Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 80
68
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
telja léttvægan en ég er á því
að við eigum eftir að fá orð í
eyra frá hinu alþjóðlega vís-
indasamfélagi og mannrétt-
indasamtökum sem hafa
fylgst grannt með þróun máls-
ins. Eg óttast það að við mun-
um hafa skömm og skaða af
öllu saman.“
Orrustan kannski töp-
uð en stríðið ekki búið
- Þú hefur sagt að íslenskt
vísindasamfélag sé klofið
vegna þessa máls, hvaða af-
leiðingar getur það haft fyrir
íslensk vísindi?
„Hættan er sú að öll sam-
vinna verði stirðari og erfiðari
milli manna eftir að búið er að
sá fræjum tortryggninnar og
því má þetta litla samfélag ekki
við. Það gæti reynst erfitt að
leysa þann vanda, hann leysist
ekki með lagasetningunni, hún
gerir málið bara snúnara.“
- Hvernig sérðu framtíðina
fyrir þér? Hvaða viðbrögðum
áttu von á?
„Ég á bágt með að sjá að
læknar leggi gögn í grunninn
og ef þeir verða beittir þving-
unum mun það óhjákvæmi-
lega leiða til málaferla. Við
munum styðja við bakið á
þeim því það verða áreiðan-
lega rekin prófmál fyrir inn-
lendum og jafnvel erlendum
dómstólum. Við munum einn-
ig aðstoða sjúklinga sem ekki
vilja að gögn um þá fari í
grunninn og gera það einfald-
ara en það virðist vera. En það
er ljóst að þótt þessi orrusta
virðist töpuð þá er stríðið
ekkert búið,“ sagði Sigmund-
ur Guðbjarnason.
Þess má geta að samtökin
Mannvernd hafa opnað heima-
síðu á netinu þar sem er að
finna margvíslegan fróðleik
og fréttir um gagnagrunns-
málið sem og greinar, erindi
og álit innlendra manna og er-
lendra á gagnagrunninum.
Slóðin er: http://www. simnet.
is/mannvernd
-ÞH
Nordisk Medicin hættir að koma út
í núverandi formi
Nýlega ákváðu stjórnir nor-
rænu læknafélaganna sameig-
inlega að hætta útgáfu Nord-
isk Medicin í núverandi formi
frá næstu áramótum. Hafa
danska og norska læknafélag-
ið tekið að sér að koma með
tillögur að breytingum á blað-
inu. Ástæðan fyrir ákvörðun
félaganna var versnandi fjár-
hagsleg staða blaðsins og
stefndi í gjaldþrot sjóðs þess
sem staðið hefur undir útgáf-
unni að mestu. Kostnaður fé-
laganna sjálfra hefur einnig
verið nokkur þótt hann hafi
eingöngu verið bundinn við
dreifingarkostnað. Blaðið hef-
ur staðið sjálft undir prent- og
útgáfukostnaði.
Nordisk Medicin á sér sögu
alltafturtil 1929 en 1972 tóku
norrænu læknafélögin það
sameiginlega upp á sína arma
og hefur útgáfa þess verið eitt
áþreifanlegasta dæmið um
Forsíða síðasta tölublaðs Nord-
isk Medicin
samstarf félaganna. Blaðið
hefur nokkrum sinnum breytt
talsvert um útlit og síðasta
breyting var gerð fyrir tveim-
ur árum, er blaðið varð mun
litríkara en áður. Undir lokin
var blaðið gefið út í um
64.000 eintökum, sem er rneira
en til dæmis The Lancet. Síð-
ustu árin hefur sameiginleg
áskrift LÍ fyrir félagsmenn
sína fengið nokkra umræðu á
aðalfundum en fjárhagsleg
staða þess hafði batnað að
mun á Islandi eftir að aukin
áhersla var lögð á íslenskar
auglýsingar.
Síðustu tvo áratugina var
Eva Oldinger ritstjóri blaðsins
og vann hún það við erfiðar og
ótryggar aðstæður. Barðist hún
kappsamlega fyrir blaðinu og
átti mikinn þátt í sterkri stöðu
þess á Norðurlöndunum. I
haust voru henni veitt sérstök
norræn heilsuverndarverðlaun
fyrir ómetanlegt framlag til
heilbrigðismála.
Vonandi tekst að finna annað
form á útgáfu norræns lækna-
blaðs svo áfram geti haldist
norrænn vettvangur fyrir sam-
eiginleg fagleg og félagsleg
mál lækna.
Sveinn Magnússon
fulltrúi LI í ritstjóm