Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1999, Síða 82

Læknablaðið - 15.11.1999, Síða 82
922 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 játa að dyggðamóðirin hefur ekki oft setið þar í öndvegi. Þegar sú saga er skoðuð virð- ist næsta ótrúlegt hvað ein- staklingar og hópar innan stéttarinnar hafa verið reiðu- búnir til að beygja sig djúpt undir ok valdsins til að vernda tímabundna hagsmuni. Það er í þessu ljósi sem höf- undur ætlar að skoða afstöðu læknastéttarinnar íslensku til gagnagrunnslaganna. Þessi lagasmíð er sérstæð að því leyti að hin annars tvístígandi heilbrigðisyfirvöld ákváðu að fylgja henni eftir hvað sem það kostaði og þá glúpnuðu of margir læknar. Sú afstaða helgaðist af þáttum sem hér verða raktir. Aður en hug- myndinni um íslenskan gagna- grunn á heilbrigðissviði var hleypt af stokkunum höfðu for- svarsmenn íslenskrar erfða- greiningar tryggt sér sam- vinnu allmargra lækna sem voru að fást við rannsókn- arverkefni sérstaklega tengd erfðafræði. Framkvæmd margra þessara verkefna var erfið vegna fjárskorts og hér kom aðili sem bauð ótakmark- að fjármagn. Undir slíkum kringumstæðum er auðvelt að leiða ströngustu siðareglur hjá sér. Það er veikleiki lækna eins og annarra vísindamanna að líta á eigin verkefni sem miðstæð og binda við þau vonir sem á stundum eru ekki raunhæfar. Því eru þeir tilbún- ir til að seilast langt til að hrinda þeim í framkvæmd. Þarna hefur reynt á hugrekki til að meta hve langt sé rétt- lætanlegt að seilast framá ystu nöf siðgæðis í von um óvissan læknisfræðilegan ávinning en kannske öruggan fjárhagsleg- an ábata. Hafa samstarfslækn- ar Islenskrar erfðagreiningar staðist það manndómspróf? Höfundur ætlar ekki að svara þeirri spurningu beint en ræða hlut hinna mörgu sem ekki tóku afstöðu. Hlutleysi er vissulega afstaða en slík af- staða ber ekki alltaf vott um hugrekki. Það hefur verið sterkur þáttur í eðli okkar Islendinga að slá varnagla við því sem við erum ekki vissir um. Þannig segist meirihluti þjóð- arinnar trúa á framhaldslíf. Ekki vegna trúarsannfæringar heldur vegna þess að það er vissara ef við skyldum nú vakna eftir dauðann. Þessi af- staða eða fyrirvarasjónarmið virðist hafa ráðið afstöðu meirihluta lækna gagnvart gagnagrunninum. Þó flest rök hnigi í þá átt að hér væri um um að ræða hæpna hugmynd, bæði siðferðilega og vísinda- lega, töldu menn vissara að hafa ekki of hátt um vantrúna. Það er aldrei að vita og svo losna menn við óþörf heila- brot um að taka afstöðu. Hér brást hugrekkin því læknum var í lófa lagið að stöðva gagnagrunnslögin. Ekki er heldur hægt að segja að síð- asta læknaþing hafi varpað hetjuljóma á lækna. Með því að samþykkja með semingi (10 atkvæðum) loðmullulega tillögu frá aðalevangelista Is- lenskrar erfðagreiningar í stéttinni, tillögu sem hægt er að túlka á ýmsa vegu, gáfu fulltrúarnir höggstað á stétt- inni, sem verður notaður gegn henni í þeim átökum sem framundan eru um gagna- grunninn. Hvort sem hann verður að veruleika eða ekki þá vita stjórnvöld nú betur en nokkru sinni fyrr að það er hægt að kúga læknastéttina. Á það lag munu þau ganga í samskiptum sínum við hana í framtíðinni. Þau vita að með hæfilegu ofbeldi og nógu gulli er hægt að láta hana bregðast móður allra dyggða, hugrekk- inu. HEIMILDIR Tidsskr Nor Lægeforen 1999; 119:1143- 5. Læknablaðið 1999; 85: 827-31. Öldungadeild á Njáluslóðir Öldungadeild LÍ boðar til dagsferðar á Njáluslóðir laugar- daginn 13. nóvember næstkomandi. Farið verður með rútu frá skrifstofu LÍ í Kópavogi kl. 10.00. Áætluð heimkoma er kl. 17.30. Hádegisverður verður snæddur á Hvolsvelli og fræða- setrið því næst skoðað undir leiðsögn Arthúrs Björgvins Bollasonar sem jafnframt mun aka með okkur um Njáluslóð- ir. Áætlaður kostnaður (hádegisverður innifalinn) er kr. 2.600 og verður innheimtur við brottför. Lágmarksfjöldi eru 25 manns. Þátttaka tilkynnist til skrif- stofu LI í síma 564 4100, eigi síðar en föstudaginn 5. nóvem- ber næstkomandi. Stjórnin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.