Læknablaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
779
Cortical
opacitv
Suhcapsular
Nuclear
Grading of' Lens Opacification
4fd
C-l C-ll C-lll
SC-1 SC-II SC-III
l«W H
N-0
N-1
N-II N-III N-IV
Fig. 1. The system used for grading lens opacification by location (cortical, subcapsular, nuclear) and severity (grade I-IV). Note that
in the current study nuclear opacity grade III and IV were combined in one group (grade III).
engar skýjanir, 24% fólks 60-69 ára og 6%
þeirra sem voru á aldrinum 70-79 ára. Enginn
80 ára og eldri var með tæran augastein. Sam-
hliða jókst styrkleikastig skýja með aldri. Al-
gengast var að ský myndaðist í berki auga-
steins og voru 67% þátttakenda með slíkar
breytingar. Langflestir höfðu sams konar ský á
báðum augum eða 84%.
Alyktanir: Ský á augasteini er aldurstengt
og afar algengt eftir sjötugt. Vegna fjölgunar í
elstu aldurshópum á komandi árum mun al-
gengi augasteinsskýja aukast og aðgerðum
fjölga.
Inngangur
Ský á augasteini (cataract) er ein alpengasta
ástæða blindu í heiminum í dag (1). A undan-
förnum árum hefur verið vaxandi áhugi á far-
aldsfræðilegum rannsóknum á skýjun á auga-
steini, sem veldur í sumum tilvikum sjónskerð-
ingu en í öðrum ekki (2-7). Ský á augasteini
sést einkum hjá fólki sem er komið yfir sextugt
en fer yfirleitt ekki að valda sjónskerðingu fyrr
en eftir sjötugt. I eldri faraldsfræðirannsóknunt
frá því fyrir um 20 árum, var skilgreining ský-
myndunar sú að um væri að ræða breytingar
einhvers staðar í augasteini sem hefði áhrif á
sjónskerpu (3,4,8). A síðustu árum hafa rann-
sóknir fremur beinst að formfræðinni (morpho-
logy), það er breytingum í augasteininum sjálf-
um á fyrri stigum, bæði staðsetningu og því á
hve háu stigi breytingarnar eru (5-7). Þannig
var þessu varið í Reykjavíkurrannsókninni en
notaðar voru staðlaðar myndir (mynd 1) og
flokkað við skoðun í smásjá. Það að taka ein-
göngu tillit til breytinga í augasteini jafnvel á
byrjunarstigi, óháð sjónskerpu, gerir meiri
kröfur til aðferðarfræði og nákvæmni, en skilar
um leið mikilvægari upplýsingum bæði með
tilliti til þróunarferils sjúkdóms og áhættuþátta.
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna al-
gengi, aldurs- og kyndreifingu skýjunar á
augasteinum hjá fólki sem orðið er 50 ára og
eldra. Mismunandi orsakir eru taldar valda