Læknablaðið - 15.12.1999, Page 26
962
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
ingar með mísóprostóli og dínoprostóni gefið
um leggöng.
Efniviður og aðferðir: Eitt hundrað tuttugu
og þrjár konur, sem náð höfðu fullri meðgöngu,
höfðu með ábendingu fyrir framköllun fæðing-
ar, óþroskaðan legháls og heila belgi fengu
með hendingarvali dínóprostón eða mísópro-
stól um leggöng. Einn skammtur af mísópro-
stóli, 100 mcg, var settur aftan við legháls
(posterior fornix vaginae). Dínóprostón, 3 mg,
var sett aftan við legháls á átta tíma fresti, að
hámarki tvisvar sinnum.
Niðurstöður: Fimmtíu og ein kona fékk
mísóprostól og 60 fengu dínóprostón. Tólf
konur duttu út úr rannsókninni eftir hendingar-
val, þar af 11 úr mísóprostólhópnum, vegna
þess að legháls var of hagstæður (n=9) eða leg-
vatn var farið (n=2). Meðaltími frá gangsetn-
ingu að fæðingu var 548 mínútur í mísóprostól-
hópnum og 1.087 mínútur í dínóprostónhópn-
um (p<0,05). Þörf reyndist á frekari örvun fæð-
ingar með oxýtócíni hjá 40% kvenna í mísó-
prostólhópnum og 71% kvenna í dínóprostón-
hópnum (p<0,05). Ekki var marktækur munur á
fæðingarmáta milli hópanna, það er keisara-
skurði eða fæðingu um leggöng. Tíðni keisara-
skurðar var 21,6% meðal kvenna sem fengu
mísóprostól en 25% meðal þeirra sem fengu
dínóprostón. Ekki var marktækur munur á milli
hópanna á tíðni fósturstreitu svo sem hægingu,
hröðun á hjartslætti eða seinum dýfum. Tíðni
barnabiks í legvatni var 41% í mísóprostól-
hópnum og 20,5% í dínóprostónhópnum
(p=0,056). Tíðni oförvunar legs var 59,6% hjá
mísóprostólhópnum og 18,6% hjá dínóprostón-
hópnum (p<0,05). Hjá börnunum var meðal
Apgar stig eina mínútu eftir fæðingu 6,7 í
mísóprostólhópnum og 7,6 í dínóprostónhópn-
um, (p=0,048) en fímm mínútum eftir fæðingu
var meðal Apgar stig 8,5 í mísóprostólhópnum
og 9,0 í dínóprostónhópnum (p=0,04). Ef ein-
göngu voru athuguð þau börn sem fæddust um
leggöng fannst ekki munur á Apgar stigi eftir
eina eða fimm mínútur frá fæðingu (p=0.11 og
0,21).
Alyktanir: Mísóprostól og dínóprostón,
gefíð um leggöng, eru bæði áhrifarík lyf til
framköllunar fæðingar þegar legháls er óþrosk-
aður. Fæðing er helmingi hraðari þegar mísó-
prostól er gefið samanborið við dínóprostóni
og minni þörf er á frekari örvun fæðingar með
oxýtócíni. Þrátt fyrir að oförvun legs væri al-
gengari eftir mísóprostól en dínóprostón þá
endurspeglaðist það þó ekki í lakari útkomu
barnanna né aukinni tíðni keisaraskurða. Lyfja-
kostnaður við framköllun fæðingar með mísó-
prostóli er 200 sinnurn lægri en með dínópro-
stóni og er þá ótalinn sparnaður vegna minni
notkunar oxýtócíns og styttri veru á fæðingar-
gangi. Ekki er enn ljóst hvað er heppilegasti
skammtur af mísóprostóli til framköllunar fæð-
ingar.
Inngangur
Kjörlyf til framköllunar á fæðingu þegar leg-
háls er langur og lokaður (óþroskaður, óhag-
stæður) er enn ófundið. Þau lyf sem mest eru
notuð í dag eru prostaglandín E2 afleiður, eink-
um dínóprostón. Því er fylgt eftir með belgja-
rofi og síðan oxýtócíni þegar legháls fer að
opnast. Framköllun fæðingar getur verið langt
og strangt ferli ef legháls er mjög óhagstæður í
upphafi. Þá er hætta á að framköllun fæðingar
heppnist ekki og fæðing með keisaraskurði
verður algengari en ella (1). Nýlega hefur verið
sýnt fram á að syntetískt prostaglandín E1
(mísóprostól) er virkt til framköllunar fæðingar
þegar legháls er óþroskaður (2). Mísóprostól er
mjög ódýrt lyf, með gott geymsluþol og má
geyma við stofuhita, gagnstætt dínóprostóni
sem er dýrt, með stuttan fyrningartíma og þarf
að geyma í frysti. Öll prostaglandín efni geta
framkallað of mikla legsamdrætti, sem getur
haft skaðleg áhrif á móður og ófætt barn hennar
(3).
Mísóprostól er framleitt í 100 og 200 mcg
töflum og skráð til notkunar samhliða bólgu-
eyðandi lyfjum (NSAID) til varnar myndunar
magasárs. í Evrópu eru eingöngu markaðssett-
ar 200 mcg töflur af mísóprostóli en í Banda-
ríkjunum fást einnig 100 mcg töflur. Heppileg-
ur skammtur af mísóprostóli til framköllunar
fæðingar er ekki enn þekktur, en lýst hefur ver-
ið notkun 25, 50 og 100 mcg í senn (2,4-6).
Lyfið er þá ýmist gefið sem einn stakur
skammtur eða í litlu magni á þriggja til fjög-
urra tíma fresti, allt að átta sinnum, eða há-
marki 600 mcg (2,4-6). Eingöngu er hægt að fá
200 mcg töflur hér á landi og við töldum þann
skammt vera of stóran. Hér á landi hefur dínó-
prostón verið notað til framköllunar fæðingar í
meira en 20 ár og hefðbundin gjöf er tveir 3 mg
stílar með átta klukkustunda millibili. I þessari
rannsókn var hefðbundin dínóprostóngjöf bor-
in saman við 100 mcg eða hálfa töflu af mísó-
prostóli sem gefin var í eitt skipti.