Læknablaðið - 15.12.1999, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
955
fylgdu tvær kviðspeglanir á því sama ári, ein til að
athuga hvort eggjaleiðarar væru opnir, hin vegna
gruns um utanlegsþykkt, sem ekki reyndist vera.
Tveimur árum síðar var enn kviðspeglað til að at-
huga hvernig ástand eggjaleiðara væri og því fylgdi
endurtekin smásjáraðgerð með endurtengingu
vinstra megin. Konan reyndist vera með utanlegs-
þykkt í vinstri eggjaleiðara og fannst það ástand
fyrir tilviljun við aðgerðina. Eins og í öllum öðrum
utanlegsþungunum hennar var meinafræðisvar til
staðfestingar.
Hálfu ári síðar fannst utanlegsþykkt í hægri
eggjaleiðara og nú var gerð smásjáraðgerð á honum
aftur um leið og þykktin var fjarlægð. Tíu mánuðir
liðu þar til þungun greindist á ný í hægri eggjaleið-
ara. Þykktin var tekin úr leiðaranum, gert við eggja-
leiðarann eftir föngum og samvextir losaðir frá þeim
vinstri. Kviðspeglun 13 mánuðum síðarvegna gruns
urn utanlegsþykkt reyndist neikvæð, en í sama mán-
uði varð Ijóst að þykkt hlyti að vera í leiðaranum og
reyndist svo vera hægra megin. Eggjaleiðarinn var
nú tekinn alveg burt og lokað fyrir þann vinstri.
Konan fór í allnokkrar glasafrjóvgunartilraunir, sem
tókust 1989 og hún fædddi það ár heilbrigð tvíbura-
börn með keisaraskurði. Síðan hefur eitt barn bæst
við með sömu aðferð. Alls voru gerðar á 10 ára tíma-
bili tvö útsköf, 12 kviðspeglanir, fimm kviðskurðir
(laparotomia) og fjórir kviðskurðir með smásjárað-
gerð.
Sjúkratilfelli með þykkt samtímis í
báðum eggjaleiðurum
I þremur tilfellum reyndist kona hafa utanlegs-
þykkt í báðum eggjaleiðurum samtímis. Tvö tilvik
greindust 1989 með mánaðar millibili. Hjá báðum
konunum leiddi grunur um utanlegsþykkt til aðgerð-
ar. Fyrri konan var 32 ára, hafði fætt sex árum áður,
en síðan átt við ófrjósemi að stríða. Þunganir f báð-
unt eggjaleiðurum voru staðfestar með meinafræði-
skoðun. Hin konan var 29 ára, með ófrjósemivanda-
mál og varð þunguð eftir glasafrjóvgun. Utanlegs-
þykkt var í báðum eggjaleiðurum og greining stað-
fest með meinafræðiathugun.
Þriðja konan kom árið 1994, þá 28 ára, án áhættu-
þátta en hafði alið tvö börn og einu sinni misst fóst-
ur. Við aðgerð vegna gruns um utanlegsþykkt fannst
þungun í báðum eggjaleiðurum, sem voru staðfestar
með meinafræðiskoðun. Eggjaleiðararnir voru ekki
fjarlægðir og kona fékk endurtekna utanlegsþungun
hálfu ári seinna.
Þrír fóstursekkir samtímis
Um var að ræða 32 ára konu sem ekki hafði fætt
og átti við ófrjósemivandamál að stríða eftir eggja-
leiðarabólgu. Hún hafði farið fjórum sinnum í að-
gerðir á eggjaleiðurum, fyrst með venjulegum að-
ferðum en síðan smásjáraðgerð án árangurs. Glasa-
frjóvgun tókst eftir nokkrar tilraunir er settir voru
upp þrír fósturvísar. Við ómskoðun vegna verkja í
13. viku sáust þrjú fóstur, tvö með hjartslætti en eitt
virtist visnað. Annar sekkjanna með lifandi fóstri
virtist hins vegar liggja í horni tvískipts legs eða utan
þess. Gerð var kviðspeglun sem leiddi í ljós stóra
utanlegsþykkt í vinstri eggjaleiðara og í framhaldi af
því var eggjaleiðarinn og þykktin fjarlægð gegnum
kviðskurð. Vefjarannsókn staðfesti eðlilega skapað
fóstur sem svaraði til 13-14 viku meðgöngu f vinstri
eggjaleiðara. Fóstrið sem var lifandi innan legsins
þroskaðist eðlilega og konan fæddi heilbrigt barn.
Utanlegsþykkt í leghorni sem tengt var
aðal leginu með bandvefsstreng
Tvítug frumbyrja kom við 12 vikur frá byrjun
blæðinga. Við ómskoðun sást þykknuð slímhúð í
legholi og sekkur, sem virtist liggja utan við legið
vinstra megin. Við kviðspeglun sást hægri leghelm-
ingur sem tengdist eðlilegum eggjaleiðara og eggja-
stokk. Vinstra megin var 4x5 sm gúll, sem líktist legi
og innihélt utanlegsþykkt, en upp af honum eðlileg-
ur vinstri eggjaleiðari og eggjastokkur. Gúllinn
tengdist hægri leghelntingnum með bandvefsstreng.
Leghornið ásamt þykktinni var fjarlægt í gegnum lít-
inn kviðskurð en hluti eggjaleiðarans og eggjastokk-
urinn skilinn eftir. Vefjarannsókn staðfesti leghorn
með fylgju og fósturvef. Konan fæddi síðar heilbrigt
bam með keisaraskurði vegna sitjandastöðu.
Þungun í eggjaleiðara samtímis
eðlilegri þungun í legholi
Konan kom í fyrstu þungun við 21 árs aldur með
14 vikna fósturlát og fór í útskaf. Því fylgdi eðlileg
meðganga og fæðing. Nokkrum árum síðar kom hún
við sex vikur frá upphafi blæðinga með sáran verk í
kviðarholi. Omskoðun sýndi eðlilegan fóstursekk í
legholi. Næstu tvær vikur lagaðist hún ekki og aum
fyrirferð fannst aftan við legið við kvenskoðun. Við
kviðspeglun var utanlegsþykkt í vinstri eggjaleiðara
sem var fjarlægð með opinni skurðaðgerð. Konunni
heilsaðist vel og fóstursekkurinn í legholinu þrosk-
aðist eðlilega. Heilbrigt barn fæddist eftir eðlilega
meðgöngu.
Tvær kviðarholsþunganir
Konan hafði fætt eðlilega eftir fyrstu þungun og
var 22 ára þegar hún var skoðuð í heimabyggð vegna
uppkasta í þungun. Ómskoðun gaf til kynna eðlilega