Læknablaðið - 15.01.1999, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
71
Tafla IV. Framboð og eftirspurn eftir lœknum á íslandi.
Ár Framboð A B Eftirspum A B Útkoma
1997 890 890 890 0 0
2000 920 930 900 - 10 + 20
2005 980 1.000 930 -20 + 50
2010 1.060 1.080 960 -20 + 100
2015 1.100 1.160 990 -60 + 110
2020 1.070
Tafla V. íslenskir lœknar erlendis samkvœmt skrám LÍ.
Land 1. janúar1992 1.janúar1994 1. janúar 1996 1. janúar 1998
Svíþjóð 216 230 203 182
USA 100 115 99 115
Noregur 23 40 60 111
Bretland 16 25 23 27
Holland 5 5 9 10
Danmörk 4 7 11 11
Kanada 3 5 5 4
Sviss 2 2 2 3
Þýskaland 2 1 2 3
Finnland 1 1 1 1
Frakkland 1 1 2 0
Mið-Ameríka 1 0 0 0
Afríka 0 1 2 1
Önnur lönd 3
Samtals 374 433 418 459
er gert ráð fyrir að vöxtur heil-
brigðiskerfisins verði 1,5%
(Eftirspurn A) en einnig er
sýnt hver staðan yrði ef vöxtur
kerfisins yrði einungis 0,6%
(Eftirspurn B), það er sú sama
og fólksfjölgun.
Erfitt er að vita með vissu
hve mikið „varaafl“ leynist er-
lendis. Hluti læknanna er við
sérnám, aðrir hafa lokið því,
og sumir fyrir löngu. Reynsl-
an hefur sýnt, að læknar sem
dvalið hafa erlendis með fjöl-
skyldum sínum lengur en 10
ár, hafa fest það rækilega ræt-
ur, félagslega, fjölskyldulega
og atvinnulega, að þeir lokk-
ast ekki af hverju sem er heim
til íslands. Þeir hafa flestir
unnið sig vel upp í góðar stöð-
ur í góðu og vellaunuðu at-
vinnuumhverfi. Því verður að
telja ólíklegt, að sá hópur geti
talist öruggt „varaafl“ fyrir ís-
lenskt heilbrigðiskerfi að öðru
óbreyttu. Einnig má telja lík-
legt, að yngri læknarnir séu af
kynslóð, sem alist hefur upp
við alþjóðlegra umhverfi en
nokkur eldri kynslóð og því
óvíst hvort átthagabönd megna
að draga þá heim í stórum stíl.
Lfklegt verður því að telja, að
mikill fjöldi íslenskra lækna
erlendis sé ekki lausn á vænt-
anlegum mönnunarvanda í ís-
lensku heilbrigðiskerfi.
Tafla V sýnir fjölda ís-
lenskra lækna erlendis 1992,
1994, 1996 og 1998 sam-
kvæmt skrám LÍ. Athygli vek-
ur, að læknum erlendis hefur
heldur fækkað í Svíþjóð sem
var eitt helsta sérmenntunar-
land íslenskra lækna en fjölg-
un hefur orðið mikil í Noregi.
Noregur hefur nánast tekið við
allri aukningunni frá 1992.
Heildarútflutningur Islands á
læknum nemur um 14 á ári
eða um 40% af hverjum út-
skriftarárgangi. Munu fá lönd
í veröldinni sjá eftir slíkum
fjölda lækna úr landi.
Sveinn Magnússon