Læknablaðið - 15.11.1999, Síða 85
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
925
Dreifibréf landlæknisembættisins
nr. 14/1999
Tilkynning frá
sóttvarnalækni
Reykjavík, 11. október 1999
Um næstu áramót verður
gerð breyting á bólusetning-
um barna á íslandi. Helstu
breytingarnar eru þær að
sprautum mun fækka og tekið
verður í notkun nýtt svokallað
frumulaust kíkhóstabóluefni
sem hefur mun minni auka-
verkanir í för með sér en það
sem hingað til hefur verið not-
að. Þá hefur verið ákveðið að
bæta við kíkhóstabólusetn-
ingu við fimm ára aldur með
það að markmiði að draga enn
frekar úr fjölda sjúkdómstil-
fella af völdum krkhósta. Nýja
bóluefnið gerir það mögulegt
þar sem það veldur litlum
aukaverkunum.
Frá 1. janúar árið 2000 gild-
ir sú áætlun bólusetninga
barna á Islandi sem fram kem-
ur í meðfylgjandi töflu.
Nánari skýringar og leið-
beiningar verða gefnar um
framkvæmd bólusetninganna
á næstunni.
Samið hefur verið við eftir-
Sóttvarnalæknir
Landlæknisembættið
talda aðila um afhendingu á
bóluefnunum.
1 Lyfjaverslun íslands hf, f.h.
Pasteur Mérieux MSD.
2 Thorarensen Lyf ehf, f.h.
SmithKline Beecham Bio-
logicals.
3 ísfarm ehf, f.h. Statens Ser-
um Institut.
Sent yfirlæknum og hjúkr-
unarforstjórum heilsugæslu-
stöðva, héraðslæknum, Heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Aldur
3 mánaða
5 mánaða
12 mánaða
18 mánaða
5 ára
9 ára
14 ára
Sjúkdómar sem bólusett er gegn
Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi, heilahimnubólga (HIB), lömunarveiki (Pentavacl)
Kíkhósti, bamaveiki, stífkrampi, heilahimnubólga (HIB), lömunarveiki (Pentavacl)
Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi, heilahimnubólga (HIB), lömunarveiki (Pentavacl)
Rauðir hundar, mislingar, hettusótt (Priorix2)
Kíkhósti, bamaveiki, stífkrampi (Di-Te-Kik3)
Rauðir hundar, mislingar, hettusótt (Priorix2)
Lömunarveiki (Imovax poliol) og stífkrampi ásamt bamaveiki (Diftavaxl)
Farsóttafréttir
Bólusetningar gegn pneumókokkasýkingum
Sigurður Helgason, læknir á
Heilsugæslustöðinni í Árbæ,
hefur kannað hvemig bólu-
setningu gegn lungnabólgu
hafi verið háttað á þeirri stöð.
Á heilsugæslustöðinni starfa
fjórir læknar og sinna þeir um
600 einstaklingum sem eru 65
ára og eldri. Sigurður leitaði
svara við eftirfarandi spum-
ingum:
1. Hve stórt hlutfall einstak-
linga 65 ára og eldri höfðu
fengið lungnabólgubólu-
setningu í október 1997 og
hve mikil varð aukningin á
næsta 12 mánuðum?
• Svar: Hlutfall bólusettra
jókst úr 29,4% í 48,5%.
2. Er mikill breytileiki milli
lækna í þessu sambandi?
• Svar: Já. í byrjun athugun-
artímans var hlutfall bólu-
settra eftir læknum 13% til
61% og í lok tímans 25% til
72%.
3. Hefur áróður áhrif?
• Svar: Almenn fræðsla sem
beindist að læknum skilaði
litlum árangri eða um 1-7%
raunaukningu bólusettra á
átta mánaða tímabili. Þegar
markvissum áróðri var beint
að einum lækni og hjúkrun-
arfræðingur fenginn til að
sinna bólusetningu jókst
hlutfall bólusettra úr21,3%