Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
561
Sjúkraflutningar á íslandi
Pað þarf að koma meiri heildarstjórn
á sjúkraflutninga og björgunarstörf
- segir Friðrik Sigurbergsson læknir þyrluvaktarinnar
sem er samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar
og Sjúkrahúss Reykjavíkur
Friðrík Sigurbergsson.
Sjúkraflug á íslandi var
til umræðu í maíhefti
Læknablaðsins og þar var
boðað að við myndum fjalla
um aðra grein af þeim meiði
sem er þjónusta þyrluvakt-
arinnar í Reykjavík. Það er
kannski að bera í bakkafull-
an lækinn að kynna þá þjón-
ustu, svo mjög sem hún hef-
ur sannað gildi sitt. En við
ákváðum samt að hitta að
máli Friðrik Sigurbergsson
lækni þyrluvaktarinnar og
forvitnast um starfsemina.
Þyrluvaktin er samstarfs-
verkefni Landhelgisgæslunn-
ar og Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Sex læknar standa vaktimar,
fimm þeirra af Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og einn frá
Heilsugæslunni í Mosfellsbæ,
allt reyndir sérfræðingar eða
deildarlæknar. Að sögn Frið-
riks skiptast þeir á að standa
vaktir sem eru sólarhringur í
senn á virkum dögum, auk
helgarvakta sem geta farið
upp í þrjá til fjóra sólarhringa.
Þeir koma því þannig fyrir að
meðan þeir eru á vakt eru þeir
ekki í neinum bindandi verk-
efnum á sínum vinnustað
þannig að þeir eiga að geta
verið komnir út á flugvöll á
10-15 mínútum.
Einn læknir er á vakt hverju
sinni en ef þörf krefur er hægt
að kalla út liðsauka með litl-
um fyrirvara. „Það er reyndar
ekkert kerfi á því hvernig liðs-
auki fæst en það stendur til að
koma á tvöfaldri vakt ef þörf
krefur. Aukavaktin yrði þá til
taks á minni þyrlunni ef sú
stærri er upptekin í verkefni
til lengri tíma,“ segir Friðrik.
Fimm manna áhöfn
En eins og gefur að skilja
komast læknar einir ekki langt
án þess að hafa farartæki og
áhöfn til þess að stjóma því.
Þyrlan sem mest er notuð er
hin öfluga TF-LÍF af gerðinni
Aerospatiale Super Puma, en
auk þess á Landhelgisgæslan
eldri og minni þyrlu af gerð-
inni Aerospatiale Dauphin
sem ber einkennisstafina TF-
SIF. Þá ber það við að læknar
fara í ferðir með Fokker-flug-
vél Gæslunnar, TF-SÝN.
Auk læknis em fjórir menn
í áhöfn þyrlunnar: flugstjóri
og aðstoðarflugstjóri, stýri-
maður og flugvirki. Stýrimað-
urinn er leiðangursstjóri og
skipuleggur björgunarstarfið.
Hann er auk þess þrautþjálf-
aður sigmaður og menntaður í
sjúkraflutningum og aðstoðar
lækninn við að búa um sjúk-
linginn fyrir flutning. Flug-
virkinn hefur umsjón með
tækjabúnaði þyrlunnar og