Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 60

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 60
52 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 ' stofnunar, fagfélags eða opinberra aðila) og hvort hún var gerð í samræmi við ákvæði Hels- inkiyfirlýsingarinnar frá 1975 (endurskoðuð 1983). Ekki skal nota nöfn fólks, upphafsstafi, fæðingardag eða sjúkraskrárnúmer, einkum skal þess gætt á myndum (röntgenmyndum og þess háttar). Staðtöluleg úrvinnsla gagna: Lýsa skal að- ferðum stuttlega með tilvitnun í aðgengileg rit. geta tölvuforrita sem notuð voru. Gæta skal ná- kvæmni eins og unnt er og greina tölulegar upplýsingar með mæliskekkju eða óvissu (til dæmis staðalfráviki eða vikmörkum (confi- dence limits)) þegar slíkt er hægt. Niðurstöður: Lýsa ber niðurstöðum í rök- rænni röð í texta, töflum og myndum. Forðast skal að endurtaka allar upplýsingar í töflum og myndum í texta, einungis skal leggja áherslu á meginatriði. Ekki skal greina frá sömu upplýs- ingum bæði í töflu og á mynd. Umræða: Leggja ber áherslu á niðurstöður rannsóknarinnar sjálfrar, hvað af henni megi læra, hvað sé nýtt og mikilvægt í niðurstöðun- um. Ekki skal reynt að skrifa yfirlitsgrein um efnið í heild, slíkt á heima í yfirlitsgreinum (re- views), ekki greinum sem birta rannsóknarnið- urstöður (original articles). Hins vegar skal leggja áherslu á tengsl niðurstaðnanna við skyldar rannsóknir, gildi þeirra og takmarkanir og mikilvægi fyrir ítarlegri rannsóknir. Forðast ber vangaveltur sem ekki eru studdar af niður- stöðunum eða úr samhengi við þær. Ráðlegg- ingar sem byggja á niðurstöðum rannsóknar- innar, um greiningu vandamála og meðferð eru hins vegar sjálfsagðar. Þakkir: Þakka skal samstarfsaðilum sem lagt hafa hönd á plóginn við framkvæmd og úr- vinnslu en ekki nægilega til að réttlæta sæti meðhöfundar (sjá að ofan). Hér má nefna þá sem hafa veitt ýmsa tæknilega aðstoð, aðstoðað við hluta gagnasöfnunar, veitt ráð um staðtölu- lega útreikninga og svo framvegis. Ennfremur er rétt að þakka þeim sem hafa greitt götu höf- unda, til dæmis yfirmanni deildar, þeim er veita aðgang að tækjabúnaði í þeirra umsjá og fleira. Yfirleitt er ekki ástæða til að þakka aðkeypta aðstoð sem greitt er fyrir fullu verði. Síðast en ekki síst ber að geta allra styrkveitinga til rann- sóknarinnar og þakka fyrir þær. Hcimildir: Heimildir skulu tölusettar í þeirri röð, sem þær koma fyrir í texta. Dæmi: „Því er haldið fram (1), að...en síðari rannsóknir (2) leiddu í ljós.... ineðferð hefur breyst með tilkomu nýrra lyfja (3).....áður höfðu menn talið (4)...“. Fara skal eftir þeim dæmum sem hér eru tal- in að neðan, en þau eru byggð á formi því sem notað er í Index Medicus. Greint skal frá nöfn- um höfunda, samkvæmt enskri ritvenju. Til- greina ber alla höfunda, nema þeir séu fleiri en sex. Þá skal geta sex og gefa til kynna með orð- unum, et al., að þeir séu fleiri. Þessu næst komi allur greinartitill, þá nafn tímarits í styttingu í samræmi við Index Medicus (List of Journals Indexed: http://www.nlm.nih.gov); birtingarár, árgangur (bindi); blaðsíðutal (fyrsta-síðasta). Bækur skulu tilfærðar: Höfundur, bókartitill, útgáfustaður, útgefandi, útgáfuár. Tilvitnanir í greinar sem samþykktar hafa verið til birtingar skulu gerðar eins og að ofan greinir, á eftir heiti rits standi „Bíður birtingar, ártal“ eða „In press, ártal“. Almennt er rétt að forðast eftir föngum tilvitnanir í ágrip, „óbirtar niðurstöður" og „persónulegar upplýsingar“ (eingöngu inni í texta þar sem getið skal einstaklings og hvenær upplýsingar eru fengnar). Tilvitnun í munnleg- ar upplýsingar er óheimil. Dæmi um rétta uppsetningu tilvitnana: Tímarit • Venjuleg tímaritsgrein: 1. Hannesson G. Islenskt læknafélag. Lækna- blaðið 1915; 1: 3. 2. Mann JM, Chin J. AIDS: A global perspective. N Engl J Med 1988; 319: 302-3. • Samtök eða nefnd sem höfundar: 3. The Committee on Enzymes of the Scandinavian Society for Clinical Chemistry and Clinical Physiology. Recommended met- hod for the determination of gammaglutamyl- transferase in blood. Scand J Clin Lab Invest 1976; 36: 119-25. • Nafnlaus grein: 4. Anonymous. Coffee drinking and cancer of the pancreas (editorial). Br Med J 1981; 283: 628. • Fylgirit: 5. Frumin AM, Nussbaum J, Esposito M. Functional asplenia: demonstration of splenic activity by bone marrow scan (abstract). Blood 1979; 54/Suppl. 1: 26a. • Tímarit með sérhlaðsíðutali í hverju hefti: 6. Seaman WB. The case of the pancreatic pseudocyst. Hosp Pract 1981; 16 (Sep): 24-5.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.