Læknablaðið - 15.11.1999, Page 16
868
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
6 12 24 36 48 60
Months
Fig. 5. Cumulative rate of histologically verified lesionsfrom the
last normal visit to the colposcopic visit, 275 women referred with
abnormal smear for colposcopic examination; Iceland 1994.
* Cases with invasive cancer.
tilfelli á tímabilinu 1985-1990. Af mynd 4 sést
að hækkunin í meðalsterkum til sterkra breyt-
inga eftir 1979 er staðfest í öllum fimm ára ald-
urshópunum milli 20 og 34 ára. Hallastuðlar
fyrir öll þrjú timm ára tímabilin voru marktæk-
ir (p<0,05) en mismunur á milli þeirra var ekki
marktækur.
Meðal 275 kvenna (meðalaldur 33 ár) sem
sendar voru í leghálsspeglun á Islandi á árinu
1994 vegna afbrigðilegra frumustroka voru 244
(88%) með staðfestar vefjabreytingar. Á mynd
5 má sjá að uppsöfnuð tíðni þessara breytinga
eykst úr um 10% í um 70% frá 24 mánuðum
upp í 60 mánuði eftir síðasta eðlilega
frumustrok. Þróunarhraði þessara breytinga er
óháður gráðu forstigsbreytingarinnar. Fjögur
tilfelli af ífarandi krabbameini á hulinstigi
greindust 36 til 48 mánuðum eftir síðasta eðli-
legt strok (konur 25 til 34 ára).
Af töflu IV má sjá að tíðni meðalsterkra til
sterkra forstigsbreytinga í frumustrokum og
vefjasýnum á íslandi féll marktækt í takt við
fjölda fyrri eðlilegra stroka sem tekin voru fyrir
sextugt hjá konum fæddum 1920-1926 (4.995
konur). Þannig féll tíðnin í vefjasýnum úr 16
tilfellum á 1.000 skoðaðar konur með engin
fyrri eðlileg strok (250 konur) í 5,7 tilfelli á
1.000 skoðaðar konur með eitt til fjögur eðlileg
strok (2.641 konur) og í 2,8 tilfelli á 1.000
skoðaðar konur með fimm eða fleiri eðlileg
strok (2.104 konur). Tíðni tilfella með ífarandi
krabbamein féll úr átta í 0,8 og í 0,5 (eitt tilfelli
með kirtilkrabbamein) fyrir þessa tilteknu
hópa.
Af mynd 6 má greina að uppsöfnuð tíðni
meðalsterkra til sterkra forstigsbreytinga í
MONTHS
Fig. 6. Cumulative rate of moderate to high-grade smears at
second or later visits, afier the first normal visit in 1985-1989, in
the 20-24 (afier at least one normal smear), 25-29 ( afier at least
two normal smears), and 30-69 (afier at least four nortnal
smears); lceland 1985-1995.
Table IV. Preinvasive cervical lesions in Iceland. Detection rate
of moderate to high-grade lesions per 1000 women aged 60-69
and born in the birth cohort 1920-1926.
Detection rate of moderate /high-
grade lesions per 1,000 women
Negative smears before age of 60 Women Smears Biopsies CIN III Cancer
0 250 32.0 16.0 8.0
1-4 2,641 17.4 5.7 0.8
>5 2,104 10.9 2.8 0.5
frumustrokum teknum á íslandi á tímabilinu
1985-1989 byrjar að aukast tveimur árum eftir
eðlilegt strok. Tíðnin minnkar þó í takt við
fjölda fyrri eðlilegra frumustroka. Þannig fellur
tíðnin eftir þrjú ár úr 10 tilfellum á 1.000 skoð-
aðar konur á aldrinum 20-24 ára (með að lág-
marki eitt eðlilegt strok) í sex tilfelli á aldrinum
25-29 ára (með að lágmarki tvö eðlileg strok)
og í 2,5 tilfelli á aldrinum 30-69 ára (með að
lágmarki fjögur eðlileg strok).
Af mynd 7 má greina að hlutfall kvenna 25-
69 ára sem greinast á byrjunarstigi (IA og IB
occult) með afbrigðilegt frumustrok hefur auk-
ist marktækt (aðhvarfsstuðull beinnar línu:
r=0,82; p<0,01) samhliða vaxandi þriggja ára
mætingu til leitar (r=0,93; p<0,001). Sterk
fylgni er milli þessara þátta (r=0,90; p<0,001)
og eykst hlutfall þessara kvenna um 0,74% fyr-
ir hvert prósentustig sem bætist við mæting-
una.
Konur sem greindust á árunum 1986-1995
vegna afbrigðilegs frumustroks og eru að öðru
leyti án einkenna eru yngri en þær konur sem
greindust með einkenni (69% undir 40 ára aldri
miðað við 28% meðal hinna). Um 47% (21/45)
þeirra fyrmefndu greindust innan 72 mánaða
eftir eðlilegt frumustrok. Mynd 8 sýnir upp-
safnaða tíðni þessara síðastnefndu tilfella og