en á síð-
asta áratugnum og olli þá 12% tilfella. Blóð-
skilun vareina skilunarmeðferðin fram til 1985
en kviðskilun (peritoneal dialysis) hefur verið
nálægt þriðjungi skilunarmeðferðar síðan.
Fjöldi nýrnaígræðslna hvern áratug var 13, 30
og 58. í lok 1997 voru starfandi nýrnagræð-
lingar 59 og af þeim voru 45 úr lifandi gjöfum.
Sjúklingar með ígrædd nýru voru þá 70% allra
í meðferð við lokastigsnýrnabilun. Fyrstu tvö
tímabilin voru einkum notuð nýru úr nágjöfum
(cadaver donors) en nýrum úr lifandi gjöfum
fjölgaði mjög á síðasta áratugnum og voru þá
65% græðlinga. Fimm ára lifun ígræddra (81%)
var miklu betri en skilunarsjúklinga (16%).
Dánartíðni fór lækkandi allt tímabilið. Síðasta
áratuginn var hún 10,7 á 100 lífár fyrir allan
hópinn, 27,9 meðal sjúklingaíblóðskilun, 15,3
fyrir sjúklinga í kviðskilun og 2,1 hjá ígrædd-
um. Helstu dánarorsakir voru hjarta- og æða-
sjúkdómar og sýkingar. 1
Ályktanir: Mikil aukning hefur orðið á ný-
gengi og algengi meðhöndlaðrar lokastigs-
nýrnabilunar á íslandi á undanförnum 30 árum.
Þó er nýgengi mun lægra en á hinum Norður-
löndunum og stafar það af lágu nýgengi loka-
stigsnýrnabilunar af völdum gauklabólgu og
sykursýkinýrnameins hér á landi. Nær helm-
ingur sjúklinganna hefur fengið ígrætt nýra.
Noregur einn er með hærra hlutfall ígræddra.
Hlutfall nýmagræðlinga úr lifandi gjöfum með-
al ígræddra er það hæsta sem höfundar þekkja.
Fimm ára lifun sjúklinga og nýrnagræðlinga á
íslandi var sambærileg við það sem gerist með-
al nágrannaþjóða.
Inngangur
Miklar framfarir hafa átt sér stað í meðferð
sjúklinga með lokastigsnýrnabilun (end-stage
renal disease, ESRD) á undanförnum áratugum.
Tækjakostur og tæknileg hlið skilunarmeðferð-
ar hefur batnað verulega (1). Reynt er æ meir
að tryggja sjúklingum fullnægjandi magn skil-
unar en rannsóknir hafa sýnt betri lifun þeirra
sem fá meiri skilun (2). Loks hefur erýtrópoie-
tínmeðferð við nýrnablóðleysi bætt lífsgæði
sjúklinga verulega (3,4). Samtímis hefur mikil
þróun átt sér stað í meðferð sjúklinga með
ígrætt nýra og ber hæst þá byltingu er varð í
ónæmisbælandi lyfjameðferð með tilkomu
cýklósporíns árið 1983 (5). Hefur líftími sjúk-
linga og nýrnagræðlinga batnað verulega (6).
Þróun í meðferð nýrnabilunar hefur gert
kleift að mæta sívaxandi nýgengi lokastigs-
nýrnabilunar. Nýgengi hefur aukist mjög með-
al flestra vestrænna þjóða á undanförnum árum
en hvergi þó eins og í Bandaríkjunum þar sem
það var 276 á milljón íbúa árið 1996 (7). Aldr-
aðir eru vaxandi hluti nýrra sjúklinga. Framboð
á nýrum til ígræðslu hefur ekki haldið í við þá
miklu fjölgun sem orðið hefur á sjúklingum
með sjúkdóminn og því hafa biðlistar eftir
ígræðslu lengst.
Hinn 15. ágúst árið 1968 var í fyrsta sinn
beitt blóðskilunarmeðferð (hemodialysis) á
Landspítalanum. Með því var lagður grunnur
að meðferð við lokastigsnýrnabilun hér á landi.